1 / 38

Jarðhiti

Jarðhiti. Há- og lághitasvæði og köld svæði Jarðhitastigull og uppruni jarðhitans Vatnshverir, leirhverir, gufuhverir og goshverir Nýting jarðhitans Goshverir. Jarðhitasvæði eru flokkuð eftir hitafari. Á háhitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi yfir 150 – 200 °C

conner
Télécharger la présentation

Jarðhiti

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Jarðhiti Há- og lághitasvæði og köld svæði Jarðhitastigull og uppruni jarðhitans Vatnshverir, leirhverir, gufuhverir og goshverir Nýting jarðhitans Goshverir

  2. Jarðhitasvæði eru flokkuð eftir hitafari • Á háhitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi yfir 150 – 200 °C • Á lághitasvæðum er hitastig á 1 km dýpi undir 150 °C • Köld svæði eru þau svæði kölluð þar sem engin virkni sést á yfirborði á stórum svæðum.

  3. Uppruni háhitans • Talið er að háhitasvæði séu nær undantekningalaust í tengslum við kólnandi kviku. • Háhitasvæði eru á gosbeltunum. • Virkni á yfirborðinu er mikil, berg ummyndað og leir og gufuhverir einkenna gróðurlaust yfirborðið.

  4. Háhitasvæði

  5. Á Reykjanesi

  6. Hræring í háhitakerfi

  7. Uppruni lághitans • Lághitasvæði eru svæði þar sem jarðhitavökvi hitnar við það að leika um berg á 1-3 km dýpi. • Vatnið berst hratt upp á yfirborðið um jarðskjálftasprungur eða sprungur meðfram berggöngum. • Varminn kemur úr bergi eða frá innskotum.

  8. Uppruni lághitans • Talið er að lághiti á yfirborði reiði sig á tvennt: Varmauppsprettu og vatnsleiðandi jarðlög. • Varmauppsprettan er í sumum tilvikum heitt berg í hraunlagastafla sem ekki hefur náð að kólna eftir að hafa rekið út úr gosbeltunum nema niður tiltekið hitagildi. • Í öðrum tilvikum er kólnandi berginnskot talið varmauppspretta og í sumum tilvikum jafnvel kvika.

  9. Deildartunguhverí Reykholtsdal

  10. Köld svæði • Köld svæði eru svæði þar sem berggrunnurinn er þéttur. Þar getur vatn (jarðhitavökvi) runnið um vatnsleiðandi jarðlög á miklu dýpi án þess að komast upp á yfirborð. • Boranir á köldum svæðum geta leitt þennan vökva upp á yfirborðið í vinnanlegu magni.

  11. Hitastigull í holum við Hofsstaði í Helgafellssveit.

  12. Hitaferlar í nokkrum borholum

  13. Grunnvatn og jarðhitavökvi • Lekt jarðlaga og úrkoma stjórna grunnvatnsbúskap tiltekinna svæða. • Hér er úrkoma og lekt víðast hagstæð fyrir grunnvatnsmyndun. Grunnvatn er upprunalega regnvatn sem lekur ofan í jarðlög. • Vatnið í jarðhitavökvanum er grunnvatn sem leitar ofan í berggrunninn og hitnar. Grunnvatn við yfirborð er ekki alltaf heitt þó það streymi djúpt í jarðlögum og hitni þar. • Eins berst grunnvatn mis djúpt. • Rennslið er mjög hægfara og til að mynda getur grunnvatn hér verið yfir 10.000 ár á leið til sjávar.

  14. Rennslisleiðir vatns af hálendinu

  15. Tálknafjörður

  16. Tengsl jarðhita og skjálftasvæða

  17. Jarðskjálftar á Íslandi

  18. Leir og gufuhverir • Leir í leirhver eru í raun steindir sem orðið hafa til við efnahvörf milli jarðhitavökvans og bergsins sem hann leikur um. • Auk þess hjálpar það til að brennisteinssýra myndast við efnahvörf milli brennisteinsvetnis og grunnvatns rétt við grunnvatnsborð. • Sýran leysir bergið hratt upp. • Leirsteindir er fjölbreyttur hópur steinda. • Gufa í gufuhverum er vatnsgufa, oft um 110-130 °C sem berst upp um sprungur í jarðlögum hverasvæðanna.

  19. Í Krísuvík

  20. Leirhver við Leirhnjúk

  21. Í Krísuvík

  22. Gunnuhver á Reykjanesi

  23. Vatnshverir eru bæði á há- og lághitasvæðum

  24. Reykjadalur á Torfajökulssvæðinu

  25. Hrafntinnusker

  26. Brennisteinsalda séð frá Landmannalaugum

  27. Horft yfir Landmannalaugar til Heklu

  28. Torfajökulsvæðið

  29. Virkjun háhitans Borhola á Hellisheiði. Í fjarska sér til Esju; Kistufell, Móskarðs- Hnjúkar og Skálafell.

  30. Umhverfisáhrif af virkjun háhitasvæða eru að verulegu leiti sjón- ræn og afturkræf en þó ekki að öllu leiti. Virkni í hverum minnkar og dynjandi hverir þagna.

  31. Goshverir • Goshverir koma bæði fyrir á há- og lághitasvæðum. • Þeir myndast er jarðhitavökvi sýður á nokkurra tuga metra dýpi í vatnsæð. • Suðan verður er vatn fer yfir suðumark vegna þess að þrýstingur fellur er vökvinn nálgast yfirborð.

  32. Upphaf goss í Strokki

  33. Strokkur gýs

More Related