1 / 11

Yfirlit yfir þjónustu presta- og djákna á LSH Í samhengi við rá ð stefnu um fjölmenningu

Yfirlit yfir þjónustu presta- og djákna á LSH Í samhengi við rá ð stefnu um fjölmenningu. Unnið sem efni í handbók unglækna á lyflækningasviði Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Sálgæslusvið LSH Fjölmenning.

emlyn
Télécharger la présentation

Yfirlit yfir þjónustu presta- og djákna á LSH Í samhengi við rá ð stefnu um fjölmenningu

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Yfirlit yfir þjónustu presta- og djákna á LSHÍ samhengi við ráðstefnu um fjölmenningu Unnið sem efni í handbók unglækna á lyflækningasviði Landspítala-Háskólasjúkrahúsi

  2. Sálgæslusvið LSHFjölmenning • Prestar/djákni LSH sinna trúarþörfum fólks og styðja fólk óháð trúarbrögðum, litarhætti, kyni, kynhneigð og þjóðerni. • þau vekja að jafnaði ekki máls á trúmálum af fyrra bragði og ef það gerist þá er það gert af næmi og virðingu. • Ef fólk vill ræða trúmál þá eru prestar/djákni vel í stakk búin til að mæta fólki með ólíkar lífskoðanir. Trúað fólk á yfirleitt ekki erfitt með að skilja hvert annað og reynslan hefur sýnt að þeir sem skilja sig sem trú- eða guðlausa hafa líka haft gagn af sálgæsluþjónustu presta/djákna á LSH. Guðsþjónustur á LSH eru í anda íslenskrar kirkjuhefðar og geta skoðast sem vettvangur fyrir hvatningu og andlega uppbyggingu.

  3. Sálgæslusvið Landspítali Háskólasjúkrahús • Á sálgæslusviði LSH starfa að jafnaði 7-8 prestar/djáknar. • þau sinna almennri prestsþjónustu og veita fræðslu, sálgæslu og veita ráðgjöf við sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. • Sálgæsla felst í að gæta að sálarheill fólks, sinna andlegum þörfum þess og styðja í raunum. • Jafnframt má líta á starf sálgæslusviðs sem gæðaeftirlit innan LSH þar sem prestur/djákni kemur sem óháður aðili sem hlustar og styður sjúklinga og starfsfólk, ráðleggur í álitamálum og miðlar málum þar sem ágreiningur hefur vaknað. • Allir skjólstæðingar og starfsmenn LSH hafa beinan aðgang að presti/djákna og trúnaðar er gætt.

  4. SálgæslusviðLandspítali Háskólasjúkrahús • Prestar/djáknar á LSH hafa öll lokið prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands og Clinical Pastoral Education (CPE) námi erlendis. • Í guðfræðináminu eru m.a. kennd sálgæsla og siðfræði lífs og læknavísinda. Djákni sem starfar á LSH er að auki hjúkrunarfræðingur með mikla starfsreynslu. • CPE nám er klínísk þjálfun sem fer fram á sjúkrahúsi. Starfprests/djákni miðar að því að hvetja fólk til „lífs í fullri gnægð“ — og geta þess vegna reynst vel þeim sem þjást eða eru deyjandi.

  5. SálgæslusviðTilvísun • Hafi starfsmaður (einkum hjúkrunarfræðingar eða læknar) það á tilfinningunni og sé mat þeirra að einhver geti haft gagn af þjónustu prests/djákna þá má óska eftir sálgæsluþjónustu. • Ef sjúklingur/aðstandandi vill ekki tala við prest/djákna þá segir viðkomandi þeim það sjálf(ur). Lækni/sjúklingi getur þótt helst til afgerandi að kalla á prest/djákna (setur það aðeins í samband við sorg og dauða) og jafnvel tilgangslítið að kalla eftir sálgæsluþjónustu þar sem hún felst ekki í að hjúkra, gefa lyf eða skera upp. • Þjónustan er stundum „fordæmd“ og sett í samband við einsleitar hugmyndir um trú og kirkjulega embættismenn. En þar með er ekki sagt að prestur/djákni geti ekki orðið að liði. Reynslan hefur kennt að jafnvel læknir/starfsfólk/sjúklingur/aðstandandi sem í byrjun afþakkar sálgæsluþjónustu hafði síðar í ferlinu gagn af henni.

  6. Sálgæslusvið Vísindahyggja • Kannski ert þú einn af þeim sem finnst starf presta/djákna snúast um huglægan veruleika, óskyldan heimsmynd upplýstra nútímamanna og læknavísinda. • Hér er stutt í flókna umræðu um sálarfræði, heimspeki læknisfræðinnar, heilbrigði og tengsl þess líkamlega og andlega. En læknis- og guðfræðilega eru sál og líkami órofa heild þar sem sálin tjáir sig í líkama, hugsun, tilfinningu, sjúkdómum og öfugt og því eitthvað sem þarfnast sérstakrar og sérhæfðrar athygli.

  7. SálgæslusviðAlmennt verksvið • a. Að veita sálgæslu og stuðning fyrir starfsfólk LSH. • b. Að veita fræðslu um starfsvið presta/djákna á LSH. • c. Að styðja starfsfólk og skjólstæðinga LSH í þeim aðstæðum þar sem prestur/djákni geta reynst einstaklingum og hópum vel við krefjandi aðstæður á deild. (Í samráði við deildarstjóra). • d. Að styðja sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk þegar það þarf á stuðningi að halda. • T.d. eftir áföll, fyrir aðgerð, eftir aðgerð, eða eftir missi (ástvinar, hluta, dýra, heilsu, vonar, o.s.frv.).

  8. Sálgæslusvið Siðfræði og trúmál • e. Að leiðbeina og veita sjúklingum, aðstandendum eða starfsfólki ráðgjöf og stuðning við lausn siðferðilegra álitamála. • Prestar/djákni geta hjálpað til við siðferðilega ákvarðanatöku og veitt stuðning í og eftir slíka ákvarðanatöku. • Sálgæslusvið á fulltrúa í siðfræðinefnd LSH. • f. Að vera til taks þegar upp koma spurningar eða samskiptaerfiðleikar sem snerta trúmál og trúarbrögð. • Prestar/djákni hafa góðar forsendur til að nálgast fólk af ólíkum trúarbrögðum vegna innsýnar í trúarbragðafræði, trúarlífsálarfræði og eðli trúarlífs.

  9. SálgæslusviðÁföll og andlát • g. þegar búast má við mikilli geðshræringu t.d. þegar kynna þarf erfiðar ákvarðanir og bera fólki váleg tíðindi. • Prestur/djákni stendur við hlið læknis og sjúklings við slíkar aðstæður og fylgir viðkomandi aðilum eftir. • Prestar/djákni virða samstarf við þá sem annast meðferð og bæta engu við m.t.t. læknisfræðilegar þekkingar. • h. þegar verða svipleg áföll og slys sem valda örkumlum eða dauða. • Hér er vísað til þjónustu presta/djákna á slysadeild, bráðamóttöku og gjörgæsludeildum.

  10. SálgæslusviðFyrirbæn og samskipti • i. þegar sjúklingur óskar eftir fyrirbæn og sálgæslusamtali. • Að leggjast inn á sjúkrahús vekur margar tilfinningar og hugsanir um líf og tilgang og þörf fyrir samtal og þekktar leiðir til að vinna úr slíkri reynslu. Prestar/djákni mæta þessari þörf. • j. þegar þú og samstarfsfólk þitt skynjar að mikið sé um óuppgerð mál í fjölskyldu sjúklings og að tækifæri sé til að skoða með þriðja aðila.

  11. SálgæslusviðAðrar trúarþarfir • k. þegar sjúklingur er dauðvona og gæti þegið sálgæslu, skriftir, fyrirbæn og blessun. • þessi þjónusta er veitt óháð því hvort sjúklingur er með meðvitund eða ekki. • l. þegar óskað er eftir kyrrðarstund við dánarbeð. • þetta er mjög eðlilegur endir á dvöl sjúklings sem deyr á LSH og sterk athöfn sem hjálpar fólki að kveðja, sættast og upplifa mikilvægt augnablik með öðrum. Þér er velkomið að taka þátt í þessari athöfn og kveðja þannig sjúkling þinn, aðstandendur og staldra við fyrir sjálfa(n) þig. • m. þegar óskað er eftir prestsþónustu innan spítalans. • Skírn, hjónavígslu, skriftum, fyrirbæn, blessun, sakramennti.

More Related