1 / 34

Íslenska velferðarkerfið í nútíð og framtíð

Íslenska velferðarkerfið í nútíð og framtíð. Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi eftir Stefán Ólafsson Apríl 2003. Efnisyfirlit. Staða og einkenni íslenska velferðarkerfisins Afturför íslenska velferðarkerfisins Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi Lágskattasamkeppni og íslensk skattaparadís

zorion
Télécharger la présentation

Íslenska velferðarkerfið í nútíð og framtíð

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenska velferðarkerfið í nútíð og framtíð Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi eftir Stefán Ólafsson Apríl 2003

  2. Efnisyfirlit • Staða og einkenni íslenska velferðarkerfisins • Afturför íslenska velferðarkerfisins • Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi • Lágskattasamkeppni og íslensk skattaparadís – Hvert stefnum við? • Skandinavískt velferðarkerfi • Amerískt velferðarkerfi – Mikilvægi velferðarkerfis í hnattvæddu þekkingarhagkerfi

  3. Þjóðfélagsleg hlutverk velferðarkerfisins • Megin stoðir velferðarkerfisins • Almannatryggingar Heilbrigðisþjónusta • Húsnæðiskerfi Menntakerfi • Skattakerfi • Megin markmið velferðarkerfisins • Framfærslutrygging sem borgararéttindi - • viðunandi lágmarksframfærsla fyrir alla • Jafna lífskjör – draga úr fátækt • Draga úr stéttaskiptingu=tryggja aðgang allra að • tækifærum, menntun og heilsu, óháð efnahag • Auka stöðugleika í samfélaginu • Styrkja þjóðfélagslegar forsendur hagvaxtar

  4. Einkenni ólíkra almannatryggingakerfa Söguleg urðu til tvær megingerðir félagslegra trygginga:

  5. Velferðarútgjöld í Evrópu 1999-%VLF Almannatryggingar, fjölskyldubætur, heilsugæsla, atvinnuleysisbætur, húsnæðismál, annað. Heimild: NOSOSKO 2002 Heimild: NOSOSKO 2002

  6. Óvenju ódýrt velferðarkerfi • Íslenska velferðarríkið er eitt það ódýrasta á Vesturlöndum(bæði mælt sem % af VLF og sem kaupmáttur velferðarútgjalda á íbúa). • Ástæður þess eru einkum: • Grunnlífeyrir almannatrygginga er lágur • Víðtækar tekjutengingar spara útgjöld alm.tr. • Þjóðin er frekar ung (lágt hlutfall eldri borgara) • Hlutur einkageira er frekar stór í velferðarþjónustu hér • Atvinnuþátttaka hefur verið óvenjumikil á Íslandi

  7. Samantekt um íslenska velferðarkerfið • Íslenska velferðarkerfið varð aldrei jafn öflugt og þau skandinavísku – réttindi þrengri og tryggingavernd lakari • Var þó með ýmis einkenni borgararéttinda - einkum í heilbr.þjónustu, skólum, dagvistun barna (þ.e. aðgengi fyrir alla) • Bætur almannatrygginga á Íslandi eru afar lágar – sumar undir raunverulegum fátæktarmörkum • Síaukin notkun tekjutenginga breytir kerfinu í ölmusukerfi -“velur inn” einungis þá fátæku í stað þess að “velja út” þá ríku (eins og gert er t.d. í Ástralíu og Kanada) • Lágar bætur og miklar tekjutengingar fara illa saman – skapa víðtækar fátæktargildrur • Tekjutengingar eru þægilegar fyrir stjórnmálamenn sem vilja draga úr útgjöldum – flóknar og sveigjanlegar-auðvelt að flækja

  8. Hvaða hefur breyst síðustu 12 ár? • Vægi tekjutenginga bóta hefur aukist mikið (t.d. á grunnlífeyri, og vegna lífeyris úr lífeyrissjóðum) • Aukin tekjutenging barnabóta – fækkun bótaþega • Lífeyrisbætur hafa dregist langt afturúr launum frá 1995 • Síaukinn hlutur notendagjalda í heilbr.kerfi og skólakerfi • Einkalífeyrir, starfstengdir lífeyrissjóðir og séreignasparnaður, taka í vaxandi mæli við hlutverki almannatrygginga – veikir almannatryggingar til lengri tíma • Hlutverk markaðar og félagasamtaka í velferðarþjónustu hefur aukist – hlutverk ríkis minnkað • Jöfnunarmarkmið, bæði í velferðarkerfi og skattakerfi, hafa vikið –bil milli ríkra og fátækra hefur aukist • Íslenska velferðarkerfið hefur fæst í átt til frjálshyggjukerfis

  9. Minnkandi velferðarútgjöld frá 1995

  10. Lífeyrisþegar sátu eftir í góðærinu Heimild: Hagstofa Íslands

  11. Lífeyrir almannatrygginga dróst aftur úr launum Örorkulífeyrir og ellilífeyrir sem % lágmarkslauna Skattlagning hófst! hér ------------------------- Ef tengsl örorkulífeyris og lágmarkslauna hefðu haldist frá 1995 væri hámark örorkulífeyris nú hátt í 20.000 kr. hærri en er, eða álíka og “tímamótasamkomulagið” færir ungum öryrkjum Heimild: TR 2002

  12. Greiðsla barnabóta 1991-2003Heildarútgjöld á ári. Mkr. verðlag 2003. Tímamót! Tvö skref til baka Eitt skref áfram Heimild: Fjármálaráðuneytið

  13. Stuðningur ríkisins við fjölskyldur minnkaði

  14. Afturför að hluta í heilbrigðisþjónustu • Margt gott, en..... • Aukin kostnaðarhlutdeild notenda þjónustu • Aukin kostnaðarhlutdeild sjúklinga • í lyfjum = efnahagur skilyrðir not almennings! • Upplausn í heimilislæknisþjónustu • Heilsugæslustöðvar veikari sem fyrsti viðkomustaður • Kostnaður mikill við rekstur heilbrigðisþjónustu • Biðlistar eftir þjónustu hafa lengst-kreppudæmi • Hlutur markaðar og einkaaðila eykst-oft með gjöldum • Sjúkradagpeningar ótrúlega lágir – og hafa • stöðugt lækkað miðað við laun – sbr. næsta línurit

  15. Rýrnun sjúkradagpeninga almannatrygginga Upphæð á mánuði nú: um 25.000 kr.!

  16. Atvinnuleysisbætur eru nú 77.000 kr. en væru um 87.000 ef tengsl við laun hefðu ekki verið rofin af ríkisstjórn 1996

  17. Velferðarkerfið hefur mætt afgangi • Félagslega húsnæðiskerfið lagt niður 1998 • Ójafnvægi á markaði síðan þá • Húsaleiga hefur hækkað mun meira en almennt verðlag • Gríðarleg aukning framfærslukostnaðar fyrir lágtekjufólk á húsaleigumarkaði • Biðlistar eftir félagslegu leiguhúsnæði afar langir • Hlutur einkalífeyris hefur stóraukist >>> • Ójafnari lífeyrisréttur í framtíðinni • Almannatryggingar verða ölmusutryggingar fyrir fátæka

  18. Sköttum létt af hátekjufólki Sköttum einnig létt af fyrirtækjum, úr 50% >>>18% Sköttun fjármagnstekna lækkuð úr 41% í 10% Heimild: Fjármálaráðuneytið Lægstu tekjur Hæstu tekjur

  19. Breytingar íslenska velferðarríkisins • Minna hlutverk almannatrygginga – Meira vægi markaðar • Meira vægi einkaaðila – Stærra hlutverk notendagjalda • Fátækraaðstoð meira veitt sem ölmusa • Minni jöfnunaráhrif í velferðarkerfi • Minni jöfnunaráhrif í skattakerfi Skandinavíska leiðin Bandaríska leiðin Íslenska leiðin Þjóðfélagið breytist

  20. Ísland fjarlægist skandinavísku leiðina

  21. Þróun fjölskyldutekna í USA 1947-79

  22. Breyting fjölskyldutekna í USA 1979-97 Gríðarleg aukning ójafnaðar - Mest hækkun í efstu tekjuhópum

  23. Þróun launa og verðlags í USA Stjórnendur 463% Verkafólk 42%

  24. Breyting eigna heimilanna í USA 1983-98 Minni eignir lægstu 40% heimila og aukin skuldasöfnun. Mikil eignaaukning hjá hæstu 40%.

  25. Ójöfnuður tekna jókst á Íslandi

  26. Aukinn ójöfnuður ráðstöfunartekna

  27. Fátækt og ójöfnuður í USA-Hvar er Ísland? Mat ASÍ á þróun fátæktar á Íslandi, 1995 til 2001: Hækkun úr 8,8% í 13,2%

  28. Hvers vegna stækkar lágtekjuhópurinn á Íslandi? • Vegna aukins ójafnaðar í tekjuskiptingunni 1995-2001 • Lífeyristekjur TR drógust afturúr vinnumarkaðstekjum • Skattbyrði lágra tekna jókst • Aukið atvinnuleysi bætir síðan í fátæktina 2002-3 • Aukin framfærslubyrði lágtekjufólks á síðustu árum • Húsaleiga jókst langt umfram almennt verðlag • eftir niðurlagningu félagslega húsnæðiskerfisins 1998 • Eftirspurn fyrir neyðaraðstoð jókst hjá Félagsþjónustu Rvíkur, • Mæðrastyrksnefnd og öðrum hjálparstofnunum • Framfærslugrunnur almannatrygginga • (opinberu fátæktarmörkin) er langt undir • lágmarksframfærslukostnaði í landinu

  29. Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi • Nýtt viðhorf: Paradísarheimt frjálshyggjumanna • Ísland sem skattaparadís fyrir erlenda auðmenn • Frelsi fjármagnsins og lágskattasamkeppni • Lágskattasamkeppni til að brjóta niður velferðarríkið? • Færa velferðarþjónustuna og tryggingar til markaðarins? • Sjálfstæðisflokkur hóf lágskattasamkeppnina á Íslandi í kosningabaráttunni 2003-framhald stefnunnar síðan 1995? • Hnattvæðing og þekkingarhagkerfi • Upplýsingatækni breytir gömlum atvinnugreinum og getur af sér nýjar >>> Gríðarleg ný tækifæri • Tæknin breytir lífsháttum og þjóðfélagsskilyrðum

  30. Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi • Hnattvæðing og þekkingarhagkerfi frh.... • Hnattvæðing er líka markaðsvæðing • Afnám hindrana á flæði fjármagns, fyrirtækja, vöru, þjónustu, upplýsinga, afþreyingarefnis og fólks • Fjárfestar fá stærra hlutverk – Stórfyrirtækin einnig • Völd og verkefni færast til markaðar frá ríkisvaldinu • Markaðurinn mótar þjóðfélag og lífshætti meira en áður • Hefur velferðarríkið hlutverk í hnattvædda þekkingarhagkerfinu? • Skiptir markaðurinn einn máli? • Skipta lágir skattar einir máli?

  31. Það sem ræður staðsetningu þekkingarfyrirtækja • Álitleg lífsgæði á svæðinu • Aðgengi að vel menntuðu vinnuafli • Nálægð við markaði • Hagstæður viðskiptakostnaður á svæðinu • Nálægð við háskóla + miðborg • Hagstætt viðskiptaumhverfi (hagstætt reglugerðarumhverfi, framtaksmenning, vinnuvilji, o.fl.) VII. Lágir skattar • = Lífsgæði á svæðinu skipta miklu máli • Höfða þarf til fólks og fyrirtækja jöfnum höndum. • Heimild: Pennsylvania Economy League, 1997

  32. Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi • Áhættur: Harðara samkeppnisumhverfi • Vinnumarkaður breytist • Starfsferlar verða óreglulegri • Uppsöfnun réttinda óreglulegri • Starfsöryggi minna • Hætta á atvinnuleysi eykst • Án launþegahreyfingar og velferðarríkis verða áhættur venjulegs lífs meiri og staða launafólks gagnvart atvinnurekendum mun veikari

  33. Velferð í nýju þjóðfélagsumhverfi • Áhættur: Harðara samkeppnisumhverfi • Fjárfestar og fyrirtæki vilja meiri arðsemi en áður • Krefjastgóðs vinnuafls, fárra regluhafta, lágra skatta • Samkeppnishæfni ræður farsæld • Velferðarkerfið getur bætt samkeppnisskilyrði • Með meiri jöfnuði og öryggi • Bætir lífsskilyrði-eykur stöðugleika • Þarf að vera hagkvæmt og sveigjanlegt • Skandínavar hafa öflugt velferðarkerfi og öflugt þekkingarhagkerfi

  34. Velferð á nýrri öld • Skandinavíska leiðin stendur fyrir: Hagkvæmni – Réttlæti – Öryggi • Bandaríska leiðin stendur fyrir: Hagkvæmni – Arðsemi/Ójöfnuð – Áhættu • Hvað verður um íslensku leiðina? Amerískara eða skandinavískara velferðarþjóðfélag?

More Related