230 likes | 392 Vues
Mentorverkefnið Vinátta. Elín Þorgeirsdóttir. Mentorverkefnið vinátta. Rekstraraðili: Velferðarsjóður barna á Íslandi. Verkefnið hófst árið 2001. Fjöldi mentorpara hefur farið úr 35 árið 2001 í 74 árið 2004. Þátttakendur skólaárið 2004-2005:
E N D
Mentorverkefnið Vinátta Elín Þorgeirsdóttir
Mentorverkefnið vinátta • Rekstraraðili: Velferðarsjóður barna á Íslandi. • Verkefnið hófst árið 2001. • Fjöldi mentorpara hefur farið úr 35 árið 2001 í 74 árið 2004. • Þátttakendur skólaárið 2004-2005: • Mentorar komu úr HÍ, KHÍ, HA og Kvennaskólanum í Reykjavík og Verkmenntaskólanum á Akureyri. • Grunnskólanemar komu úr 10 skólum í Reykjavík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Akureyri.
Uppruni verkefnisins • Ísrael: • Starfrækt í 30 ár. • Skólaárið 2002-2003: 29.000 þátttakendur. • Malmö: • Hófst 1997. • Skólaárið 2002-2003: 106 þátttakendur. • Big Brothers og Big Sisters of America: • Í ár eru um 400.000 þátttakendur.
Hugmyndafræði • Mentorhlutverkið snýst ekki um: • að vera fagaðili á ákveðnu sviði • Mentorhlutverkið snýst um: • að skapa trúnað og traust, sýna samkennd og tillitssemi • uppbyggileg samskipti • að vera fyrirmynd
Fyrirkomulag • Tímarammi er eitt skólaár. • Þátttakendur af fúsum og frjálsum vilja. • Grunnskólabörn á aldrinum 7-10 ára. • Mentorar flestir á aldrinum 19-24 ára. • 7 mánuðir, einu sinni í viku þrjár klukkustundir í senn.
Verkefnisstjórn • Einn verkefnisstjóri stýrir verkefninu. • Skólaárið 2004-2005 eru fjórir umsjónarmenn. • Verkefnisstjóri ásamt umsjónarmönnum skipa verkefnisstjórn. • Hver umsjónarmaður er tengiliður um 15 –30 mentora. Hlutverk umsjónarmanna er að veita mentorum handleiðslu og stuðning.
Markmið • Meginmarkmið mentorverkefnisins Vináttu er að háskóla- og framhaldsskólanemar vinni að velferð barna og öðlist víðtæka reynslu í samskiptum við börn.
Sundurgreind markmið Börnin eiga að : • Kynnast hugmyndum, aðstæðum og öðlast nýja þekkingu og reynslu • Styrkja sjálfsmynd og auka félagsfærni • Kynnast nýjum leiðum til skemmtunar • Kynnast möguleikum til náms
Sundurgreind markmið frh. Mentorar eiga að : • þroska félagslega færni og samskiptahæfni • þroska samkennd • búa sig undir að kynnast mismunandi einstaklingum • öðlast þekkingu og reynslu • fá nýjar hugmyndir um hvernig starfa má með börnum • þroska sköpunarhæfni
Mat 2002 • Helstu niðurstöður: • almenn ánægja • aukinn þroski beggja • aukið sjálfstraust barna • bætt íslenskukunnátta
Mat 2004 • Helstu niðurstöður: • markmiðum náð • aukin reynsla og þekking barna • aukin víðsýni • bætt íslenskukunnátta • aukin samskiptahæfni
Val og þjálfun mentora • Góð fyrirmynd • Skuldbinding og áhugi • Starfsumsókn • Starfsviðtal • 3 meðmælendur • Sérstök þjálfun og handleiðsla frá verkefnisstjórn
Val á grunnskólabörnum • Foreldrar sækja um fyrir börnin á sérstökum umsóknareyðublöðum. • Valið í samráði við skóla • Verkefnið hæfir ekki öllum börnum
Val á grunnskólabörnum frh. • Verkefnið hentar vel börnum sem: • hafa orðið fyrir einelti • eru félagslega einangruð • einbirnum • börnum úr stórum systkinahópi • börnum sem hafa ekki föður-eða móðurímynd • börnum af erlendum uppruna • börnum sem eru feimin eða óframfærin
Pörun • Við pörun er m.a. tekið tillit til: • sameiginlegra áhugamála barns og mentors • óska foreldra • Hegðun mentora á vettvangi skiptir meira máli við að mynda gott samband heldur en sú aðferð sem notuð er til að para.
Að byggja upp farsæl tengsl • Farsæl sambönd byggja m.a. á: • trúnaði og trausti • gagnkvæmri virðingu • skilningi • víðsýni • reglusemi • samvinnu
Framtíðarsýn • Að verkefnið standi sem flestum grunnskólabörnum á landinu til boða. • Að verkefnið nái til breiðs hóps barna. • Að verkefnið nái að festast í sessi.
Mentorverkefnið Vinátta Dagný Broddadóttir
Hugmyndafræði námskeiðs og námsefnis • Hugsmíðahyggja: • Virk þátttaka í uppbyggingu þekkingar • Sjálfstæð vinnubrögð • Skapandi verkefni og sýnilegur árangur • Hlutverk kennara að styðja, hvetja og leiðbeina • Fullorðinsfræðsla: • Nemendur eru ábygir fyrir eigin námi • Nemendur í námi á eigin forsendum
Námsmarkmið • Að nemendur: • Þroski félagslega færni • þroski sköpunarhæfni • auki þekkingu sína á þjóðfélaginu • auki skilning á eigin stöðu og annarra í þjóðfélaginu • fái tækifæri til að vera jákvæð fyrirmynd • þjálfist í að setja sér markmið • þjálfist í að meta eigin frammistöðu á gagnrýnin hátt • þjálfist í akademískum vinnubrögðum
Fyrirkomulag kennslunar • Mentorárið varir í 7 mánuði frá byrjun október til loka apríl • Þriggja eininga námskeið. • Kennari heldur 5 fyrirlestra • Kennari tekur eitt einstaklingsviðtal • Kennari heldur 2 hópfundi • Hver kennslustund er skipulögð út frá ákveðnu viðfangsefni skv. námskrá verkefnisins.
Vinnulag mentora • Mentorar og börn hittast einu sinni í viku þrjá tíma í senn, alls 28-30 sinnum yfir skólaárið. • Nemendur hitta kennara einu sinni í mánuði. • Nemendur skila dagbók á mánaðarfresti. • Nemendur skila lokaskýrslu
Námsmat • Samvera með grunnskólabarni 3 klst. á viku eitt skólaár (50%) • Dagbókarskil á mánaðarfresti(20%) • Viðvera og þátttaka í 16 kennslustundum (20%). • Lokaskýrsla(10%)