1 / 43

Félagsfræði, einstaklingur og samfélag

Félagsfræði, einstaklingur og samfélag. 2. Kafli: Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir. Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir. Samfélagið er afar fjölbreytt og því mikilvægt að allur þessi fjölbreytileiki endurspeglist í niðurstöðum rannsókna í félagsvísindum. Kerfisbundnar rannsóknir.

ada
Télécharger la présentation

Félagsfræði, einstaklingur og samfélag

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Félagsfræði, einstaklingur og samfélag 2. Kafli: Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir

  2. Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir • Samfélagið er afar fjölbreytt og því mikilvægt að allur þessi fjölbreytileiki endurspeglist í niðurstöðum rannsókna í félagsvísindum. FEL 103 - kafli 2.

  3. Kerfisbundnar rannsóknir • Verða að fylgja fimm meginmarkmiðum: • Skilgreina viðfangsefnið, t.d. með því að setja fram kenningu eða fullyrðingu. • Safna upplýsingum. Út frá þeim er hægt að sanna eða afsanna kenninguna eða fullyrðinguna. • Velja upplýsingar sem gefa fjölbreytta og sanna mynd af því sem við viljum rannsaka. Hjördís Einarsdóttir

  4. Kerfisbundnar rannsóknir • Verða að fylgja fimm meginmarkmiðum: • Halda eigin skoðunum og tilfinningum fyrir utan rannsóknina. • Gefa upplýsingar um allar niðurstöður þegar við kynnum rannsóknina, jafnvel þótt við séum ósammála niðurstöðunni. Hjördís Einarsdóttir

  5. Mismunandi upplýsingar (bls. 31) • Margir reyna að réttlæta skoðanir sínar með því að vitna í sjónvarpsefni eða blaðagreinar sem þeir hafa séð. • Er eitthvað athugavert við það? Hver er munurinn á starfsaðferðum eða upplýs-ingaöflun félagsfræðinga annars vegar og t.d. blaðamanna hins vegar? FEL 103 - kafli 2.

  6. Markmið rannsókna (bls. 32-33) Þú verður að kannast við þessi atriði: • Lýsingar á samfélagsaðstæðum – hvernig er ástandið? • Útskýring – af hverju eru hlutirnir eins og þeir eru. • Alhæfing – þetta er svona vegna þess að....... FEL 103 - kafli 2.

  7. Markmið rannsókna (bls. 34) • Upplýsingar eru undirstaða allrar rannsóknar-vinnu. • Aðferðafræði er vinnutilhögun, hún er verkfæri til að leysa gátur og búa til nýja þekkingu. Öll meðöl sem þjóna þessu markmiði eiga heima í vopnabúri aðferðafræðinnar segir norski félagsfræðingurinn Vilhelm Aubert. FEL 103 - kafli 2.

  8. Skilgreiningar, líkön og kenningar (bls. 34) • Um tölfræði: http://www.namsgagnastofnun.is/samfelag/hverjirrada3/verkefni3_6a.htm • Eigin rannsóknir; http://www.ismennt.is/not/gardarg/EginA.htm FEL 103 - kafli 2.

  9. Ef rannsókn á að heppnast verður að vera: • Viðfangsefni • Skilgreining – afmörkun þess sem við viljum rannsaka FEL 103 - kafli 2.

  10. Ef rannsókn á að heppnast • Líkan – hvað getur gefið svar við spurningum okkar • Kenning – fullyrðing um orsakasamhengi. Ef þetta – þá hitt...... FEL 103 - kafli 2.

  11. Emile Durkheim • Sjálfsmorðið - ein frægasta rannsókn félagsvísindanna (1897). • Tíðni sjálfsmorða misjöfn eftir hópum – af hverju? FEL 103 - kafli 2.

  12. Sjálfsmorðið – Durkheim (bls. 35) • Sterk félagsleg tengsl – minni líkur á sjálfsvígi • Veik félagsleg tengsl – meiri líkur á sjálfsvígi FEL 103 - kafli 2.

  13. Tilgátur... –bls. 35 • Þú verður að þekkja vel til þessa ferlis..... • og þú verður að geta lýst rannsókn Durkheims á sjálfsvígum FEL 103 - kafli 2.

  14. Tilgátur... –bls. 35 • Tilgáta; fullyrðing um orsakasamhengi. Ef þetta þá hitt ... • Ef fullyrðingarnar passa saman, það er eru sannar – þá er kenningin okkar rétt FEL 103 - kafli 2.

  15. Kenningar... –bls. 35 • Kenning; kerfi reglna eða lögmála sem er notað til að útskýra af hverju eitthvað gerist og hvernig það gerist • Fullyrðingar um orsakasamhengi kallast tilgátur. FEL 103 - kafli 2.

  16. Kenningar... –bls. 36 • Dæmi um tilgátur: • Kaþólikkar sem fremja sjálfsvíg fara til helvítis • Giftir karlar hafa sterkari félagsleg tengsl en ógiftir • Giftir karlar með börn hafa sterkari félagsleg tengsl en giftir og barnlausir karlar FEL 103 - kafli 2.

  17. Kenningar... –bls. 36 • Með kenningum er hægt að gera athafnir manna skiljanlegri. • Kenningar auðvelda okkur að útskýra og setja í samhengi og einnig að sjá fyrirfram hvað muni gerast við sömu aðstæður. FEL 103 - kafli 2.

  18. Kenningar... –bls. 36 FEL 103 - kafli 2.

  19. Hvernig fáum við upplýsingar (bls. 38) • Þú getur notað opinbera tölfræði, t.d. í gagnabönkum. • Þú getur búið til upplýsingarnar sjálf(ur) með skoðanakönnunum eða athugunum. FEL 103 - kafli 2.

  20. Tölfræðileg hugtök (bls. 38). • Þýði: Heildarfjöldi allra sem á að rannsaka. Íslenska þjóðin er dæmi um þýði. FEL 103 - kafli 2.

  21. Tölfræðileg hugtök • Úrtak: Lítill hópur fólks sem valinn er úr heildarfjölda. Til dæmis ætti að vera nóg að velja um 1000 manna úrtak úr allri íslensku þjóðinni til að fá marktæk svör við ákveðnum spurningum. En þá verður líka að gæta þess að úrtakið sé rétt valið (að í því séu til dæmis ekki bara ungar konur eða bara gamlir menn). FEL 103 - kafli 2.

  22. Dæmi um rannsókn (bls. 39) • Kenning: Lögleiðing fíkniefna á Íslandi dregur úr afbrotum. • Finndu rök með eða á móti þessari kenningu. Stenst hún? FEL 103 - kafli 2.

  23. Aðferðir félagsfræðinnar (bls. 39) • Við rannsóknirnar er annað hvort beitt megindlegum eða eigindlegum aðferðum ... og þú verður að þekkja muninn á þessu tvennu. FEL 103 - kafli 2.

  24. Dæmi um rannsóknir (bls. 40) • Brautskráðir stúdentar sem hlutfall af fjölda tvítugra. Hvað segir taflan okkur? Hvernig hefur þróunin verið? • Meðaltímakaup karla og kvenna. Skoðaðu töfluna á bls. 41. Hvað segir hún okkur? FEL 103 - kafli 2.

  25. Megindlegar aðferðir(bls. 41) • Tölfræðilegar upplýsingar. Líkjast aðferð-um náttúruvísindanna – mannleg hegðun yfirfærð í tölur. Nota kannanir með stöðluðum spurningum eða staðlaða spurningalista (allar spurningarnar eins – svarmöguleikar t.d. bara já eða nei). FEL 103 - kafli 2.

  26. Eigindlegar aðferðir(bls. 41) • Líkjast meira samtali en stöðluðu viðtali. Ákveðið þema valið en viðmælendur hafa mikið frelsi til að tjá skoðanir og viðhorf. Ekki hægt að bera svör tveggja viðmæl-enda saman – þau eru of ólík til þess. FEL 103 - kafli 2.

  27. Eigindlegar og megindlegar aðferðir • Félagsvísindamenn velja oftast að blanda þessum tveimur aðferðum saman í rannsóknum sínum Eigindleg aðferð Könnun Megindleg aðferð FEL 103 - kafli 2.

  28. Aðferðir félagsfræðinnar (bls. 42) • Nú þekkir þú vonandi muninn á eigind-legri og megindlegri rannsókn. Þú verður einnig að þekkja: • Tilraun • Könnun • Athugun • Notkun skráðra heimilda FEL 103 - kafli 2.

  29. Aðferðir við upplýsingaöflun (bls. 42) • Tilraunir: Algengasta rannsóknarðaferð raunvísinda – en sálfræðingar nota hana mikið líka. Henta illa í félagsfræðirannsóknum. Af hverju? Jú vegna þess að það er erfitt að fá fólk til að hegða sér eðlilega á tilraunastofu..... FEL 103 - kafli 2.

  30. Aðferðir við upplýsingaöflun (bls. 43) • Aðferð til að safna upplýsingum á skipu-legan hátt – vinsæl meðal fjölmiðla. Mikið notuð af félagsfræðingum. • Kannanir skiptast í: FEL 103 - kafli 2.

  31. Kannanir (bls. 43-44) • Vettvangskönnun: Þú ferð á stað með spurningalista og leitar uppi fólk. • Póstkönnun; Þú sendir fólki spurninga-lista í pósti. Ódýr aðferð – en lélegar heimtur. Það kallast mjög gott ef svarhlut-fallið nær 60% • Símakönnun; Þú hringir í fólk og spyrð spurninga. Ódýrt í framkvæmd en spurningalistinn má ekki vera of langur. FEL 103 - kafli 2.

  32. Íslensk félagsfræði (bls. 44) • Rannsóknir á áhættuhegðun Íslendinga • Hefðbundnar félagsfræðilegar breytur skipta máli til að skilja hegðun sem getur leitt til margvíslegra sjúkdóma. • Dæmi: Mikill munur á áfengisneyslu fullorðinna karla og kvenna FEL 103 - kafli 2.

  33. Íslensk félagsfræði (bls. 44) • Breyta er eitthvað sem getur tekið fleiri en eitt gildi (breyst) ólíkt fasta sem tekur bara eitt gildin og er því alltaf eins. • Dæmi um breytur: Aldur, kyn og kynþáttur, fjöldi morða, skilnaða og eiturlyfjafíkla FEL 103 - kafli 2.

  34. Íslensk félagsfræði (bls. 44) • Frumbreyta þýðir það sama og orsök, hún hefur áhrif á aðrar breytur. Hún er táknuð með gildinu X. • Fylgibreyta er sú breyta sem aðrar breytur hafa áhrif á, hún er því afleiðing. Hún er oft táknuð með gildinu Y FEL 103 - kafli 2.

  35. Íslensk félagsfræði (bls. 44) • Dæmi • Víndrykkja (frumbreyta) karla hefur áhrif á heilsufar (fylgibreyta) þeirra. • Búðu til fleiri dæmi.... FEL 103 - kafli 2.

  36. Athugun (bls. 45). • Mikið notuð af mannfræðingum, en einnig félagsfræðingum. • Til eru tvær gerðir athugana – þátttöku-athugun og athugun án þátttöku. Þú verður að átta þig á muninum og geta sýnt fram á kosti og galla við notkun hvorrar aðferðar fyrir sig. FEL 103 - kafli 2.

  37. Notkun skráðra heimilda (bls. 45) • Skráðar heimildir: Opinber tölfræði, ævisögur, tímaritsgreinar og fleira. • Durkheim byggði sína rannsókn á skráðum heimildum. FEL 103 - kafli 2.

  38. Ábyrgð (bls. 47) • Rannsakendur bera ábyrgð á að upplýsingar sem þeir safna séu ekki misnotaðar. • Persónuvernd á að sjá um að farið sé eftir lögum. Rannsakendur þurfa að leggja spurningalista fyrir Persónuvernd og fá samþykki hennar áður en rannsókn hefst. FEL 103 - kafli 2.

  39. Ábyrgð (bls. 47) • Gæta verður nafnleyndar – ekki má vera hægt að rekja svör beint til ákveðins einstaklings. • Ef bara einn strákur er í bekknum þá má ekki spyrja um kyn. Af hverju ekki? FEL 103 - kafli 2.

  40. Hver ákvarðar hvað á að rannsaka? (bls. 47) • Rannsóknir oft fjármagnaðar af stjórnvöldum – hvaða afleiðingar gæti það haft? • Notkun upplýsinga úr rannsókn getur sett rannsakanda í siðferðilega klemmu. Af hverju? FEL 103 - kafli 2.

  41. Er skylda að birta niðurstöður? (bls. 49) • Hvað gerist ef rannsakandinn kemst að einhverju sem hann eða sá sem pantaði rannsóknina vilja ekki birta opinberlega? FEL 103 - kafli 2.

  42. Blekking (bls. 48) • Má afla upplýsinga með blekkingum? • Skoðaðu vel rannsókn Laud Humphreys sem kallast The Tearoom trade – sem er þátttökuathugun á hommum í Bandaríkjunum. • Hvað hefðir þú gert til að nálgast upplýsingar? FEL 103 - kafli 2.

  43. Spurningar bls. 49 • Þú átt að svara öllum hugtökunum og spurningunum aftast í kaflanum. • Kennari gefur fyrirmæli um hvaða spurningum þú eigir að skila inn til hans. FEL 103 - kafli 2.

More Related