1 / 31

3-1 Þróun bls.48-55

3-1 Þróun bls.48-55. Þróun er breyting á lífverutegund í tímans rás þessi skilgreining nær yfir breytingar á tegund og líka myndun nýrra tegunda Allar lífverur eru komnar af einhverri eldri lífveru og hafa breyst mismikið í tímans rás. 3-1 Þróun bls.48-55. Mynd 3-1

alcina
Télécharger la présentation

3-1 Þróun bls.48-55

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 3-1 Þróun bls.48-55 • Þróun er breyting á lífverutegund í tímans rás • þessi skilgreining nær yfir breytingar á tegund og líka myndun nýrra tegunda • Allar lífverur eru komnar af einhverri eldri lífveru og hafa breyst mismikið í tímans rás Erfðir og þróun

  2. 3-1 Þróun bls.48-55 Mynd 3-1 • Kvaggi var spendýr, líkur sebrahesti, sem lifði í Afríku fyrir 1 öld • Við rannsókn kom í ljós að 95% DNA þeirra var eins Mynd 3-1 Erfðir og þróun

  3. 3-1 Þróun bls.48-55 • Erfðaefni lífvera er líkara eftir því sem þær eru skyldari • Stökkbreytingar leiða til myndunar nýrra eða breyttra lífvera Erfðir og þróun

  4. 3-1 Þróun bls.48-55 • Fræðimenn hafa sett fram þróunar-kenningar til að endurgera mynd af lífi á jörðinni forðum og spá fyrir um þróun í framtíðinni • Flestir vísindamenn eru á því að tala eigi um lögmálið um þróun í stað kenninga • Sannanir um þróun finnast í samanburði á DNA, lífefnafræði, líffærafræði og steingervingafræði Erfðir og þróun

  5. 3-1 Þróun bls.48-55 Líffærafræði • Fjallar um líkams-byggingu lífvera • Mynd 3-2 • Hvað er líkt í líffæra-byggingu útlimana? • T.d. Fjöldi og niðurröðun beina • Líkir líkamshlutar skyldra tegunda eru kallaðir eðlislíkir Mynd 3-2 Erfðir og þróun

  6. 3-1 Þróun bls.48-55 Þróunarkenning Lamarcks Jean-Baptiste de Lamarck (1744-1829) • Franskur líffræðingur • Setti fram fyrstu heillegu þróunar-kenninguna • Kenningin byggðist á líffærafræði Erfðir og þróun

  7. 3-1 Þróun bls.48-55 Þróunarkenning Lamarcks • Tvær grundvallarhugmyndir: • Notkun og vannotkun: • líkamshluti lífveru verður stærri og þroskaðri eftir því sem hún notar hann meira, því minna sem líkamshluti er notaður því veikari og vanþroskaðri verður hann. • Erfðir áunninna eiginleika: • Gerir ráð fyrir að líkamseinkenni sem lífvera þroskar með notkun eða vannotkun geti erfst til afkvæma hennar. rétt rangt Erfðir og þróun

  8. Kenning Lamarks • Forfeður núlifandi gíraffa höfðu sennilega stuttan háls og þurftu því oft að teygja sig upp í laufkrónur trjánna. • Við þetta lengdist háls þeirra örlítið. Erfðir og þróun

  9. Kenning Lamarks • Afkvæmin erfðu lengdan háls foreldr-anna en þurftu samt að teygja sig til að ná upp til laufsins. • Þetta endurtók sig kynslóð eftir kynslóð þar til að lokum urðu til gíraffar sem höfðu jafnlangan háls og núllifandi gíraffar. rangt Erfðir og þróun

  10. 3-1 Þróun bls.48-55 Fósturfræði • Fósturvísar margra dýrategunda eru líkir Mynd 3-3 • Fósturvísarnir eru næstum eins á fyrstu stigum þroskans, • bendir til þess að þessar lífverur eigi sér sameiginlegan forföður • Seinna fara önnur gen sem ekki eru sameiginleg að stjórna þroskanum Mynd 3-3 Erfðir og þróun

  11. 3-1 Þróun bls.48-55 Steingervingafræði • Steingervingar eru för eða leifar lífveru sem var uppi fyrr á öldum. • Finnast í setbergi sem myndast við hæga storknun laga af leðju, sandi eða leir. • Ef lífvera rotnar á endanum eftir að setlögin hafa breyst í berg skilur hún eftir sig far í berginu, þetta mót getur fyllst af steinefnum – kallað afsteypa. Erfðir og þróun

  12. 3-1 Þróun bls.48-55 Steingervingafræði • Ef steinefni koma smám saman í stað mjúkra vefja lífverunnar er hún sögð vera steinrunnin. • Heilu lífverurnar geta líka varðveist í rafi, tjöru eða ís. • Algengustu steingervingarnir eru bein, skeljar, frjókorn, laufblöð og fræ. Erfðir og þróun

  13. 3-1 Þróun bls.48-55 Árhestur (Eohippos) • Var jafn stór ketti, með stuttar tennur og fjórar tær • Var uppi fyrir 50 milljónum ára • Vel aðlagaður lífi á fenjasvæði • Dó út vegna loftslags-breytinga Mynd 3-6 Erfðir og þróun

  14. 3-2 Náttúruval bls.56-60Þróunarkenning Darwins Charles Darwin (1809-1882 ) • Breskur náttúrufræðingur (ætlaði að verða læknir eða prestur en hætti við hvort tveggja) • Fór í ferð 1831 með Beagle til Suður- Ameríku og Kyrrahafsins • Safnaði sýnum og skrifaði nákvæmar lýsingar á svæðunum sem hann ferðaðist um Erfðir og þróun

  15. 3-2 Náttúruval bls.56-60Þróunarkenning Darwins • Hann tók eftir breytileika innan tegunda á svæðunum • Eftir gagnasöfnun á ferð sinni komst hann að því að lífverur eru aðlagaðar til að lifa í umhverfi sínu • Safnaði gögnum til stuðnings kenningu sinni næstu 20 árin Darwin varð fyrir sterkum áhrifum af breytileika innan tegunda á Skjaldbökueyjum (Galapagos) Erfðir og þróun

  16. Finkur á Galapagos Erfðir og þróun

  17. 3-2 Náttúruval bls.56-60Þróunarkenning Darwins • Alfred Russel Wallace hafði komist að svip-uðumniðurstöðum eftirrannsóknir sínar í Malasíu • 1858 gáfu þeir Darwin og Wallace saman út greinar um þróunar-kenningu Erfðir og þróun

  18. 3-2 Náttúruval bls.56-60Þróunarkenning Darwins • 1859 gaf Darwin út bókina ,,Uppruni tegundanna” þar sem hann útfærði kenninguna og kynnti hugtakið náttúruval Erfðir og þróun

  19. 3-2 Náttúruval bls.56-60Þróunarkenning Darwins • Náttúruval er ferli sem einkennist af því að þeir einstaklingar sem eru best aðlagaðir umhverfi sínu og eiga flest afkvæmi veljast úr og móta stofninn meira en aðrir Erfðir og þróun

  20. 3-2 Náttúruval bls.56-60 Offjölgun og náttúruval • Lífverur eignast fleiri afkvæmi en auðlindir umhverfisins geta borið • Slík offjölgun leiðir til samkeppni milli lífvera • Þeir sem eru best aðlagaðir umhverfinu lifa af og geta fjölgað sér ,,hinir hæfustu komast af” Survival of the fittest Erfðir og þróun

  21. Kenning Darwins • Forfeður núlifandi gíraffa höfðu mislangan háls frá fæðingu. • Þessi mismunur var arfgengur. Erfðir og þróun

  22. Kenning Darwins • Samkeppni og náttúruval hafði í för með sér meiri lífslíkur fyrir afkvæmi hálslangra gíraffa á kostnað þeirra sem hálsstyttri voru. Erfðir og þróun

  23. Kenning Darwins • Að lokum urðu hálslangir gíraffar allsráðandi en þeir hálsstuttu dóu út. Erfðir og þróun

  24. 3-2 Náttúruval bls.56-60 Breytileiki og náttúruval • Engir tveir einstaklingar sömu tegundar eru nákvæmlega eins • Dæmi um breytileika: misþykkur feldur, lengd plönturóta, stærð • Minni háttar breytileiki innan tegundar er algengur • Stökkbreytingar valda meiri háttar breytileika • Gagnlegar stökkbreytingar gera lífveru hæfari til að lifa af Erfðir og þróun

  25. 3-2 Náttúruval bls.56-60 Dæmi um áhrif náttúruvals • 1850 voru flestir piparfetarar nálægt Manchester ljósir, en breytileikinn var til staðar í stofninum • Ljósu fiðrildin sáust illa á ljósum trjástofni, en svörtu vel og þau voru því étin Erfðir og þróun

  26. 3-2 Náttúruval bls.56-60 • Með fleiri verksmiðj-um og auknu sóti dökknuðu trjástofn-arnir og þá fjölgaði þeim svörtu því að ljósu fiðrildin sáust betur og voru því frekar étin • Í dag hefur ljósu fiðrildunum fjölgað • Af hverju? Erfðir og þróun

  27. 3-3 Far og einangrun bls.60-61 • Far er flutningur einstaklinga innan tegundar langt frá upprunalegum heimkynnum sínum svo sem milli heimsálfa • Einangrun er viðskilnaður sumra einstaklinga tegundar frá öðrum , sem tilheyra sömu tegund, í langan tíma. Erfðir og þróun

  28. 3-4 Þróun – hæg eða hröð bls.63-64 • Vísindamenn hafa greint á um það hvort þróun gerist hratt eða hægt. Slitrótt jafnvægi: • tegund breytist mjög lítið eða stendur í stað í langan tíma og tekur svo skyndilega miklum eða hröðum breytingum sem leiða til myndunar nýrrar tegundar. • Hröð breyting tekur þúsundir ára í stað hundruð þúsunda eða milljónir ára. Erfðir og þróun

  29. 3-4 Þróun – hæg eða hröð bls.63-64 • Í dag telja flestir vísindamenn að þróun sé sambland af hægfara breytingum (gradualisma) og skyndilegum, hröðum breytingum (slitróttu jafnvægi). Erfðir og þróun

  30. 3-5 Jarðsagan bls.64-65 • Jarðsögunni er skipt í 5 jarðsögualdir: Upphafsöld 4600 millj.ár – 2500 millj.ár Frumlífsöld 2500 millj.ár – 570 millj.ár Fornlífsöld 570 millj.ár – 245 millj.ár Miðlífsöld 245 millj.ár – 65 millj.ár Nýlífsöld 65 millj.ár – til dagsins í dag Erfðir og þróun

  31. Erfðir og þróun

More Related