1 / 36

Klumbufætur

Klumbufætur. Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir Baldur Helgi Ingvarsson. Hvað er klumbufótur. Pes equinus varus adductus Pes = fótur Equinus = hófur (á hesti) Varus = halli inn að miðlínu Adductus = aðfærsla. Nýgengi . Á Íslandi: 0,9 á hverjar 1000 fæðingar Norðurlöndin: Svipað og hér

kellan
Télécharger la présentation

Klumbufætur

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Klumbufætur Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir Baldur Helgi Ingvarsson

  2. Hvað er klumbufótur • Pes equinus varus adductus • Pes = fótur • Equinus = hófur (á hesti) • Varus = halli inn að miðlínu • Adductus = aðfærsla

  3. Nýgengi • Á Íslandi: 0,9 á hverjar 1000 fæðingar • Norðurlöndin: Svipað og hér • Kína: 0,39 á hverjar 1000 fæðingar • Polynesía: 6,8 á hverjar 1000 fæðingar

  4. Algengi • Drengir eru 2,0-2,5x líklegri til þess að fá klumbufót • Bilateral í um það bil 50% tilfella • Hægri fótur aðeins oftar útsettur en sá vinstri

  5. Klínísk einkenni • Ökkli í equinus stöðu (fótur í plantar flexion) • Hæll í varus stöðu • Framleistinn er adducteraður og supineraður

  6. Meingerð • Menn eru ekki fullkomlega sammála um meingerð klumbufótar • Flestir rannsakendur eru þó sammála um að klumbufótur stafi af óeðlilegri afstöðu navicular, calcaneus og cubiod beina gagnvart talus. • Aðalgallinn liggur í talus sem er með snúning í collum og caput medialt og plantart miðað við corpus. • Naviculare er of miðlægt miðað við caput tali og getur því myndað gerviliðamót við medial malleolus

  7. Meingerð frh. • Calcaneus er í equinus og varus stöðu og hefur snúist miðlægt við talus • Miðlægu vöðvarnir, sinar og liðbönd sem sjá um inversio og plantarflexion eru of stuttir og stífir strúktúrar. Liðpokar miðlægt eru þykknaðir og stífir • Hliðlægt er of mikill slaki í strúktúrum sem sjá um eversion og dorsiflexion og capsulan er víð.

  8. Klumbufætur-gerðir • Soft: Idiopathiskir. Talið stafa af umhverfisþáttum og gengur oftast vel að laga • Rigid: Non-idiopathiskir. Eru tengdir heilkennum • Til dæmis Down´s syndrome, spina bifida, fetal alcohol syndrome • Gengur verr að meðhöndla

  9. Orsakir • Fjöldi tilgáta eru til • Líklegast um að ræða samansafn fjölda óútskýrða umhverfisþátta sem verka saman og stuðla að myndun klumbufóts • Helstu tilgátur eru aflfræðitilgátan, bandvefstilgátan, æðatilgátan, taugatilgátan, tilgátan um þroskastöðvun í fæti og genatilgátan

  10. Aflfræðitilgátan • Elsta tilgátan • Klumbufótur myndast vegna plássleysis í leginu • Til dæmis vegna minnkaðs legvatns

  11. Bandvefstilgátan • Leggur til að orsökin sé vegna galla í bandvefjum fótar • Það sem styður þessa tilgátu er hve stífir liðirnir eru í klumbufæti • Menn eru þó að komast að öndverðum niðurstöðum um þetta efni

  12. Æðatilgátan • Sýnt hefur verið fram á æðamissmíð í klumbufótum. • Vöntun á • a. tibialis anterior • a. dorsalis pedis

  13. Taugatilgátan • Margir einstaklingar með neural tube defect eins og spina bifida eru líka með klumbufót • Einnig hefur verið sýnt fram á óeðlilega taugaleiðni í einstaklingum með klumbufót

  14. Tilgátan um þroskastöðvun á fæti • Það sem styður þessa tilgátu er að klumbufótur lítur á margan hátt út eins og fósturfótur í byrjun annars mánaðar meðgöngu • Þessi tilgáta fjallar um að eðlilegur snúningur fósturfótarins stöðvist

  15. Genatilgátan • Hærri tíðni meðal eineggja en tvíeggja tvíbura en þó ekki svo að það mælir gegn því að um eitthvað eitt afgerandi gen sé að ræða • Líklegt þykir að um fjölgena erfðir sé að ræða • Líklegast sambland á milli umhverfisþátta og stökkbreyttra gena

  16. Greining • Langflest tilfelli greinast í 20 vikna meðgöngusónar. • Einstaka er þó ekki greint fyrr en við fæðingu, þá af barnalækni við nýburaskoðun

  17. Meðferð • Haft er samband við bæklunarlækni • Hefst strax á fyrstu tveimur vikum í ævi nýburans. • Byrjað á gifsmeðferð sem kennd er við Ponseti í flestum tilfellum • Ef hefðbundin gifsmeðferð skilar ekki árangri er gerð skurðaðgerð

  18. Ponseti gifsmeðferð • Barnið kemur vikulega til gifsmeðferðar • Fyrst er byrjað á því að abductera og pronera framleistann. Það getur tekið nokkur skipti. • Ekki fyrr en þá er fóturinn réttur úr varus stöðu. • Að síðustu er fóturinn leiðréttur úr plantar flexion með dorsi flexion og ekki fyrr en hinir þættirnir hafa verið leiðréttir.

  19. Meðferð Önnu litlu

  20. 1.vika-gifsið sett á

  21. 2.vika-gifsið tekið af...

  22. ...gifsið komið af

  23. ...og nýtt gifs sett á

  24. 4.vika

  25. 5.vika

  26. 6.vika-yfirréttan greinileg

  27. Framvinda gifsmeðferðarinnar

  28. ...og svo 9.vika...og Anna okkar komin í skó

  29. Ponseti meðferð frh. • Framkvæma þarf mjúklega og alls ekki má þvinga fótinn. • Þetta byggir á því að fóturinn er enn brjóskkenndur og því auðmótanlegur. • Ef þetta er gert of hratt eða of harkalega er hætta á að brot myndist í háristarliðunum sem getur svo með tímanum leitt til s.k ruggustóls aflögunar. • Þetta getur tekið 8 – 10 vikur, jafnvel lengur

  30. Áframhaldandi meðferð • Að lokinni réttingu sem venjulega er yfirrétting tekur við spelkumeðferð næstu fjóra mánuðina eða svo • Niðurstöður sýna að mögulegt er að leiðrétta allt að 90% klumbufóta með hefðbundinni gifsmeðferð

  31. Skurðaðgerðir • Beitt þegar fóturinn bregst ekki við hefðbundinni gifsmeðferð. • Eru gerðar á börnum allt frá þriggja mánaða aldri og eldri. • Byrjað er á mjúkvefslosunum. Þar er reynt að losa um strekkt liðbönd, liðpoka og klippa á eða lengja sinar.

  32. Skurðaðgerðir frh. • Ef ekki tekst að laga fótinn með mjúkvefsaðgerðum er oft reynt að gera osteotomiu á beinum í fæti til lagfæringar. • Þá er hugmyndin að taka beinfleyga frá einum stað og bæta í á öðrum stað til að rétta úr liðskekkjum. • Þessu fylgir oft tilfærsla á sinum til að stöðga fótinn • Tibialis ant. • Tibialis post.

  33. Skurðaðgerð frh2 • Ef fyrrgreindar aðferðir duga ekki er farið út í arthrodesu. • Arthrodesa = liðstífing • Einungis hægt að gera á fullvöxnum liðum • Hún er gerð á þremur liðum (triple arthrodesa) • Art. Talo-calcanea • Art. Talo-navicularis • Art. Calcaneo-cuboidalis

  34. Fylgikvillar aðgerða • Fóturinn getur skekkst aftur • Sýkingar • Yfirrétting á fæti • Blóðleysi í fæti (skorið á a. tibialis posterior) • Blóðþurrðardrep í talus (alvarlegast) • Getur einnig komið fram ef Ponseti rétting er gerð of harkalega

  35. Afdrif og árangur • Börnin eru í sérsmíðuðum skóm að loknum meðferðum • Þessum börnum er fylgt eftir í töluverðan tíma. Upp að skólaaldri og jafnvel lengur til að hægt sé að grípa strax inní ef það verður afturhvarf. • Árangur meðferðanna er mjög góður í langflestum tilfellum og fóturinn verður nánast eðlilegur.

  36. Takk fyrir Anna orðin tveggja og hálfs árs og fætur hennar orðnir góðir

More Related