1 / 24

Fræðslu- og menningarmál

Fræðslu- og menningarmál. Leikskólar Grunnskólar Tónlistarskólar Söfn, m.a. bókasöfn. Leikskólar. Staða Leikskólar á öllum 4 þéttbýlisstöðunum og leikskóladeildir í Laugargerði og á Lýsuhóli Unnið er gott og metnaðarfullt starf og hlutfall leikskólakennara fer hækkandi

swain
Télécharger la présentation

Fræðslu- og menningarmál

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Fræðslu- og menningarmál • Leikskólar • Grunnskólar • Tónlistarskólar • Söfn, m.a. bókasöfn

  2. Leikskólar • Staða • Leikskólar á öllum 4 þéttbýlisstöðunum og leikskóladeildir í Laugargerði og á Lýsuhóli • Unnið er gott og metnaðarfullt starf og hlutfall leikskólakennara fer hækkandi • Ný viðbygging í Ólafsvík. Unnið að byggingu nýs leikskóla í Stykkishólmi og viðbyggingu á Hellissandi. Búið er að hanna stækkun í Grundarfirði. Þessar framkvæmdir munu uppfylla þarfir fyrir aðstöðu til næstu ára. • Þjónusta leikskólanna á þéttbýlisstöðunum er sambærileg, nema að miðað er við 18 mánaða í Stykkishólmi en 2 ára í hinum sveitarfélögunum. • Leikskóladeildirnar í dreifbýlinu njóta faglegs stuðnings frá stjórnendum grunnskólanna

  3. Leikskólar • Úr ársreikningum 2003 – í þús. kr. • Vistunargjöld standa undir 29 – 33% rekstrarkostnaðar Heimild: Árbók sveitarfélaga 2004

  4. Leikskólar • Hlutfall fagmenntaðra haust 2004 Heimild: Upplýsingar frá leikskólastjórum

  5. Leikskólar • Framtíðarhorfur • Árgangar hafa farið minnkandi, bæði í dreifbýli og þéttbýli • Framhald leikskóladeilda í dreifbýlinu byggir á því að grunnskólarnir starfi áfram • Aukin áhersla á faglegt starf og vaxandi kröfur yfirvalda s.s. gerð námsskrár • Stigvaxandi þörf fyrir ýmsa stuðnings- og sérkennslu – er fyrirbyggjandi að byrja strax á leikskólastigi • Verða faglega sterkari með aukinni menntun starfsfólks • Nokkur sveitarfélög eru farin að bjóða leikskólavistun 5 ára barna frítt að hluta. Hugsanlega munu önnur sveitarfélög fylgja í kjölfarið. • Aukin viðurkenning á leikskólum sem fyrsta skólastiginu

  6. Grunnskólar • Staða • Grunnskólarnir í Ólafsvík og á Hellissandi voru sameinaðir á þessu ári. Yngri deild á Hellissandi og eldri deild í Ólafsvík. Var talsverð andstaða í fyrstu en virðist gefast vel • Lýsuhólsskóli er sjálfstæður. Endurskoðun 2007 Nemendum fækkar • Grunnskólinn í Stykkishólmi rekinn á tveimur stöðum • Helgafellssveit á aðild að Grunnskólanum í Stykkishólmi. Nemendum fækkar • Laugargerðisskóli: Byggðasamlag Eyja- og Miklaholtshrepps og Kolbeinsstaðahrepps. Nemendum fækkar

  7. Grunnskólar • Staða – frh. • 75 – 97% kennara með réttindi • Til lengri tíma litið er stefnt að því að Grunnskólinn í Stykkishólmi verði á einum stað. Stærri framkvæmdum á öðrum stöðum er ýmist lokið, þær þegar hafnar eða áætlaðar • Sambærileg þjónusta varðandi dagvist og mötuneyti • Skólaakstur á bilinu 15 – 30 km. hvora leið • Fækkun nemenda í dreifbýlinu kallar á breytingar án tillits til sameiningar

  8. Grunnskólar • Úr ársreikningum 2003 – í þús. kr. Heimild: Árbók sveitarfélaga 2004

  9. Grunnskólar • Framtíðarhorfur • Skólastarf er mjög bundið af lögum og námskrá og formlegar kröfur í skólastarfi fara vaxandi, t.d. sjálfsmat • Nýjar áherslur í skólastarfi geta af sér breytingar á kennsluháttum og námsmati. Dæmi: Skóli án aðgreiningar og einstaklingsmiðað nám • Þörf fyrir betri samtengingu skólastarfs og tómstunda • Kennsluhættir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga gætu haft áhrif á kennsluhætti í grunnskólunum • Nemendum mun fækka í dreifbýlinu, sem kallar á endurskoðun skólastarfs á Lýsuhóli og í Laugargerði, án tillits til sameiningar • Spurning hvað nýir kjarasamningar kennara boða?

  10. Skólamál í dreifbýlinu • Æskilegt væri að stefna að því að verði a.m.k. einn grunnskóli á sunnanverðu Snæfellsnesi • Hvor skólinn sem er, Lýsuhólsskóli eða Laugargerðisskóli getur þjónað öðrum nemendum á sunnanverðu Nesinu • Fækkun nemenda mun líklega gerast fyrr á Lýsuhóli • Ýmsir valkostir koma til greina, en þá þarf að skoða nánar með íbúum og í ljósi niðurstaðna sameiningarkosninga • Grunnskólarnir í dreifbýlinu eru eitt mikilvægasta byggðamálið í þeim samfélögum sem þar eru

  11. Tónlistarskólar • Staða • Tónlistarskólar í öllum þremur þéttbýlis-sveitarfélögunum á norðanverðu Nesinu, hver um sig með ríflega 100 - 150 nemendur • Tónlistarskólar Hellissands og Ólafsvíkur sameinaðir 2003 • Tónlistarkennslu í Lýsuhólsskóla sinnt frá Snæfellsbæ og í Laugargerði frá Borgarnesi • 4 – 6 stöður kennara og skólastjóra við hvern skóla. Vantar blásturskennara í Snæfellsbæ og Grundarfirði • Engar framkvæmdir áformaðar, nema ef Tónlistarskólinn í Stykkishólmi yrði í nýrri viðbyggingu við Grunnskólann • Ekki verið auðvelt að sækja tónlistarskóla í öðrum sveitarfélögum vegna reglna um niðurgreiðslu

  12. Tónlistarskólar • Úr ársreikningum 2003 – í þús. kr. • Skólagjöld standa undir 13 - 16% rekstrarkostnaðar Heimild: Frá sveitarfélögunum

  13. Tónlistarskólar • Framtíðarhorfur • Ný viðfangsefni / nýir kennsluhættir með nýrri námskrá • Grunnnám í vaxandi mæli fært inn í grunnskólana og / eða samþætt skólastarfi • Starf tónlistarkennara hugsanlega lögleitt • Getur verið erfitt að fá fjölhæfa tónlistarkennara til starfa, en það er forsenda öflugra tónlistarskóla á minni stöðum • Með tilkomu Fjölbrautarskólans halda nemendur lengur áfram tónlistarnámi í heimabyggð.

  14. Samstarf • Leik-, grunn- og tónlistarskólar • Almennt er gott samstarf milli skólastiga innan hvers sveitarfélags og ágætt við tónlistarskóla • Mjög gott og vaxandi samstarf innan Snæfellsness, bæði formlegt og óformlegt, sprottið af áhuga stjórnendanna sjálfra • Skólarnir í dreifbýlinu eiga meira samstarf við fámenna skóla á Vesturlandi • Tónlistarkennarar og nemendur af Vesturlandi koma saman 1 x á ári

  15. Stjórnsýsla • Leik-, grunn- og tónlistarskólar • Sameiginlegar fræðslu- / skólanefndir leikskóla og grunnskóla á þéttbýlisstöðunum. Almennt talið gefast vel að hafa saman. Fræðslu- og menningarnefnd í Grundarfirði er einnig með tónlistarskóla og menningarmál. Sjálfstæðar skólanefndir tónlistarskóla í Snæfellsbæ og Stykkishólmi • Áheyrnarfulltrúar frá skólunum og foreldrum • Laugargerðisskóli, annars vegar skólanefnd og hins vegar stjórn byggðasamlags (rekstur) • 1 fulltrúi frá Helgafellssveit í fræðslunefnd í Stykkishólmi

  16. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga • Félagsþjónusta – tekið fyrir síðar • Skólar • Vægi félagsþjónustunnar er mikið og þyrfti að auka áherslu á skólaþjónustu, t.d. með skóla- og/eða leikskólaráðgjafa eða -fulltrúa • Leikskólastjórar vilja gjarnan meira faglegt aðhald og stuðning • Ánægja með fagþjónustu við skólana, s.s. sálfr. og talmeinak., nema mætti hugsanlega bæta framkvæmdina gagnvart leikskólunum • FSS kemur ekkert inn á starfsemi tónlistarskólanna

  17. Söfn • Safnamál að nokkru leyti sameiginleg í gegnum Héraðsnefnd • Bókasöfn • Öll þéttbýlissveitarfélögin reka bókasafn, auk skólabókasafna og bókasafns FSN. Starfsemi safnanna kallar á stórt húsnæði • Tekjur frá notendum standa aðeins undir broti af kostnaði • Hlutverk bókasafna er um margt að breytast, sem hefur áhrif á stefnumörkun, án tillits til sameiningar. • Auknar kröfur um að tengja starfsemi skólanna. • Mætti hugsanlega tengja margvíslegri starfsemi, s.s. safnahúsi, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn o.fl. • Hugsanlegt að sameining auðveldi söfnunum að laga sig að breyttum tímum

  18. Fræðslu- og menningarmál – ef sameinað • Samantekt

  19. Ef sameinað • Leikskólar • Leikskólar yrðu áfram sjálfstæðar einingar eftir sameiningu, a.m.k. fyrstu 10 árin • Má búast við að færa þyrfti aldursmörk í 18 mánuði á öllum þéttbýlisstöðunum • Fólk nýtir leikskóla næst heimili eða vinnu. Eitt atvinnusvæði > mætti bjóða val um leikskóla • Ekki hægt að greina neikvæðar afleiðingar af sameiningu sveitarfélaganna á starfsemi leikskóla, en kostnaður kynni að hækka, m.a. vegna lækkunar aldursmarka

  20. Ef sameinað • Grunnskólar • Stærsti óvissuþátturinn eru skólamál í dreifbýlinu, enda mun íbúaþróun kalla á endurskoðun án tillits til sameiningar • Niðurstöður sameiningarkosningar í Kolbeinsstaðahreppi hafa áhrif á stefnu varðandi Laugargerðisskóla • Sameining gæti skapað tækifæri til að styrkja skólana faglega • Ekki verður séð að möguleikar séu til lækkunar kostnaðar

  21. Ef sameinað • Tónlistarskólar • Sameining myndi skapa margvísleg tækifæri fyrir starfsemi tónlistarskólanna, t.d. að kennarar fari á milli • Yrði auðveldara að manna stöður með aukinni sérhæfingu, enda erfitt að fá fjölhæfa tónlistarkennara til starfa • Aukin fjölbreytni og gæði • Stjórnunarkostnaður myndi lækka en aksturskostnaður hækka • Skoða þarf málefni tónlistarskólanna á hverjum stað í samhengi við annað tónlistarlíf, t.d. stöður organista • Verði ekki af sameiningu er samt sem áður ástæða til að huga að frekara samstarfi, enda virðist möguleiki á að bæta þjónustu með aukinni fjölbreytni kennslugreina, en lækka rekstrarkostnað jafnframt

  22. Ef sameinað • Bókasöfn • Mótuð sameiginleg stefna fyrir bókasöfnin, sem miði að því að gera þau betur búin til að nýta sóknarfæri og ná fram hagræðingu • Ættu að vera ýmis tækifæri til lækkunar kostnaðar

  23. Ef sameinað • Fræðslu- og menningarmál - stjórnsýsla • Starfsemi FSS færi inn í stjórnsýsluna – ath. að það þarf þó ekki að þýða að hvorutveggja þyrfti að vera á sama stað • Stefnt yrði að einni sameiginlegri fræðslunefnd, a.m.k. fyrir hvert skólastig og hugsanlega sameiginlega fyrir leik- og grunnskóla. Spurning hvort fleiri málaflokkar yrðu undir • Starfsmaður innan stjórnsýslu yrði starfsmaður nefndarinnar, mögulega með fagþekkingu á sviði skólamála. Leysti fulltrúa skólanna af hólmi á fundum fræðslunefndar

  24. Ef sameinað • Fræðslu- og menningarmál – fjármál • Skólamálin eru stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í starfsemi sveitarfélaganna, eru frá 41 – 71% af kostnaði við rekstur málaflokka • Sú lækkun kostnaðar sem kynni að nást vegna færri fulltrúa í fræðslunefndum, gæti vegið á móti auknum kostnaði vegna nýs stöðugildis á sviði fræðslumála

More Related