1 / 19

Atvinnulíf og byggðaþróun

Atvinnulíf og byggðaþróun. 8. kafli. Barist við Breta. 1976 áttu sér stað mikil átök við Breta á Íslandsmiðum. Varðskip Íslendinga reyndu að stöðva veiðar Breta, meðan herskip vernduðu bresku togarana. Ástæðan var að íslensk stjórnvöld höfðu fært fiskveiðilögsöguna út í 200 mílur .

Télécharger la présentation

Atvinnulíf og byggðaþróun

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Atvinnulíf og byggðaþróun 8. kafli

  2. Barist við Breta • 1976 áttu sér stað mikil átök við Breta á Íslandsmiðum. • Varðskip Íslendinga reyndu að stöðva veiðar Breta, meðan herskip vernduðu bresku togarana. • Ástæðan var að íslensk stjórnvöld höfðu fært fiskveiðilögsöguna út í 200 mílur. • Íslendingar slitu stjórnmálasambandi við Breta en stuttu síðar náðist sátt sem tryggði Íslendingum fullan sigur.

  3. Miklar breytingar höfðu orðið á sjávarútvegi á 20. öldinni með stærri og öflugri bátum. • Fiskafurðir hafa lengi verið ein helsta tekjulind þjóðarinnar og því var það mikið hagsmunamál að ráða yfir sem stærstu svæði til fiskveiða. • Bretar höfðu veitt við Íslandsstrendur í hundruð ára og voru ósáttir við útfærsluna sem skerti möguleika þeirra á veiðum. • 1952 fiskveiðilögsagan 4 mílur • 1958 fiskveiðilögsagan 12 mílur • 1972 fiskveiðilögsagan 50 mílur • 1975 fiskveiðilögsagan 200 mílur

  4. Við erum háð miklum innflutningi og því er nauðsynlegt fyrir okkur að búa yfir öflugum útflutningi. • Á seinni hluta aldarinnar jókst þéttbýlis-myndun ört með mikilli fólksfjölgun og flutningi úr sveit í borg. • Reynt var að snúa þróuninni við með því að efla landsbyggðina en það tókst ekki. • Álverið í Straumsvík var reist 1969 til að reyna að auka fjölbreytni atvinnulífsins. • Með aukinni tæknivæðingu í landbúnaði • og sjávarútvegi þurfti færri til að sinna þeim • störfum og fleiri gátu sinnt öðrum störfum.

  5. Byggðaþróun • Með bættu velferðakerfi fjölgaði þjóðinni á seinni hluta 20. aldar. • Í framhaldi af því breyttist búseta Íslendinga. • Rúmlega 90% þjóðarinnar bjó í þéttbýli um aldamótin 2000. (60 % á höfuðborgarsvæðinu) • Þéttbýlisstaðir sem stóðu best voru þeir sem lágu vel við samgöngum og buðu upp á fjölbreytta atvinnu, þjónustu og menntun.

  6. Byggðaþróun • Reykjavík breyttist úr bæ í borg með vaxandi fólksfjölda. • Rvk. minnir á amerískar borgir þar sem bílaeign er mikil og byggð skiptist í atvinnu og íbúðahverfi andstætt evrópskum borgum með blandaðri byggð. • Byggðastefna íslenskra stjórnvalda hefur snúist um að styrkja ákveðin svæði í gegnum tíðina. • Fyrst voru sveitir styrktar, en eftir seinni heimstyrjöld fengu þéttbýlisstaðir á landsbyggðinni stuðning.

  7. Byggðastefna • Bæði var um að ræða beina styrki sem og hagstæð lán sem sjávarútvegurinn notaði til að fjárfesta í bátum, togurum, höfnum og frystihúsum. • Samgöngur voru einnig stórbættar sem og lagning rafmagns og símalína. • Byggðastofnun var sett á laggirnar til að halda utan um faglegan og fjárhagslegan stuðning við landsbyggðina. • Loðdýrarækt • Fiskeldi • Byggðastefnan bar ekki tilætlaðan árangur.

  8. Samgöngur • Landið var erfitt yfirferðar og samgöngur helstar á sjó og á bílum á þéttbýlisstöðum. • 1919 kom fyrsta flugvélin kom til landsins og 1937 hófst samfelldur flugrekstur á Íslandi. • Sjóvélar þar til flugvellir voru byggðir í seinni heimsstyrjöldinni. • Vegakerfi batnaði eftir seinni heimsstyrjöldina og fleiri höfðu efni á bíl. • Bundið slitlag var sett á vegi og jarðgöng opnuðu leiðir sem áður voru torfærar.

  9. Landbúnaður • Minni þörf á vinnuafli með iðnvæðingunni. • Bændur gátu stækkað ræktarland sitt með tilkomu gröfunnar. • Kjúklinga- og svínarækt jókst til viðbótar við sauðfjár- og nautgriparækt. • Kartöflurækt • Gróðurhúsarækt

  10. Landbúnaður • Þrátt fyrir vélvæðinguna er íslenskur landbúnaður ekki hagkvæmur í samanburði við nágrannalöndin. • Miklir ríkisstyrkir, samt hátt verð á landbúnaðarafurðum og margir bændur hafa litlar tekjur. • Landbúnaður er einnig almennt ríkisstyrktur í öðrum löndum.

  11. Fiskveiðilögsagan • Fyrri hluta aldarinnar var landhelgi og fiskveiðilögsaga Íslands aðeins þrjár sjómílur. • Árið 1952 var fiskveiðilögsagan færð út í fjórarmílur(til að vernda fiskistofnana) • Bretar höfðu stundað fiskveiðar við Ísland frá því í byrjun 15. aldar og töldu sig því hafa sögulegan rétt til fiskveiða hér við land umfram aðra. • Bretar voru óánægðir með útfærslu fiskveiðilögsögunnar og settu löndunarbann á íslenskan fisk í Bretlandi og ætluðu með því móti að knýja Íslendinga til uppgjafar.

  12. Útfærsla landhelginnar • Íslendingar svöruðu fyrir sig með því að breyta um vinnsluaðferðir og leita nýrra markaða fyrir fiskinn. • Bandaríkin og Sovétríkin • Fiskveiðilögsagan var færð út í 12 mílur 1958 andstætt alþjóðalögum. • Mörg önnur strandríki vildu líka 12 mílna útfærslu en það fékkst ekki samþykkt hjá Sameinuðu þjóðunum.

  13. Þorskastríð • Ekki var hægt að semja um 12 mílna útfærslu við Breta og því var útfærslan einhliða. • Bretar settu aftur löndunarbann auk þess sem herskip voru send á Íslandsmið. • Íslensku varðskipin reyndu að góma breska togara en bresk herskip áttu að vernda togarana. Oft kom því til ásiglinga. • Engum vopnum var beitt en átökin fengu nafnið ÞORSKASTRÍÐIÐ.

  14. Þorskastríð frh. • Árið 1972 færðu Íslendingar fiskveiðilögsöguna aftur út og nú í 50 mílur. • Ákvörðuninni var vísað til alþjóðadómstólsins en Íslendingar ákváðu að taka ekki mark á honum. • Aftur voru send herskip til að vernda breska togara sem veiddu áfram innan 50 mílna. • Íslendingar beittu togvíraklippumí þessu þorskastríði. Þær klipptu í sundur veiðarfæri togaranna. • Ári síðar ákváðu Bretar að sætta sig við lögsöguna.

  15. Frh. • Víða um heim voru strandþjóðir farnar að taka upp 200 mílna lögsögu. • Það þýddi full yfirráð yfir öllum auðlindum í hafi og hafsbotni innan þess svæðis. • Ísland færði út sína lögsögu árið 1975. • Aftur sendu Bretar herskip á miðin. • Nú varð baráttan hatrammari og Íslendingar slitu stjórnmálasambandi við Bretland. • Sáttir náðust að lokum og síðustu bresku togararnir sigldu af miðunum í lok árs 1976. • Íslendingar hótuðu að ganga úr NATO í miðju Kalda stríðinu. • Byggðarlög eins og Grimsby og Hull urðu hins vegar fyrir miklu efnahagslegu áfalli við þessi málalok.

  16. Kvótakerfi • Kvótakerfið var sett á laggirnar 1984 til að koma í veg fyrir ofveiði sem hafði átt sér stað á árunum á undan. • Skip fengu aflaheimild miðað við veiðireynslu síðustu þriggja ára. • Síðar var farið að leigja og selja kvóta framsal. • Það hafði slæm áhrif á mörg smærri byggðar-lög þar sem kvótinn hvarf og oft flutti fólk úr byggðarlögunum. • Margir urðu á sama tíma ríkir á kvótakerfinu með því að leigja eða selja kvótann.

  17. Iðnaður • Íslenskur iðnaður tók að eflast eftir seinni heimsstyrjöld en innlendar vörur áttu oft erfitt uppdráttar gegn ódýrari innfluttum vörum. • Stjórnvöld stóðu í vegi fyrir því að erlendir aðilar reistu orkuver og verksmiðjur. • Áburðarverksmiðjan í Gufunesi og sements-verksmiðjan á Akranesi hófu starfsemi á 6. áratugnum en þær marka upphaf að orkufrekri stóriðju á Íslandi. • Miklar breytingar urðu í efnahagslífinu á 7. áratugnum þegar Viðreisnarstjórn Sjálfstæðisfl. og Alþýðufl. var við völd en þeir lögðu áherslu á að opna hagkerfið fyrir erlendri fjárfestingu og auka fjölbreytileika atvinnulífsins.

  18. Iðnaður frh. • Undir lok 7. áratugarins hófu kísilverksmiðjan við Mývatn og Álverið í Straumsvík starfsemi sína . • Kísilverksmiðjan var m.a. í eigu íslenska ríkisins. • Aukinni raforkuþörf var mætt með stofnun Landsvirkjunar og reisti fyrirtækið Búrfellsvirkjun til að sjá álverinu fyrir rafmagni. • Stóriðjan átti sinn þátt í að bæta lífskjör landsmanna þó oft hafi spunnist deilur um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, arðsemi, mengun, umhverfisvernd og fleira. • Mörg innlend iðnfyrirtæki urðu gjaldþrota 1970 þegar tollar á erlendum vörum voru lækkaðir verulega.

  19. Náttúruhamfarir • Náttúruhamfarir hafa alltaf sett mark sitt á Íslendinga. • Gosið í Heimaey árið 1973 hafði mikil áhrif á Íslendinga. Gosið stóð yfir í 5 mánuði, eyðilagði 400 hús og það þurfti að flytja 5000 manns upp á meginlandið. • Árið 1974 varð mannskætt snjóflóð í Neskaupsstað og undir lok aldarinnar urðu tvö mannskæð snjóflóð á Vestfjörðum. • Súðavík • Flateyri • Árið 2000 riðu svo yfir tveir jarðskjálftar á Suðurlandi og eignatjón varð töluvert.

More Related