1 / 62

Sól, tungl og stjörnur 3 – 1 Sólkerfið verður til

Sól, tungl og stjörnur 3 – 1 Sólkerfið verður til. Geimþokukenningin gerir ráð fyrir því að sólkerfið eigi upptök sín í gífurlegu gasskýi sem kallast geimþoka . Efnið í sólkerfinu sem varð til var að mestu leyti til úr vetni og helíni.

paxton
Télécharger la présentation

Sól, tungl og stjörnur 3 – 1 Sólkerfið verður til

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Geimþokukenningin gerir ráð fyrir því að sólkerfið eigi upptök sín í gífurlegu gasskýi sem kallast geimþoka. Efnið í sólkerfinu sem varð til var að mestu leyti til úr vetni og helíni. • En okkar sólkerfi er gert úr þungum frumefnum sem myndast hafa við sprengingu sprengistjörnu fyrir meira en 4,6 milljarða ára. Kennari: Eggert J Levy

  2. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Auk þungu efnanna sendi sprengistjarnan frá sér höggbylgju sem varð til þess að kekkjamyndun fór af stað og að geimþokan fór að snúast hraðar um miðju sína fyrir tilstuðlan þyngdarkraftsins. • Sólin myndaðist fyrst. Kennari: Eggert J Levy

  3. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Þegar frumsól hafði myndast hélt rykið og gasið kringum hana áfram að snúast. Kekkjamyndun fór af stað og frumreikistjörnur mynduðust. • Þeir frumreikistjörnuvísar sem næst voru sólu misstu mest af léttustu gastegundunum sem gufuðu upp vegna hitageislunar. • Þær urðu að innri reikistjörnunum. Kennari: Eggert J Levy

  4. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Hinir reikistjörnuvísarnir sem fjær voru sólu urðu fyrir minni áhrifum. Léttu gösin tolldu við þær vegna minni áhrifa sólar og mikils þyngdarkrafts og því urðu þær risastórar. • Þær reikistjörnur urðu ytri reikistjörnurnar. • Með kólnun reikistjörnuvísanna mynduðust kringum þær minni efniskekkir sem urðu fylgihnettir þeirra eðatungl. Kennari: Eggert J Levy

  5. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Aðrir efniskekkir mynduðust víðsvegar í sólkerfinu svo sem á belti milli Mars og Júpíters, svo kallað smástirnabelti. Kennari: Eggert J Levy

  6. Sól, tungl og stjörnur3 – 1 Sólkerfið verður til • Enn utar á mörkum sólkerfisins urðu síðan til efniskekkir gerðir úr ís og gasi, svo kallaðar halastjörnur. • Sólkerfiðnær yfir sólina, reikistjörnurnar og aðra hluti en reikistjörnurnar sem eru á braut um sólu;tungl, fylgihnettir, geimgrýti í smástirnabeltinu og halastjörnur. Kennari: Eggert J Levy

  7. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Reynsla manna leiddi til þess að menn ályktuðu sem svo að jörðin væri hnöttótt t.d. þegar menn komu af hafi reis landið úr sæ. • Annað sem styður þessa kenningu er skuggi jarðar í tunglmyrkva. • Enn annað er að þegar farið er beint í norður hækkar Pólstjarnan um 1º fyrir hverja 111 km sem farið er eða um eina breiddargráðu. Kennari: Eggert J Levy

  8. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna Kennari: Eggert J Levy

  9. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Jarðmiðjukenninginer runnin frá Aristótelesi og stjörnufræðingnum Ptólemaíosi. • Kenningin gerir ráð fyrir hringhreyfingu sem var talin eðlileg hreyfing himinhnattanna. • Samkvæmt kenningunni gengu reikistjörnurnar umhverfis jörðu líkt og sólin. Kennari: Eggert J Levy

  10. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Sólmiðjukenningin gerir ráð fyrir því að sólin sé miðja alheimsins og að reikistjörnurnar séu ábraut um hana en tunglið á braut um jörðu. • Kóperníkusákvarðaði hlutföllin á brautum reikistjarnanna og umferðartíma þeirra. Kennari: Eggert J Levy

  11. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Umferðartími er sá tími sem það tekur reikistjörnu að fara eina umferð um sól (t.d. tekur það jörðina eitt ár). • Reikistjörnur snúast einnig um möndul sinn, sá tími sem það tekur er nefndur sólarhringur. • Kóperníkus hélt sig við hugmyndir forn Grikkja um hringlaga braut. Kennari: Eggert J Levy

  12. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Jóhannes Keplerkom fram með þá hugmynd að brautir reikistjarnanna væru sporbaugur. • Kepler setti fram þrjú lögmál s.k. reynslulögmál sem við hann eru kennd, þau fjalla um brautir reikistjarnanna, umferðartíma og hraða. • Kepler gat ekki skýrt hvers vegna reikistjörnurnar héldust á brautum sínum. Kennari: Eggert J Levy

  13. Sól, tungl og stjörnur3 – 2 Hreyfingar reikistjarnanna • Isak Newton skýrði brautarhreyfinguna út frá tveimur lögmálum. • Tregðulögmálið segir að hlutur á hreyfingu ferðast eftir beinni braut með jöfnum hraða nema utan að komandi kraftur verki á hann. Sá kraftur er þyngdarkraftur en hann togar í reikistjörnuna og breytir stöðugt stefnu hennar. Þyngdarlögmal Newtons skýrir þessa krafta. Kennari: Eggert J Levy

  14. Sól, tungl og stjörnur3 – 3 Yfirlit um sólkerfið Svarið eftirfarandi spurningum 1. Hvaða reikistjörnur eru svipaðar að stærð, tvær og tvær? 2. Hvaða reikistjarna er um það bil helmingi minni en jörðin? 3. Hvaða reikistjarna er um það bil 10 sinnum stærri að þvermáli en jörðin? 4. Hvað er sérstakt við umferðatíma reiki-stjarnanna eftir því sem þær eru fjær sól? Kennari: Eggert J Levy

  15. Sól, tungl og stjörnur3 – 3 Yfirlit um sólkerfið 5. Takið þið eftir svipuðu mynstri með snúningstímann? 6. Hvaða reikistjarna hefur lengsta snúningstímann? Hversu langur er hann? 7. Hvaða tvær reikistjörnur hafa stysta snúningstímann? Kennari: Eggert J Levy

  16. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Merkúr eða merkúríus er sú reikistjarna sem er næst sólinni. Umferðarhraðinn er 48 km/s og umferðartíminn 88 jarðardagar. • Merkúríus dregur nafn sitt af sendiboða guðanna hjá Rómverjum vegna umferðahraða hans um sólu. Kennari: Eggert J Levy

  17. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Vegna nálægðar hnattarins við sól reyndist erfitt að kanna yfirborð Merkúr fyrr en geimkönnuðurinn Mariner 10 tók myndir af yfirborðinu. • Yfirborðið hans er alsett gígum, löng klettabelti teygja sig hundruði kílómetra eftir yfirborðinu en einnig eru sléttur sem benda til eldvirkni fyrir milljörðum ára. Kennari: Eggert J Levy

  18. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Möndulsnúningur Merkúr er afar hægur eða 59 jarðardagar, þannig að hnötturinn snýst þrjá hringi um möndul sinn fyrir hverjar tvær umferðir. • Þetta leiðir til þess að sólin kemur upp með 176 jarðardaga millibili. • Afleiðingarnar eru þær að yfirborð Merkúr nær að hitna verulega eða allt að 427ºC meðan skuggahliðin kólnar niður í -170ºC. Kennari: Eggert J Levy

  19. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Venus fer líkt og Merkúr ekki langt frá sól þar sem braut hans er innar en jarðar. • Venus svipar um margt til jarðar. Yfirborð Venusar er hulið þykkum lofthjúpi sem gert hefur könnun þess erfitt viðfangs. Kennari: Eggert J Levy

  20. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Geimför hafa bætt kunnáttu okkar á yfirborðinu síðustu árin. • Mælingar hafa leitt í ljós að vindhraði í efstu lögum lofthjúpsins er um 350 km/klst. Kennari: Eggert J Levy

  21. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Skýjahulan á Venuser gerð úr brennisteinsgufu sem aldrei nær að þéttast og rigna á yfirborðið vegna mikils þrýstings sem er nítugfaldur miðað við aðstæður hér og yfirborðshita sem er 480ºC. • Þessu veldur samsetning lofthjúpsins næst yfirborðinu sem er að mestu koltvíoxíð. Yfirborðið er alsett gígum og gljúfrum auk mikilla hásléttna. Kennari: Eggert J Levy

  22. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Möndulsnúningur Venusar er svo kölluð bakhreyfing og er afar hæg eða 243 jarðardagar. • Venus er ólíkur jörðinni að því leyti að snúastfrá austri til vesturs, sólin kemur því upp í vestri og sest í austri. • Gróðurhúsaáhrif komu þar fram fyrir milljörðum ára þegar vatn gufaði upp og safnaðist fyrir í lofthjúpnum. Kennari: Eggert J Levy

  23. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Mars er stundum nefnd rauðleita stjarnan. • Ástæðan þess er sú aðryð (eða járnoxíð) hylur yfirborð hnattarins. Kennari: Eggert J Levy

  24. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Þessi mynd af tunglinu og Mars var tekin á Þingvöllum að kvöldi 6. október 2003. Kennari: Eggert J Levy

  25. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Vatn finnst nú einungis sem ís við pólana þó svo að myndir af yfirborðinu sýni rásir og farvegi sem bendi til þess að vatn hafi runnið um það forðum. • Á Mars eru stór eldfjöll þau stærstu í sólkerfinu sem ekki eru virk þessa stundina. • Á yfirborði Mars geisa vindar með miklum hraða allt að 200 km á klst. þeir geta þyrlað upp miklu ryki sem nær yfir allan hnöttinn. Kennari: Eggert J Levy

  26. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Lofthjúpurinn Mars er þunnur aðallega gerður úr koltvíoxíð, svolítið af nítur og argon, einnig örlítið af vatnsgufu og súrefni. • Innri reikistjörnur sólkerfisins eru: Merkúríus, Venus, jörð og Mars taldar upp í vaxandi fjarlægð frá sól. Jörðin er þeirra stærst. Kennari: Eggert J Levy

  27. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Smástirnabeltið liggur milli Mars og Júpíters og er gert úr grjóti og málmum, og gengur umhverfis sólu. Stærstu þeirra eru um 1000 km í þvermál svo sem Seres en flest eru mun minni. • Forðum hugðu menn að þau væru leifar reikistjörnu sem hafði sundrast við árekstur en nú hallast menn að því að þau séu efniskekkir sem ekki urðu að reikistjörnum í árdaga. Kennari: Eggert J Levy

  28. Sól, tungl og stjörnur3 – 4 Innri reikistjörnurnar • Sum þessara smástirna fara út af brautum sínum og rekast á, t.d. jörðina, en um 70 ör hafa fundist á yfirborði jarðar eftir smástirni. Kennari: Eggert J Levy

  29. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Á slóðum ytri reikistjarnanna nær sólarhitinn ekki að hrekja létt gös líkt og innan til í sólkerfinu. • Efnið í ytri reikistjörnunum eru því storkin og miklu þéttari gös. • Þetta leiddi til þess að ytri reikistjörnurnar urðu miklu massameiri og stærri en innri reikistjörnurnar og efnasamsetning þeirra allt önnur. Kennari: Eggert J Levy

  30. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Júpíter Af þeim 2 ‰ efna í sólkerfinu sem er utar sólu eru 70% í Júpíter. Reikistjarnan er að mestu gerð úrvetni og helíni. • Þrátt fyrir mikinn kulda í efstu lögum er hitinn nærri 30000 ºC í miðju. • Hefði Júpíter orðið stærri gæti kjarnasamruni hugsanlega hafa farið af stað og hefði þá sólkerfið verið tvístirna sólkerfi. Kennari: Eggert J Levy

  31. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Júpíter er stærsta reikistjarnan í sólkerfinu. • Rauði flekkurinn er gríðarmikill stormsveipur sem geisar á Júpíter. Kennari: Eggert J Levy

  32. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Efstu lög Júpíters eru gerð úr ammoníakkristöllum og mynda ljósar og dökkar rendur á víxl, þetta mynstur er síbreytilegt en rauði flekkurinn á suðurhveli hefur verið til staðar í að minnsta kosti 300 ár. Kennari: Eggert J Levy

  33. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Könnunarfarið Voyager leiddi í ljós flatan hring í kring um Júpíter, miklar eldingar í gashjúpnum og firnastór glitrandi lög á himninum. Kennari: Eggert J Levy

  34. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Júpíter hefur um sig gríða sterkt segulsviðsem nær milljónir km. út frá reikistjörnunni. Kennari: Eggert J Levy

  35. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Tungl Júpíters eru 16 (að minnsta kosti) en 4 þau stærstu kallast Galileiótunglin. • Þau eru……….> Kennari: Eggert J Levy

  36. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar Tungl Júpíters Jó (Ió) Evrópa Ganýmedes Kallistó Kennari: Eggert J Levy

  37. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Jóer innst, einn eldvirkasti hnöttur sólkerfisins, eldvirknina á Jó að þakka sterkum flóðkröftum fyrir tilstilli þyngdarkrafts Júpíters. Kennari: Eggert J Levy

  38. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Evrópakemur næst hún er eldvirken spýr vatni og ammoníaki. Kennari: Eggert J Levy

  39. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Þá kemurGanýmedesstærsta tungl sólkerfisins, þar má sjá merki eftir jarðskjálfta. Kennari: Eggert J Levy

  40. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Yst er Kallistó alsett gígum. Kennari: Eggert J Levy

  41. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • SatúrnusHelstu einkenni hnattarins eru hringirnir gerðir úr ísögnum mismunandi að stærð. • Hringirnir eru 7 en hver þeirra er gerður úr smærri hringjum. Kennari: Eggert J Levy

  42. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Líkt og Júpíter snýst Satúrnus hratt um möndul sinn og er aðallega gerður úr vetnis- og helíngasi. Kennari: Eggert J Levy

  43. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Vegna snúningshraðans er hnötturinn flatur til pólanna og í lofthjúpinum geisa vindar sem ná allt að 1800 km/klst hraða þetta er 4 sinnum hraðari vindar en þekkjast á Júpíter. • Satúrnusi svipar um margt til Júpíters hvað varðar skýjahulu og segulsvið. • Satúrnus er næststærsta reikistjarnan í sólkerfinu. Kennari: Eggert J Levy

  44. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Satúrnus hefur flest tungl. • Tungl hans eru 18 (að minnsta kosti), stærst þeirra er Títan með allverulegan gashjúp úr metani og fleiri efnasamböndum. • Lofthjúpurinn er talinn svipa til lofthjúps jarðar fyrir daga lífsins. Kennari: Eggert J Levy

  45. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Úranus Hnötturinn fannst undir lok 18. aldar. • Tungl Úranusar eru 17 allmisjöfn að stærð. Kennari: Eggert J Levy

  46. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Gashjúpurinn er blágrænn að lit aðallega úr metani, helín og vetni. • Hitinn getur farið niður í -210ºC efst í skýjahulunni. Kennari: Eggert J Levy

  47. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Undir skýjahulunni er úthaf um 8000 km djúpt og umlykur kjarnann sem er úr bráðnu eða storknuðu bergi. Þetta haf er yfirhitað sem kallað er og merkir að hitinn er yfir 100°C í krafti mikils þrýstings. • Úranus hefur um sig hringi líklega gerða úr metanís. • Möndulhalli Úranusar er svo mikill að hann liggur eiginlega á hliðinni. Kennari: Eggert J Levy

  48. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Neptúnus Þegar brautarreikningar Úranusar stemmdu ekki við raunveruleikann tóku stjörnufræðingar að gera ráð fyrir reikistjörnu utar sem hafði áhrif á Úranus. Kennari: Eggert J Levy

  49. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Þessi stjarna var Neptúnus sem fannst 1846, er stór og bláleitur, nefnd eftir sjávarguð Rómverja. Kennari: Eggert J Levy

  50. Sól, tungl og stjörnur3 – 5 Ytri reikistjörnur og annars konar • Á Neptúnusi er haf úr fljótandi vatni og metani en þar undir er bergkjarni. • Í lofthjúpinum fljóta metanský í vetni og helíni. Hitinn efst í lofthjúpnum er -220ºC. • Neptúnus hefur um sig hringi úr rykögnum. • Neptúnus hefur 8 tungl stærst er Tríton sem er sérstætt fyrir þær sakir að það hreyfist í gagnstæða stefnu við möndulsnúning Neptúnusar. Kennari: Eggert J Levy

More Related