250 likes | 533 Vues
Endurreisn. Vestur-Evrópa vaknar (14. – 17. öld) (bls. 197 – 207). Endurreisn. Endureisnin á upptök sín í ítölsku borgríkjum 14. aldar en barst til Norður-Evrópu á 15. öld Klassískar hugmyndir fornaldar voru þá enduruppgötvaðar og hafðar til fyrirmyndar
E N D
Endurreisn Vestur-Evrópa vaknar (14. – 17. öld) (bls. 197 – 207)
Endurreisn • Endureisnin á upptök sín í ítölsku borgríkjum 14. aldar en barst til Norður-Evrópu á 15. öld • Klassískar hugmyndir fornaldar voru þá enduruppgötvaðar og hafðar til fyrirmyndar • Endureisninni fylgdi blómaskeið bæði í listum og fræðastörfum og verk endurreisnarmanna voru bæði frumleg og mikilfengleg • Endurreisnarmenningin grundvallaðist að sjálfsögðu einnig á þeirri menningu sem hún var sprottin úr; menningu miðalda Valdimar Stefánsson 2008
Ítalskir borgarar • Undir lok miðalda var mikil gróska í ítölsku efnahagslífi vegna stóraukinnar verslunar • Aukin verslun ýtti undir þéttbýlismyndun og breytingu á verslunarháttum • Sjálfsþurftarbúskapur og vöruskiptaverslun vék fyrir peningaverslun og fyrstu bankarnir voru stofnaðir • Ítalskir athafnamenn í verslun og iðnaði högnuðust vel og mynduðu öfluga og sístækkandi borgarastétt Valdimar Stefánsson 2008
Ítalskir borgarar • Kaupmennskan krafðist lestrar-, skriftar- og reikningskunnáttu enda fjölgaði skólum • Starfstíma borgarbúa þurfti að mæla nákvæmlega og eru elstu vélrænu klukkurnar frá þessum tíma • Veraldlegur, samræmdur tími tók við af tíma náttúrunnar og kirkjunnar • Upphaf nútímaborgaralífs má þannig á ýmsan máta rekja til ítölsku borgríkjanna • Voldugustu borgríkin á þessum tíma voru Feneyjar og Flórens Valdimar Stefánsson 2008
Medici-ættin • Öflugasta fjölskyldan af borgaralegum uppruna var Medici-ættin í Flórens • Hún varð fljótt þekkt fyrir öfluga menningarstarfsemi og varði miklu fé til að kaupa listaverk og réðu jafnan bestu listamenn sem völ var á til að starfa í skjóli sínu • Menningarstarfsemi þessari var beinlínis ætlað að sýna valdastöðu og sveipa ættina dýrðarljóma • Medici-ættin var nánast einráð í Flórens um áratugaskeið og á þeim tíma reis menning borgarinnar hæst Valdimar Stefánsson 2008
Listmálarar endureisnarinnar • Í samræmi við breytt samfélag breyttist einnig myndefni málara á endurreisnartímanum • Á miðöldum hafði kirkjan verið nánast einráð um alla listsköpun en nú höfðu efnaðir borgarar tekið hlutverki hennar • Listin tók á sig veraldlegri blæ og höfðu listmálararnir gjarnan hversdagslífið að fyrirmynd • Helsta tekjulind málara var að mála mannamyndir (portrett) oftast eftir pöntun auðugra fjölskyldna • Einnig var mannslíkaminn vinsælt myndefni Valdimar Stefánsson 2008
Listmálarar endurreisnarinnar • Á miðöldum hafði myndlist fyrst og frems táknræna merkingu og líkindi með raunveruleikanum skiptu ekki miklu máli • Myndir voru málaðar án dýptar og persónur voru hverjar öðrum líkar • Með endurreisninni tóku málarar að gera tilraunir með ljós og skugga í myndum sínum, juku þær lífi og hreyfingu og fengu þeim nýja dýpt • Þannig náði myndlistin nýjum hæðum á endurreisnartímanum og eru ýmsir þeirra skoðunar að þeim hæðum hafi nútímalistin enn ekki náð Valdimar Stefánsson 2008
Miðaldamálverk: Harmurinn eftir di Bondone (um 1305) Valdimar Stefánsson 2008
Fæðing Venusar (1486) eftir Sandro BotticelliHann var einn fyrsti endurreisnarmálarinn Valdimar Stefánsson 2008
Leonardo da Vinci • Einn þekktasti málari endurreisnarinnar var Leonardo da Vinci (1452 – 1519) • Frægustu myndir hans eru Mona Lisa og Síðasta kvöldmáltíðin • Hann var ekki aðeins yfirburðamaður í myndlist heldur einnig myndhöggvari, verkfræðingur og hugmyndaríkur uppfinningamaður • Hann stundaði auk þess krufningar á líkum til að kynnast starfsemi mannslíkamans og gerði uppdrætti af vélmennum og flugvélum svo fátt eitt sé nefnt Valdimar Stefánsson 2008
Leonardo da Vinci Sjálfsmynd (1512 – 1515) Mona Lisa (1505 – 1507) Valdimar Stefánsson 2008
Leonardo da Vinci Síðasta kvöldmáltíðin (1498); málað á klausturvegg Valdimar Stefánsson 2008
Michaelangelo Buonarroti • Michaelangelo (1475 – 1564) er einn helsti listamaður 16. aldarinnar • Hann var fyrst og fremst myndhöggvari en málaði einnig fjölmörg stórfengleg kirkjulistaverk • Þekktasta málverk hans er Sköpun Adams í lofti Sixtinsku kapellunnar í Róm • Einnig stýrði hann smíði Péturskirkjunnar í Róm á lokastigum hennar Valdimar Stefánsson 2008
Michaelangelo: tvær höggmyndir Pietà (1498 – 1499) Davíð (1501 – 1504) Valdimar Stefánsson 2008
Michaelangelo Hluti af lofti sixtínsku kapellunnar; Sköpun Adams (1508 – 1512) Valdimar Stefánsson 2008
Rafael • Sá fjórði í þessari röð þekktustu myndlistarmanna heims er Raffaello Sanzio, betur þekktur sem Rafael (1483 – 1520) • Þrátt fyrir að hafa ekki náð fertugsaldri er hann lést var hann þá þegar orðinn einn virtasti arkitekt og málari samtímans • Langflest málverka hans eru trúarlegs eðlis en hann þykir vera meistari í að gæða myndefni sitt sérstökum yndisþokka • Að auki var hann mikilvirkur arkitekt og teiknaði bæði kirkjur og hallir Valdimar Stefánsson 2008
Rafael: tvö málverk Maddonna hertogans (1505) Ummyndunin (1517 1520) Valdimar Stefánsson 2008
Menntastefna endurreisnarinnar • Sú menntastefna sem fram kemur á endurreisnartímanum er nefnd húmanismi eða manngildisstefna • Í húmanismanum er leiðin til aukins þroska órjúfanlega tengd aukinni menntun • Einnig er lögð áhersla á sjálfstæði mannsins varðandi skoðanamyndun og viðhorf • Veraldar- og einstaklingshyggja eru lykilhugtök húmanismans þar sem heimsafneitun miðalda er hafnað og jarðlífið metið meira en líf eftir dauðann Valdimar Stefánsson 2008
Húmanisminn • Nútímatextafræði á rætur að rekja til endurreisnartímans þegar húmanistar tóku til við að rannsaka á skipulegan hátt texta fornaldar og fór málfræðingurinn Lorenzo Valla (1407 – 1457) þar fremstur í flokki • Húmanistar stofnuðu víða skóla þar sem fjölbreytt námsefni var í boði enda var tilgangurinn sá að útskrifa siðaða hefðarmenn sem væru vel að sér í mörgum greinum Valdimar Stefánsson 2008
Desedirius Erasmus frá Rotterdam • Þekktasti húmanisti endurreisnartímans er án vafa Erasmus frá Rotterdam (1466 – 1536) en hann var virtasti fræðimaður síns tíma • Hann þýddi meðal annars Nýja testamentið úr frummálinu, grísku, árið 1516 og tileinkaði páfanum í Róm verkið • Þekktasta rit hans er þó Lof heimskunnar sem er ádeila á spillingu innan kirkjunnar • Þrátt fyrir gagnrýni sína á kaþólsku kirkjuna gekk hann aldrei til lið við mótmælendatrúnna en reyndi frekar að sætta þessa andstæðu flokka Valdimar Stefánsson 2008
Niccolo Machiavelli (1469 – 1527) • Ein af afleiðingum húmanismans var aukin áhersla á veraldleg málefni, samfélagsmál og stjórnmál • Frægasta stjórnmálarit þessa tíma er tvímælalaust Furstinn, eftir Flórensbúann Niccolo Machiavelli, rituð árið 1513 en ekki gefin út fyrr en eftir dauða höfundarins • Ritið er eins konar námsbók í stjórnun ríkis og einkennist af raunsæi og hispursleysi gagnvart siðaboðum samtímans Valdimar Stefánsson 2008
Fornmenntastefnan • Áhugi endurreisnarmanna á fornöld og leit þeirra að horfinni þekkingu í gömlum bókum leiddi til stóraukins áhuga norrænna menntamanna á fornum handritum; svonefndrar fornmenntastefnu • Á Íslandi kom þessi stefna m. a. fram í endurnýjaðri annálaritun eftir um 150 ára þögn á því sviði • Auk þess jukust stórlega uppskriftir fornra skinnhandrita en með tilkomu pappírsins varð mun auðveldara að varðveita þá fornu mennt Valdimar Stefánsson 2008
Arngrímur lærði • Á Íslandi varð séra Arngrímur Jónsson (1568 – 1648) frumkvöðull fornmenntastefnunnar • Hann stundaði viðamikið fræðastarf, safnaði og skrifaði upp gömul handrit og samdi rit um ýmis málefni • Að fyrirmælum Guðbrands Þorlákssonar ritaði hann stutt verk þar sem andmælt var missögnum útlendinga um Ísland og Íslendinga • Þekktasta verk hans er þó tvímælalaust Crymogea, Íslandssaga frá landnámi til siðbreytingar, rituð á latínu Valdimar Stefánsson 2008
Árni Magnússon • Á 17. öld vaknaði áhugi norrænna fræðimanna á fornum handritum Íslendinga og upphófst þá keppni á milli Svía og Dana um að eignast slík handrit • Áhrifamesti handritasafnari Dana er tvímælalaust Árni Magnússon (1663 – 1730) en hann var einn fremsti handritafræðingur heimsins á sínum tíma • Hann kom upp stóru safni í Kaupmannahöfn en hluti af því varð eldi að bráð árið 1728 • Eftir dauða hans var safn hans gert að Árnastofnun sem í dag er starfrækt bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn Valdimar Stefánsson 2008
Íslensk endurreisn • Endurreisnin og húmanisminn í Evrópu varð þannig til þess að Íslendingar urðu hlutgengir í menningarsamfélagi Evrópuþjóða • Endurreisnin sunnar í álfunni snerist um að uppgötva menningu fornaldar á nýjan leik en Íslendingar áttu ekkert eldra en nokkurra alda gömul rit • Eigi að síður þótti sérstaða þessarar miðaldamenningar slík að athygli vakti víðsvegar um álfuna Valdimar Stefánsson 2008