1 / 50

Velkomin

Velkomin. Heimsókn þingmanna suðvesturkjördæmis í Mosfellsbæ 20. október 2008. Umræðuefni. Staða Mosfellsbæjar. Ráðgjafartorg. Nýr framhaldsskóli. Krikaskóli. Málefni aldraðra. Málefni fatlaðra. Vegamál. 2. Staða Mosfellsbæjar. Í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu.

maxime
Télécharger la présentation

Velkomin

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Velkomin Heimsókn þingmanna suðvesturkjördæmis í Mosfellsbæ 20. október 2008.

  2. Umræðuefni Staða Mosfellsbæjar. Ráðgjafartorg. Nýr framhaldsskóli. Krikaskóli. Málefni aldraðra. Málefni fatlaðra. Vegamál. 2

  3. Staða Mosfellsbæjar Í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu

  4. Erfiðleikarnir vegna ástandsins hafa mikil áhrif á sveitarfélög • Fjárhagsáætlanir í óvissu. • Tekjur minnka verulega. • Fjármögnun í óvissu. • Samstaða mikilvæg. • Kjarasamningar í farvatninu. • Gjaldskrár þarf að skoða. • Samráð við ríkisvaldið mikilvægt.

  5. Gera má ráð fyrir um 5-10% halla • Gera má ráð fyrir 200-300 milljóna króna halla á rekstri Mosfellsbæjar á næsta ári, ef miðað er við eftirfarandi forsendur: • Óbreyttar tekjur. • Óbreytt framlag jöfnunarsjóðs. • Frystingu gjaldskrár vegna grunnþjónustu. • Hækkun launa vegna kjarasamninga. • Hækkunar verðlags.

  6. Sameiginlegir hagsmunir ríkis og sveitarfélaga • Skoða þarf lagarammann til að heimila sveitarfélögum að skila sveitarsjóðum í halla í aðstæðum sem þessum. • Sameiginlegir hagsmunir ríkis og sveitarfélaga að halda óbreyttu þjónustustigi þrátt fyrir ástandið.

  7. Hvaða væntingar eru gerðar til sveitarfélaganna? • Er ekki nauðsynlegt að sveitarfélögin haldi því atvinnustigi sem þau hafa veitt? • Hvaða væntingar hefur ríkið til sveitarfélaganna á þessum tímum?

  8. Skuldastaða • Mosfellsbær hefur ekki tekið lán síðan 2004. • Unnið hefur verið jafnt og þétt að því að greiða niður lán til þess að styrkja sveitarfélagið í uppbyggingu til framtíðar. • Það kemur sér vel nú, þegar áhrif hremminga á íslenskt samfélag fara að gera vart við sig í Mosfellsbæ.

  9. Áhætta vegna lóðamála • Áhætta Mosfellsbæjar vegna lóðamála er lítil því sérstakur samningur er milli landeigenda og sveitarfélagsins um uppbyggingu. • Undanfarin ár hefur sveitarfélagið því takmarkað áhættu sína hvað varðar lóðir. • Aðeins einni íbúðalóð hefur verið skilað inn til sveitarfélagsins. • Atvinnulóðum hinsvegar verið skilað.

  10. Eiginfjárhlutfall • Eiginfjárhlutfall sveitarsjóðs hefur frá árinu 2002 hækkað úr 15% í 42%. • Skuldir og skuldbindingar Mosfellsbæjar á hvern íbúa hafa frá árinu 2002 lækkað úr 635.500 kr. í 383.000 kr. á núgildandi verðlagi.

  11. Rekstur 2008 innan fjárheimilda • Gert var ráð fyrir að almennur rekstur sveitarfélagins á árinu 2008 verði innan fjárheimilda. • Drög að níu mánaða uppgjöri bendir til að það takist en óljóst með síðustu þrjá mánuði ársins. • Fjármagnsliðir munu breytast verulega í ljósi breyttra forsendna í þjóðfélaginu.

  12. Gjaldskrár óbreyttar • Ekki stendur til að hækka gjaldskrár á árinu 2008 fyrir þá þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á þrátt fyrir mikla verðbólgu og annan kostnaðarauka sveitarfélagsins. • Mosfellsbær mun leitast við að tryggja áframhaldandi góða þjónustu sem íbúar eiga að venjast.

  13. Framkvæmdir • Áfram verður haldið með þær framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem þegar eru hafnar. • Ekki verður ráðist í nýjar framkvæmdir nema fjármögnun þeirra sé tryggð.

  14. Næstmest fjölgun • Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins með um 8625 íbúa og hefur þeim fjölgað um tæp 60% á síðustu tíu árum. • Í aðeins einu öðru sveitarfélagi á landinu, Álftanesi, hefur íbúum fjölgað hlutfallslega meira en í Mosfellsbæ á undanförnum áratug.

  15. Ráðgjafartorg • Samráðshópur Mosfellsbæjar vegna aðstæðna í þjóðfélaginu

  16. Umbrotatímar • Mosfellsbær undirbýr sveitarfélagið undir það sem koma skal. • Samfélagsverkefni á heimaslóð sem sveitarfélagið hefur haft frumkvæði að. • Stofnaður samráðshópur með sveitarfélagi, kirkju, heilsugæslu, Rauða krossinum og félagasamtökum.

  17. Upplýsingaveita • Sett upp heimasíða: www.mos.is/radgjafartorg • Upplýsingaveita fyrir íbúa og þjónustuver. • Hugað að ráðgjöf og ráðum fyrir íbúa. • Hugað að ráðum fyrir stofnanir.

  18. Styrkjandi viðburðir • Fyrirhugaðir viðburðir sem styrkja, gleðja, gefa ráð og eru styðjandi. • Mosfellsbær er menningarbær sem mun leita til síns fólks, í leit að stuðningi hvert við annað.

  19. Úr bréfi frá bæjarstjóra til starfsfólks • Sjaldan hefur verið jafn mikil þörf á og nú að við tileinkum okkur þau gildi sem Mosfellsbær stendur fyrir: virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja. • Við berum virðingu fyrir tilfinningum og aðstæðum hvors annars. • Við reynum að tileinka okkur jákvæðni í samskiptum hvort við annað. • Við trúum því að við munum sækja fram að nýju. • Við sýnum hvort öðru umhyggju.

  20. Nýr framhaldsskóli • Gert er ráð fyrir að framhaldsskóli taki til starfa í Mosfellsbæ 2009

  21. Starfsemi hefst í bráðabirgðahúsnæði • Samkvæmt samkomulagi milli ríkis og Mosfellsbæjar mun skólinn hefja starfsemi sína í bráðabirgðahúsnæði næsta haust. • Samtímis fer fram hönnun byggingar í samræmi við samkomulag menntamálaráðuneytis og Mosfellsbæjar. • Staða skólameistara hefur verið auglýst.

  22. Skólagerð, bygging og kennsluhættir ríma saman • Lögð er áhersla á að byggja á skóla þar sem skólagerð, skólabygging og kennsluhættir ríma saman. • Hugað verður að nýsköpun í byggingu, kennsluháttum og innhaldi náms. • Skólinn hafi sérstöðu á landsvísu og á höfuðborgarsvæðinu.

  23. Auðlindir og umhverfi • Hugmyndir Mosfellsbæjar ganga út á að skólinn kenni sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi, bæði í náttúru sem og umhverfi mannsins og sjálfbæra menningu.

  24. Stólpar framhaldsskóla í Mosfellsbæ • Umhverfis- og auðlindabraut. • Vistfræðilegum, efnahagslegum og félagslegum þáttum, sem forsendur sjálfbærrar þróunar, fléttað saman. • Menningarbraut. • Með áherslu á listir og menningu. • Lýðheilsubraut. • Með áherslu á heilsu, íþróttir, útivist og ferðamennsku.

  25. Krikaskóli NNýr valkostur í skólakerfinu – sniðinn að þörfum nútímasamfélags

  26. Byltingarkenndur skóli • Krikaskóli er frábrugðinn öllum öðrum skólum á Íslandi að því leyti að í honum verður boðið upp á nám fyrir eins til níu ára börn. • Skólaárið og skóladagurinn verður miðað við það sem þekkist í leikskólum og stefnt að því að veita öllum börnum skólans heilsdagsþjónustu. • Markmiðið er að nútímaskóli eigi alltaf að vera tilbúinn að aðlaga sig að samfélagsbreytingum.

  27. Bygging skólans hafin • Fyrsta skóflustungan var tekin 25. september og verður skólahúsnæði tilbúið næsta haust • Skólinn tók til starfa í tímabundnu húsnæði í sumar.

  28. Skólalóðin hluti af kennslurými • Einstakt tækifæri til að laga hönnun skólans, byggingu og skólalóð, að hugmyndafræði skólans, þannig að skólabyggingin styðji þær aðferðir og leiðir sem farnar verða í skólastarfinu. • Skólalóðin er uppbyggð sem hluti af náms- og kennslurými auk þess sem það verður notað sem leiksvæði barnanna.

  29. Eftirvænting í skólasamfélaginu • Mikil eftirvænting meðal foreldra og áhugamanna um skólamál víðs vegar um landið. • Fyrirhugað er að þróa þessa aðferðarfræði í nýjum skólum í Mosfellsbæ: • Að skólinn aðlagi sig að þörfum samfélagsins hverju sinni, í þjónustu og námsumhverfi.

  30. Málefni aldraðra í Mosfellsbæ NNýtt hjúkrunarheimili í undirbúningi

  31. Öldrunarsetur í Mosfellsbæ • Rammasamningur Mosfellsbæjar og Eirar hjúkrunarheimilis gerður 2005 • Markmið að byggja upp og reka þjónustu fyrir aldraða í Mosfellsbæ • 38 öryggisíbúðir teknar í notkun vorið 2007. • Hugmyndin að Eir kæmi að byggingu hjúkrunarheimilis

  32. Þjónustusamningur við Eir • Samþætting félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar • Félagsleg heimaþjónusta í Mosfellsbæ, veitt af Eir hjúkrunarheimili skv. samningi frá 1. janúar 2007. • Heimahjúkrun í íbúðum aldraðra veitt af Eir, hjúkrunarheimili skv. samningi við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá 1. janúar 2007. • Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt auknu fjármagni til heimahjúkrunar í Mosfellsbæ til að mæta núverandi þörf.

  33. Hjúkrunarheimili • Fjárlög 2008 - 93 milljónir til hönnunar og byggingar 20 rýma hjúkrunarheimilis. • Ný áætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 30 rýmum skv. leiguleið. • Stefnt að því að framkvæmdum verði lokið í upphafi árs 2010. • Frumdrög teikninga liggja fyrir: • 40 hjúkrunarrými, fjórar 10 manna einingar. • 20 dagvistarrými. • Aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra.

  34. Málefni fatlaðra í Mosfellsbæ NNærþjónusta við fatlaða

  35. Óhagræðing vegna skiptingar þjónustu milli ríkis og sveitarfélaga • Þjónusta við fatlaða í Mosfellsbæ dreifð um höfuðborgarsvæðið. • Óhagræði fyrir þá sem þjónustunnar njóta. • Kostnaðarsamt og skerðing á lífsgæðum.

  36. Hugsanleg framtíðarúrræði í Mosfellsbæ • Endurskilgreining á hlutverki Skálatúns m.t.t. nærþjónustu við fatlaða íbúa Mosfellsbæjar. • Hæfingarmiðstöð. • Skammtímavistun.

  37. Samþætting þjónustu • Þeir sem þekkja vel til í málefnum fatlaðra myndu vilja vilja að ábyrgðin á málaflokknum yrði hjá sveitarfélögunum því auðveldara að samþætta þjónustuna sem ætla má að leiði til betri nýtingar fjármagns.

  38. Vegamál í Mosfellsbæ VVesturlandsvegur, umferðaröryggi og hjólreiðastígar

  39. Þingsályktunartillaga um Vesturlandsveg • Í framhaldi af þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2007-2010 fól samgönguráðuneytið Vegagerðinni, með bréfi dagsett 4. apríl 2007, að hefja undirbúning útboðs að tvöföldun Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar út frá Reykjavík.

  40. Ánægja með ákvörðun Alþingis • Ennfremur var í bréfinu farið fram á að nú þegar yrðu hafnar viðræður við sveitarfélög á viðkomandi svæðum um skipulagsmál vegna legu veganna og tenginga við nærliggjandi byggð. • Eins og gefur að skilja var mikil ánægja með ákvörðun Alþingis meðal Mosfellinga þar sem nú loksins hyllti í frekari úrbætur á Vesturlandsvegi.

  41. Frumhönnun í endurskoðun • Í kjölfar bréfs samgönguráðuneytis endurútgaf Vegagerðin frumhönnun af tvöföldun Vesturlandsvegar milli Skarhólabrautar og Þverholts. • Því miður var útgáfa frumhönnunar gerð án samráðs við sveitarfélagið Mosfellsbæ en er nú í endurskoðun eftir áskorun frá Mosfellsbæ þess eðlis.

  42. Hljóðvörnum ábótavant • Mikið hitamál fyrir íbúa og spurning um lífsgæði. • Mosfellsbær greiðir allan kostnað við hljóðvarnir vegna hávaðar frá Þjóðvegi nr.1, Vesturlandsvegi, innan bæjarmarkanna. • Búið að opna fyrir það í nýju lögunum að ríkið taki þátt og samgönguráðuneytið sýnir því skilning. • Skortur á að Vegagerðin framfylgi þessu samkvæmt breytingunum.

  43. Ríkið kosti nauðsynlegar hljóðvarnir • Mosfellsbær gerir því eðlilega þá kröfu að kostnaður við nauðsynlegar hljóðvarnir sé greiddur af ríkinu, enda óásættanlegt að varpa þeim kostnaði á sveitarfélagið þar sem um er að ræða þjóðveg númer eitt sem liggur í gegn um bæinn og verður ekki færður.

  44. Umferðaröryggi óásættanlegt • Umferðaröryggi á Vesturlandsvegi í gegnum Mosfellsbæ er ekki ásættanlegt. • Hringtorg við Varmá þarf að stækka, malbika Ullarnesbrekku, bæta lýsingu og göngutengingar yfir/undir Vesturlandsveg og jafnframt strætóútskot. • Umferðaröryggi og hljóðvist mætti bæta með tiltölulega ódýrum framkvæmdum.

  45. Hjólreiðastígar • Á tímum aukinnar heilsueflingar og hækkandi bensínverðs er mælst til þess að menn noti reiðhjólið sem samgöngumáta í auknum mæli. • Því miður er ekki að finna hjólreiðastíga meðfram þjóðvegum sem hægt er að nýta sem samgöngumáta milli sveitarfélaga og í og úr vinnu.

  46. Samstaða Rétt eins og Mosfellsbær hvetur til samstöðu innan sveitarfélagsins á erfiðum tímum þá leggjum við áherslu á að sveitarfélagið er boðið og búið til samstarfs og samstöðu með ríkisvaldinu um það sem bíður okkar við þær aðstæður sem hafa skapast. 50

More Related