1 / 21

Lokaverkefni á meistarastigi 2013 – 2014

Lokaverkefni á meistarastigi 2013 – 2014. Reglur og vinnuferli (byggt á vef meistararitgerða í Uglu) Anna María Hauksdóttir Janúar 2014. MA- og M.Ed.-verkefni Yfirlit efnis. Upplýsingar og ráðgjöf Reglur (forkröfur, tegundir verkefna, umfang, markmið) Vinnuferli Frá skráningu að skilum

jett
Télécharger la présentation

Lokaverkefni á meistarastigi 2013 – 2014

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Lokaverkefni á meistarastigi2013 – 2014 Reglur og vinnuferli (byggt á vef meistararitgerða í Uglu)Anna María Hauksdóttir Janúar 2014

  2. MA- og M.Ed.-verkefni Yfirlit efnis • Upplýsingar og ráðgjöf • Reglur (forkröfur, tegundir verkefna, umfang, markmið) • Vinnuferli • Frá skráningu að skilum • Skiladagar • Frágangur AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  3. Upplýsingar og ráðgjöf • Vefur (Ugla): • Ugla, innri vefur (Fræðasvið >> Menntavísindasvið >> Lokaverkefni til meistaraprófs): Allar upplýsingar, reglur og skiladagar • Tilkynningar sendar til þeirra sem eru skráðir í lokaverkefni í Uglu – nauðsynlegt að fylgjast með HÍ-tölvupósti • Leiðbeinendur • Umsjónarmaður meistaraverkefna (ah@hi.is; s. 525 5906) • Almenn upplýsingagjöf um meistaraverkefni. Skipulag, umsýsla, stefnumörkun • (Aðstoð við skráningu í lokaverkefni, en annars nemendaskrá, nemskra@hi.is/Uglaeða deild) • Kennsluskrifstofa (menntavisindasvid@hi.is; s. 525 5950) • Móttaka verkefna (fyrri og seinni skil), skráning í brautskráningu • Formenn námsbrauta • Val á leiðbeinendum, fundarstjórn varna, lokakynninga og MA-málstofa, o.fl. • Ritver – námskeið, viðtöl, upplýsingar á vef: http://vefsetur.hi.is/ritver/ • Bókasafn Menntavísindasviðs (http://stofnanir.hi.is/bokasafn/) AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  4. Reglur – almenn atriði • Meistaraverkefni eru einstaklingsverkefni • Forkröfur • MA: 60 einingar (að jafnaði) og viðkomandi námskeið í aðferðafræði • M.Ed.: 60 einingar, þar á meðal skyldunámskeið í aðferðafræði og kenningum og 20–30 einingar á viðkomandi kjörsviði/áherslusviði • Í hverju verkefni er skipaður: • Leiðbeinandi (fastráðinnkennari við Menntavísindasvið) • Sérfræðingur og/eða meðleiðbeinandi (kennari á Menntavísindasviði) • Prófdómari (utan HÍ/MVS, skipaður af forseta MVS) AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  5. Reglur – tegundir verkefna • M.Ed.-verkefni getur verið: • Sjálfstæð rannsókn og ritgerð sem byggir á henni • Ritgerð byggð á heimildarannsókn • Starfstengt þróunar- eða matsverkefni • Námsmats- eða námsefnisgerð • Starfendarannsókn • Annað (háð samþykki) • MA-verkefni er að jafnaði: • Sjálfstæð rannsókn og ritgerð sem byggir á henni AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  6. Reglur – umfang • MA-verkefni: 40e, 50e eða 60e (30e starfst. þroskaþj.fr., 40–50e Kennaradeild) • M.Ed.-verkefni: 30e (geta verið 20e eða 40e á eldri námsleiðum) • Mismunandi eftir námsleið og hvenær nemi innritaðist. Sjá texta í kennsluskrá um leyfilega stærð verkefna á viðkomandi námsleið • Stærð verkefnis í einingum er ákveðin við upphaf verkefnis • Vinnuframlag að baki verkefni • 20e: 500 til 600 vinnustundir (12–15 vikur miðað við 40 tíma vinnuviku) • 30e: 750 til 900 vinnustundir (18–22 vikur miðað við 40 tíma vinnuviku) o.s.frv. • 60e verkefni er ársverk í fullu starfi • Lengd verkefnis. Hafa má hliðsjón af eftirfarandi: • 30e: Um 30 þúsund orð • 40e: Um 40 þúsund orð, o.s.frv. • Lengd verkefnis ræðst fyrst og fremst af efni • Verkefni þar sem fræðileg greinargerð fylgir: • Unnt að miða við að greinargerð teljist 1/3 hluti af vinnu við verkefni AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  7. Reglur – markmið MA- og M.Ed.-verkefna (úr kennsluskrá) Að MA / M.Ed-verkefni loknu skal nemandi: • Hafa öðlast kerfisbundinn skilning á nýjustu þekkingu innan viðkomandi fræðasviðs/starfssviðs. • Hafa haldgóðan skilning / hafa dýpkað fræðilegan skilning á afmörkuðu efni á því sviði sem hann sérhæfir sig í. • Hafa víðtæka kerfisbundna þekkingu á viðfangsefninu sem nær til nýjustu upplýsinga og rannsókna á efninu. • Hafa getu, hæfni og frumkvæði til þess að afla viðeigandi vísindalegra /fræðilegra gagna, greina þau og meta samkvæmt viðurkenndum vinnubrögðum og aðferðafræði á viðkomandi sérsviði. • Geta unnið sjálfstætt rannsóknarverkefni í samhengi við / geta sett efnið í samhengi við fyrri rannsóknir eða sambærileg verkefni á því sviði sem fjallað er um. • Geta beitt fræðilegum hugtökum og kenningum á tiltekin viðfangsefni á starfsvettvangi. • Geta fjallað með gagnrýnum hætti um heimildir, kenningar og fræðileg álitamál. • Geta greint frá fræðilega rökstuddum niðurstöðum í ræðu og riti á skýran, faglegan og skapandi hátt. AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  8. Vinnuferli – yfirlit • Skráning í lokaverkefni • Val á efni og leiðbeinanda. Um hlutverk leiðbeinanda og nemanda • Rannsóknaráætlun unnin • Skil á rannsóknaráætlun • Fundir með leiðbeinendum, vinna verkefnis (kynningar á málstofum og/eða teymiskynningar ef við á) • Verkefnaskil • Útdráttur, lokahandrit, lokakynning/vörn, til prófdómara, lokaskil • Dagsetningar miða við brauskráningar (júní, október, febrúar) AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  9. Vinnuferli: 1. Skráning • Skráning í lokaverkefni í Uglu/hjá nemendaskrá í árlegri skráningu í námskeið (skrá sig sérstaklega á sumarmisseri ef um það er að ræða) • MA-nemarskrá sig einnig í MA-málstofu 1 og/eða 2 (á þeim misserum sem þeir kynna áætlun eða niðurstöður) • Áætluð framvinda á skólaárinu • Nemendur skrá sig í lokaverkefni skv. áætlaðri framvindu hvers misseri sem unnið er að verkefninu (almennt hægt að skipta niður í 10e hluta) • Vinna nær venjulega yfir a.m.k. tvö misseri • Til að fá einingar skráðar á feril sem loknar: Óska eftir því við leiðbeinanda að hann sendi staðfestingu á vinnuframlagi til umsjónarmanns meistaraverkefna (eða til kennsluskrifstofu) • Til að fyrstu 10 einingar verkefnis verði skráðar sem loknar þarf rannsóknaráætlun að vera samþykkt af leiðbeinanda og sérfræðingi og/eða meðleiðbeinanda • Ef engin staðfesting berst er nemandi skráður úr lokaverkefni við lok misseris • Nemandi ber þá ábyrgð á því að skrá sig aftur í verkefnið á næsta misseri ætli hann að halda áfram vinnu við verkefnið. AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  10. Vinnuferli: 2. a) Val á efni og leiðbeinanda • Efni lokaverkefnis skal tengjast sérhæfingu í náminu (námsleið og sérsviði/kjörsviði/námssviði) • M.Ed.-verkefni – áhersla á vettvang • MA-verkefni– áhersla á rannsóknarvinnu • Mikilvægt að huga að bakgrunni nemanda í námi, sérstaklega aðferðafræði, við val á efni og aðferð • Nemendur ráðfæra sig við formann námsbrautar vegna leiðsagnar • Leiðbeinendur eru fastráðnir kennarar við Menntavísindasvið • Í einstaka tilfellum er leitað út fyrir þennan hóp en til þess þarf samþykki deildarforseta. Í þeim tilfellum er skipaður umsjónarmaður úr hópi fastra kennara MVS • Í öllum tilvikum skal leiðbeinandi hafa lokið a.m.k. meistaraprófi á fræðasviðinu • Nemendur fá svar frá námsbrautarformönnum og leita þá til kennara um leiðsögn • Nemendur tilkynna um efni og leiðbeinanda á rafrænu eyðublaði(í Uglu) • Listi yfir nemendur, efni verkefna og leiðbeinendur lagður fyrir viðkomandi deild til formlegrar samþykktar AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  11. Vinnuferli: 2. b) Hlutverk leiðbeinanda • Hlutverk leiðbeinanda: • Aðstoða við gerð áætlunar, fylgjast með framvindu verksins • Ráðleggja um afmörkun efnissviðs og framsetningu spurninga • Leiðbeina um heimildir og öflun þeirra og um öflun og úrvinnslu gagna • Leiðbeina og veita endurgjöf um framsetningu efnis og uppbyggingu texta • Taka þátt í lokamati á meistaraverkefninu • Áætluð vinna leiðbeinanda í leiðsögn, yfirlestur, fundi og annað: • Einingafjöldi verkefnis + 10 vinnustundir • Dæmi: 30e verkefni = 40 stundir AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  12. Vinnuferli: 2. c) Hlutverk nemanda Nemandi: • Er ábyrgur fyrir námi sínu og vinnur sjálfstætt að eigin frumkvæði • Ber ábyrgð á skráningu og kynnir sér skilmála og leiðbeiningar • Vinnur rannsóknaráætlun í samráði við leiðbeinanda • Gerir tímaáætlun fyrir verkefnið og lok þess • Gerir áætlun með leiðbeinanda um samstarfið • Semur um fundi með leiðbeinanda og vinnu milli funda • Fylgir leiðsögn leiðbeinanda og leyfir honum að fylgjast með framvindu verksins • Hefur samráð við leiðbeinanda um: • Kynningu á verkefninu • Hvenær skila á verkefni til mats • Ber ábyrgð á tímamörkum og skilum AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  13. Vinnuferli: 3. a) Rannsóknaráætlun • Rannsóknar- og verkáætlun • er lykilatriði í góðri rannsóknarvinnu • er unnin í samvinnu við leiðbeinanda • er ígildi samnings Ekki hefja gagnasöfnun fyrr en rannsóknaráætlun hefur verið samþykkt af leiðbeinanda og sérfræðingi/meðleiðbeinanda! • Athuga réttindi þátttakenda í rannsókn • Öflun leyfa (t.d. frá Persónuvernd, Vísindasiðanefnd, þátttakendum, foreldrum barna 18 ára og yngri, skóla, sveitarfélags) • Eyðublað og leiðbeiningar í Uglu • Viðmið um lágmarkslengd áætlunar: MA: 4–6 þús. orð, M.Ed.: 2–3 þús. orð • Verk- og tímaáætlun annars vegar, og rannsóknaráætlun hins vegar, má skila saman í einu skjali eða í tveimur skjölum • Leiðbeinandi skilar samþykktri áætlun til umsjónarmanns meistaraverkefna og formanns námsbrautar (í tölvupósti) AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  14. Vinnuferli: 3. b) Rannsóknaráætlun, frh. Rannsóknar- og verkáætlun innihaldi: • Nöfn (nem., leiðbein., sérfr.), námsleið, stærð verkefnis • Tímasetta framkvæmdaáætlun • Drög að uppbyggingu ritgerðar • Greinargerð um viðfangsefni og rökstuðingur fyrir vali þess: • Kynningu og afmörkun efnis • Markmið, rannsóknarspurningar • Rök fyrir vali á verkefni, gildi verkefnis • Fræðilegan bakgrunn: • Lýsing á stöðu þekkingar á viðkomandi fræðasviði • Skýring á hugtökum • Hvernig verkefnið tengist fyrri rannsóknum/kenningum á sviðinu • Aðferð: • Gagnaöflun og fyrirhuguð úrvinnsla gagna • Rök fyrir vali á aðferð (tengsl við rannsóknarspurningu, markmið), kostir og gallar rannsóknarsniðs • Siðferðileg atriði (ef við á) • Heimildaskrá AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  15. Vinnuferli: 4. Skil á rannsóknaráætlun • Rannsóknaráætlun er metin af leiðbeinanda og sérfræðingi og/eða meðleiðbeinanda • Umsjónarmaður lokaverkefna hefur umsjón með skipun sérfræðings í samráði við formenn námsbrauta og leiðbeinendur • Sérfræðingur er kennari á MVS (metur rannsóknaráætlun og lokahandrit verkefnis) • Ferli: • Nemandi skilar áætlun til leiðbeinanda og leiðbeinandi skilar til sérfræðings • Skiladagur 26. nóv. v/brautskráningar í júní 2014. Annars um sex mánuðum fyrir verkefnalok (samkomulag við leiðbeinanda) • Sérfræðingur skilar athugasemdum til leiðbeinanda, nemandi gerir lagfæringar í samráði við leiðbeinanda • Leiðbeinandi skilar samþykktri áætlun til umsjónarmanns lokaverkefna og formanns námsbrautar AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  16. Vinnuferli: 5. Fundir, málstofur, verkefnavinnan • Fundir með leiðbeinenda (og í teymum ef við á) samkvæmt samkomulagi • Verkefnavinnan, rannsókn, ritun – skv. áætlun og samkomulagi við leiðbeinanda… • Málstofur MA-nema • Skylda að kynna eigið efni tvisvar í vinnuferlinu (rannsóknaráætlun, niðurstöður) • Vettvangur gagnrýni og umræðu, aðferðafræðileg álitamál, gagnkvæmur stuðningur, styrkur og aðhald, þjálfun í að greina frá fræðilega rökstuddu efni • Skráning með tveggja vikna fyrirvara • Heiti og útdráttur með 10 daga fyrirvara – sjá í Uglu • 80% mætingarskylda á þeim misserum sem þeir eru skráðir í málstofur. Málstofur mánaðarlega á haust- og vormisseri AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  17. Vinnuferli: 6. a) Skil og mat á verkefni – vor Vormisseri 2014 (verkefnaskil vegna brautskráningar 21. júní) • 11. mars: Upplýsingum um verkefnið skilað til umsjónarmanns á rafrænu eyðublaði • Nöfn, stærð verkefnis o.fl. • Heiti verkefnis á íslensku og á ensku • Titill verður að vera lýsandi fyrir innihald ritgerðar/verkefnis • Fá aðstoð með heiti á ensku ef þarf • Útdráttur (sjá leiðbeiningar í Uglu, sniðmáti, handbókum) • 200–300 orð • Efni verkefnis í hnotskurn (viðfangsefni og tilgangur, aðferð, helstu niðurstöður og ályktanir) • Upplýsingar m.a. notaðar við skipun prófdómara og skipulag á vörnum og kynningum • 1. apríl: Skil á lokadrögum handrits • Skilað til leiðbeinanda (útprentað eða í tölvupósti, eftir samkomulagi) • Sérfræðingur/meðleiðbeinandi og leiðbeinandi meta • Nemandi lagfærir verkefni í samráði við leiðbeinanda • 15. apríl (eða eftir samkomulagi): Athugasemdir frá leiðbein. og sérfr. • Nemandi lagfærir verkefni í samráði við leiðbeinanda AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  18. Vinnuferli: 6. b) Skil og mat á verkefni – vor (frh.) Vormisseri 2014, frh. • 29. apríl: Skil á verkefni til mats prófdómara og leiðbeinanda (fyrri skil) • Skilað á kennsluskrifstofu, eitt til þrjú útprentuð eintök og í tölvupósti • Uppsetning skv. sniðmáti, gormað • Prófdómari og leiðbeinandi meta og gefa einkunn (staðið/fallið) • Nemandi endurbætir ritgerð í samráði við leiðbeinanda þegar umsögn prófdómara liggur fyrir (ca. 13. maí, fyrir M.Ed.-nema, eða u.þ.b.  tveimur vikum eftir skil verkefnis) • 6.–16. maí: Meistaraprófsvarnir MA-nema (40e verkefni og stærri) • 14., 15., 16., og 19. maí: Lokakynning/málþing M.Ed.-nema • 26. maí: Lokaskil á rafrænu og prentuðum eintökum (seinni skil) • Tvö innbundin eintök. Handrit búið til útgáfu skv. sérstökum leiðbeiningum. Sjá sniðmát • Eintaki skilað í Skemmu • Auk þess: Fyrstu síður í tölvupósti, Turnitin-skýrsla, yfirlýsing fyrir bókasafn, staðfesting á rafrænum skilum • Sjá nánari fyrirmæli um skil í Uglu AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  19. Vinnuferli: 6. c) Skil og mat á verkefni – sumar Sumarmisseri 2014 (verkefnaskil vegna námsloka í október) Birt með fyrirvara um breytingar: • 1. júlí: Útdrætti og heiti verkefnis skilað til umsjónarmanns • 7. ágúst: Skil á lokadrögum handritis • Skilað til leiðbeinanda. Sérfræðingur og leiðbeinandi gera athugasemdir fyrir 19. ágúst • September: Lokakynning/málþing M.Ed.-nema • 2. september: Skil á verkefni (fyrri skil) • Skilað á kennsluskrifstofu skv. fyrirmælum. Prófdómari og leiðbeinandi meta, umsögn 16. sept. • 8.–19. september: Meistaraprófsvarnir MA-nema (40e verkefni og stærri) • 30. september: Lokaskil (seinni skil) á rafrænu og prentuðum eintökum ásamt fylgigögnum, skv. fyrirmælum um skil AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  20. Vinnuferli: 6. d) Skil og mat á verkefni – haust Haustmisseri 2013 (verkefnaskil vegna brautskráningar í febrúar 2014) • 5. nóvember: Útdrætti og heiti verkefnis skilað á rafrænu eyðublaði • 19. nóvember: Skil á lokadrögum handritis • Skilað til leiðbeinanda. • Sérfræðingur og leiðbeinandi gera athugasemdir fyrir 3. desember • 10. desember: Lokakynning/málþing M.Ed.-nema • 17. desember (MA) / 7. janúar (M.Ed.): Skil á verkefni (fyrri skil) • Skilað á kennsluskrifstofu skv. fyrirmælum. • Prófdómari og leiðbeinandi meta, umsögn 21. jan • 8.–17. janúar: Meistaraprófsvarnir MA-nema (40e verkefni og stærri) • 28. janúar: Lokaskil (seinni skil) á rafrænu og prentuðum eintökum ásamt fylgigögnum, skv. fyrirmælum AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

  21. Frágangur og prentun • Samkvæmt sniðmáti fyrir meistaraverkefni og reglum um MA-/M.Ed.-verkefni – sjá í Uglu • Staðlað útlit – auðveldar frágang, útlit samræmt • Í sniðmátinu er nákvæm skilgreining • á öllu umbroti, letri, blaðsíðutali, kápu, titilsíðu o.s.frv. • Hver tegund texta er skilgreind, meginmál, tilvitnanir, skýringartextar o.fl. • Verkefnin eru prentuð í stærðinni 17,6x25 cm (Envelope B5) og innbundin í kápu með stöðluðu útliti AMH: Meistaraverkefni 2013–2014

More Related