1 / 50

Einstaklingsmiðað námsmat

Einstaklingsmiðað námsmat. Námsmatsferli og námsmatsaðferðir. Markmið. Móta námsmatsstefnu skólanna Skipuleggja og þróa einstaklingsmiðað námsmat sem byggir á fjölbreyttum aðferðum Námsmappa Matssamtal Sjálfsmat Jafningjamat Frammistöðumat. Þróa mark lista til að nota við námsmat.

cormac
Télécharger la présentation

Einstaklingsmiðað námsmat

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Einstaklingsmiðað námsmat Námsmatsferli og námsmatsaðferðir

  2. Markmið • Móta námsmatsstefnu skólanna • Skipuleggja og þróa einstaklingsmiðað námsmat sem byggir á fjölbreyttum aðferðum • Námsmappa • Matssamtal • Sjálfsmat • Jafningjamat • Frammistöðumat Þróa mark lista til að nota við námsmat

  3. Móta námsmatsstefnu • Stefna er grundvallarþáttur í öllu skólastarfi • Stefnumótun er hluti af ferli og unnin á mörgum stigum • Námsmatsstefna er tengd skólastefnu • Námsmat og annað mat gefur til kynna stöðu gagnvart stefnu

  4. Stefna á ólíkum sviðum Íslands- Reykjavíkur- Skóla- Aðalnámskrá, lög um grunnskóla Skólastefna Reykjavíkur Bekkjar- hóps- Stefna skólanna Einstaklings- Áherslur og markmið hópa Einstaklings- markmið

  5. Verkefni • Hugsið um hvernig þið nýtið námsmat í ykkar kennslu/hvernig námsmati þið hafið tekið þátt í sem nemendur, skráið niður nokkur atriði • Ræðið við sessunaut  • Skráið nokkur af þeim atriðum sem fram koma í umræðum  Þetta er: “hugsa, (skrá), ræða, deila” aðferðin ;-)

  6. Leiðsagnarmat Leiðsagnarmat er það ferli að afla upplýsinga um hvar nemandi er staddur í námi sínu og túlka þær. Leiðsagnarmat nýtist nemendum og kennurum þeirra til leiðsagnar um hvert þarf að stefna (setja sér námsmarkmið) og hvernig best sé að ná þangað. Research-based principles to guide classroom practice, Assessment Reform Group 2002

  7. Lykilatriði sem stuðla að því að námsmat efli nám • Svörun • Nemendur fáviðeigandi svörun – nemendur vita að hverju þeir stefna, hver séu næstu skref og hvernig eigi að taka þau • Þátttaka • Nemendur taka virkan þátt í eigin námi – setja sér markmið og viðmið um árangur • Kennsluaðlögun • Kennsla er löguð að niðurstöðum námsmats – ígrundun kennara og sýn á að allir geta náð auknum árangri • Áhugi og sjálfsöryggi-vitund • Viðurkennt og vitað er að námsmat hefur djúpstæð áhrif á áhuga og sjálfsálit nemenda, og að hvorutveggja hefur afgerandi áhrif á nám • Sjálfsmat og námsvitund • Nemendur þurfa að geta metið eigin getu og skilið hvernig á að eflast og ná árangri – ígrundun nemenda Assessment reform group, 1999

  8. NámsmatsferliHlutverk kennara • Skilgreina meginmarkmið námsins • Hvað á nemandinn að læra • Ákveða áfangamarkmið • Hvernig á að skipuleggja námið, námseiningar • Umorða í nemendavæn markmið • Ég er að læra að nota stóran staf og punkta í málsgreinum • Ég get flett upp á orði í orðabók og notað það við verkefnavinnu (þrm. ísl.10.b.lestur) • Ég veit hvað moska er og hver eru tákn, hátíðir og siðir islams (þrm. Kf.s.t..5.b.) • Ég get samið sögu um dæmi eins og 75-32 (þrm. Stæ. 3. þrep, aðferðir-stæ og tungumál) • Hanna viðeigandi námsmat • Hvað þarf nemandinn að sýna til að hafa numið • Viðmið um árangur • Nota matið með nemendum til að varða leiðina að markmiðum Rick Stiggins 2004

  9. Meginatriði sem huga þarf að • Nemendavæn markmið frá upphafi • Sýnidæmi um hvað er góð vinna, að hverju er verið að stefna • Stöðug svörun á framfarir • Kenna sjálfsmat og að setja sér markmið • Kenna íhugun/ígrundun til að fylgjast með eigin námi Rick Stiggins 2004

  10. Hvernig stend ég mig? Hvað get ég munað og hvernig fæ ég betur skilið? Nota ég bestu námsaðferðir fyrir mig? Hvað þarf ég að gera til að bæta mig? Hvar er ég sterkur og hverjir eru veikleikar mínir? Hvernig veit ég hvort vinna mín sé góð? Hver eru markmiðin mín? Að hvaða atriðum þarf ég að einbeita mér við upprifjun? Hvað fær mig virkilega til að hugsa? Hvernig fer ég að því að ná árangri og taka framförum?

  11. Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? Má ég koma með spurningu? Ef ég var dæmd fyrir hversu vel ég lagði mig fram. Er víravirkið mitt dæmt sem víra-virki? Eða var ég metin eftir hæfileikum mínum? ? Hvernig getur maður fengið C fyrir víravirki? Þá er ég dæmd á grundvelli þess sem ég ræð engu um! Þá er matið ósanngjarnt því að ég reyndi mitt besta! Er það ekki bara tíminn einn sem getur skorið úr um gildi listaverks?

  12. Var ég metin eftir því hvað ég hafði lært um viðfangsefnið? Ættir þú kennari þá ekki að fá C eins og ég... Eða var ég kannski metin samkvæmt gæðum efnisins sem ég bjó verkið úr? Á að dæma mig eftir gæðum járnherðatrésins sem hreinsunin notar fyrir fötin okkar? Láti maður í sér heyra er meira tillit tekið til manns. Hjólið sem ískrar fær alla smurninguna! fyrir frammistöðu þína við að miðla þekkingu til mín? Er það ekki einnig óréttlátt? Er það ekki á ábyrgð foreldra minna? Ættu þeir ekki að fá sinn skerf af C-inu mínu?

  13. Námsmatsaðferðir við leiðsagnarmat Möppumat, matssamtal, sjálfsmat, jafningjamat, frammistöðumat og listar

  14. Námsmappa Safn vinnu nemanda sem valin er með ákveðin markmið í huga Nemandi og kennari vinna saman að því að setja markmið með möppunni Mat eða ígrundun verður að fylgja verkunum Mappa getur nýst í námsmati og sem grunnur að matssamtali nemenda, kennara og helst foreldra einnig

  15. Saga nemandans Mappa á að segja sögu nemandans. Við það að safna, velja, skipuleggja meta og ígrunda tekur einstaklingur virkan þátt í að búa til sögu sína sem námsmaður. Innihald möppunnar gefur til kynna hvað nemandinn kann og getur. Þar á að vera hægt að fá upplýsingar um áhugasvið nemandans og kunnáttu og færni sem ekki tengist endilega skólastarfi.

  16. Mappa þarf að hafa: • Markmið nemandans • Lista yfir það sem mappan á að innihalda • Ígrundun nemanda með hverju verki • Eyðublað eða annað fyrir foreldra og kennara til að tjá sig um möppuna og einstök verk hennar Saskatchewan Professiolan Development Unit

  17. Hvers vegna möppumat? • Breytt hugsun um nám og kennslu kallar á breyttar aðferðir við mat • Áhersla á margbreytileika nemenda og fjölbreytta færni sem ekki er hægt að fá fram með hefðbundnum prófum • Gefur möguleika á þátttöku nemenda í námi og mati, eignarhald á námi sínu • Gefur upplýsingar um nám nemanda yfir ákveðið tímabil • Er undirstaða matssamtals

  18. Margs konar möppur • Möppur geta haft mismunandi tilgang • Safnmappa – meðan á vinnu stendur • Sýnimappa – valin verkefni • Ferilmappa – sýnir ferli í námi • “passportfolio” – tengist ákveðnu viðfangsefni svo sem Evrópska tungumálamappan • ...

  19. Safn vinnu nemanda sem valin er með ákveðin markmið í huga Nemandi og kennari vinna saman að því að setja markmið með möppunni Mat eða ígrundun verður að fylgja verkunum Mappa getur nýst í námsmati og sem grunnur að matssamtali nemenda, kennara og helst foreldra einnig Olga Dysthe 2005 http://skolenettet.no/moduler/templates/Module_Article.aspx?id=12366&epslanguage=NO

  20. Nemandi með möppuna sína

  21. Kassi, bók, taska eða vefsíða, diskur, lykill eða ?...

  22. Matssamtal Nemandi kynnir nám sitt fyrir foreldrum á fundi nemenda, kennara og foreldra. Nemandinn fer með aðalhlutverkið. Hann undirbýr sig fyrir fundinn og stýrir honum með því að sýna verk sín. Námsmappa gegnir oft mikilvægu hlutverki í samtalinu. Nemandinn ræðir um styrkleika sína og ef til vill hvar hann þarf að bæta sig. Það að meta og greina eigin verk er talið leiða til aukinnar ábyrgðar á námi.

  23. MatssamtalHagur nemenda • Nemandinn er í brennnidepli • Eflir ábyrgð og sjálfræði í námi • Lærir að meta eigin framgang • Skuldbinding gagnvart skólastarfi og námi eykst • Eflir samskipti foreldra og barna þeirra • Eflir samskiptahæfni og gagnrýna hugsun • Setur ábyrgðina á nemandann og foreldra

  24. MatssamtalHagur foreldra • Eykur upplýsingar sem foreldrar fá • Kynnir námsvenjur og áhugasvið barnsins • Gefur tækifæri til að hjálpa við að setja markmið • Stuðlar að virkri þátttöku í námi barna sinna • Veitir góða innsýn í nám og framfarir barnsins

  25. MatssamtalHagur kennara Minna álag á kennara í foreldraviðtali Jákvæðari andrúmsloft Setur ábyrgðina á nemandann og foreldra Eflir þátttöku foreldra

  26. Möppur og matssamtalSænsk mynd– sjá dreifildi um efni hennar Möppur – ein leið til að sjá nám sitt http://www.multimedia.skolutveckling.se/scripts/view/frame.asp?i=22895

  27. Sjálfsmat og jafningjamat Nemandi metur á gagnrýninn hátt eigin verk með hliðsjón af markmiðum og viðmiðum um árangur Getur farið fram meðan verkefni er unnið eða við lok áfanga Getur einnig verið tengt jafningjamati Curriculum corporation http://cms.curriculum.edu.au/assessment

  28. Sjálfsmat getur verið að... • Bera verk sín saman við vel unnin verk • Svara spurningum kennara sem laða fram ígrundun • Halda leiðabók • Nota matslista • Nota myndræna kortlagningu við að skipuleggja vinnu sína • Leiða matssamtal Curriculum corporation http://cms.curriculum.edu.au/assessment

  29. Hvers vegna sjálfsmat? • Nemandi • verður ábyrgur fyrir námi sínu • gerir sér grein fyrir næstu skrefum í náminu • fær betra sjálfstraust og verður jákvæðari, ég get í stað ég get ekki • er virkur þátttakandi í námi sínu, ekki bara þiggjandi kennslu • Verður sjálfstæðari og áhugasamari AAIA North East Region

  30. Hvers vegna jafningjamat/félagamat? Ein ástæða þessa að jafningjamat er eins gagnlegt og raun ber vitni er að nemendur gagnrýna og taka gagnrýni á verk sín frekar við þær aðstæður en við hefðbundið samtal nemanda og kennara. Annar kostur er að nemendur nota sitt venjulega talmál sín á milli frekar en eitthvert skóla”mál. Black o.fl. 2003

  31. Lykilatriði varðandi sjálfsmat • Leiðsagnarmat krefst þátttöku nemenda • Sjálfsmat er mat á hvað lært er • Ígrundun er mat á hvernig lært er • Það þarf að þjálfa nemendur í að meta og ígrunda • Það er hægt að meta og ígrunda á marga vegu • Í bekkjarumræðum, undir 4 , með jafningja, með þar til gerðum spurningum, með því að nemandi fari fyrst yfir verkefni, með myndrænni kortlagningu (graphic organisers), með leiðabókum/dagbókum

  32. Hvernig stend ég mig? Hvað get ég munað og hvernig fæ ég betur skilið? Nota ég bestu námsaðferðir fyrir mig? Hvað þarf ég að gera til að bæta mig? Hvar er ég sterkur og hverjir eru veikleikar mínir? Hvernig veit ég hvort vinna mín sé góð? Hver eru markmiðin mín? Að hvaða atriðum þarf ég að einbeita mér við upprifjun? Hvað fær mig virkilega til að hugsa? Hvernig fer ég að því að ná árangri og taka framförum?

  33. Sjálfsmat - ígrundunhugsað um hvað gerist við nám Veldu eitt eða tvö atriði og bættu námsmarkmiðum þínum við í stað... • Hvað fékk þig til að hugsa eða var erfitt við að læra...? • Hvað hjálpaði þér (t.d. vinur, kennari, bók, þín eigin hugsun) þegar eitthvað varð erfitt við að læra...? • Hvaða hjálp þarftu til að læra...? • Með hvað ertu ánægðastur/ust eftir að hafa lært...? • Hvað hefur þú lært sem er nýtt um...? • Hvernig vildir þú breyta þessu verkefni fyrir aðra sem eru að læra...? Shirley Clarke 2005

  34. SjálfsmatJafningjamat-félagamat með marklista Mitt nafn __________________    Félagi minn _______________: þarf að bæta OK frábærlega Takk fyrir samvinnuna 

  35. Frammistöðumat Frammistöðumat er safn matsaðferða sem meta getu nemanda við raunverulegar aðstæður svo sem lausn þrauta, verkefnavinnu, framkvæmd eða æfingu þar sem reynir á hvað hann getur. The Language of Learning: A Guide to Education Terms, by J. L. McBrien & R. S. Brandt, pp. 77-78, 1997, Alexandria, VA: Association for Supervision and Curriculum Development. Ingunnarskóli: http://www.ingunnarskoli.is/upplysingavefur/namsmat.htm Skilgreinigar: http://www.ascd.org/portal/site/ascd/menuitem.4427471c9d076deddeb3ffdb62108a0c/ http://frontpage.simnet.is/gudrunpet/namsmatid/indexmat.htm

  36. Árangursríkt frammistöðumat • Metur ekki bara getu við lausn verkefnis, heldur tekur það einnig mið af námsmarkmiðum og árangursviðmiðum • Á við í raunverulegum aðstæðum • Notar viðmið til að meta kjarnann í frammistöðu nemandans með hliðsjón af vel skilgreindum markmiðum • Felur í sér að verkefnin séu einstaklingsmiðuð og nemandi hafi eitthvert val við lausn þeirra • Gefur tækifæri til ígrundunar og sjálfsmats nemenda • Gefur nemendum tækifæri til að sýna raunverulegum áhorfendum verk sín Saskatchewan Professiolan Development Unit (Darling-Hammond, Aness, & Falk, 1995; McTighe & Wiggins, 1999)

  37. Hvers vegna frammistöðumat? • Er öflugt leiðsagnarmat • Svörun á frammistöðu fer fram jafnóðum • Gefur tækifæri að afla gagna á margvíslegan hátt • Athuganir, skráning, listar, sjálfs- og jafningjamat • Gefur möguleika á samstarfi og samvinnu • Nemendur taka þátt í að skipuleggja verkefni, setja viðmið og meta frammistöðu og afrakstur Saskatchewan Professiolan Development Unit AAC 2001

  38. Frammistöðumat sett fram með gátlista • Heilsar áhorfendum • Er róleg/ur • Kynnir efnið sem flytja á • Nefnir höfund efnis • Talar nógu hátt fyrir alla í salnum • Ber skýrt fram textann • Áherslur eru réttar • Lítur upp af og til • Þakkar fyrir sig • Gengur rólega úr pontu

  39. Frammistöðumat sett fram með matslista Ingunnarskóli

  40. Matslisti eða viðmiðunarkvarði fyrir lesskilning 1 bekkur Adapted from rubrics developed by Language Arts Committee, Walnut Creek School District, þýðing ÞBJ

  41. Matslisti Matsleiðbeiningar til að meta vinnu nemenda. Listi yfir hvaða viðmið liggja til grundvallar mati á afurð eða frammistöðu. Skýrir fyrir nemendum námsmarkmið og hvað merkir að ná þeim. Hjálpar nemendum að taka ákvarðanir með tilliti til að bæta gæði eigin vinnu.

  42. Matslisti • Nákvæm lýsing á námsmarkmiðum • Grundvöllur mats og ígrundunar • Leiðsögn við skipulag náms • Skorkort eða stöðumat • Markbundnir, meta nemanda með tilliti til árangursviðmiða

  43. Gátlisti Tengir fyrri þekkingu Spyr Sér fyrir sér Ákvarðar mikilvægi Fylgist með skilningi Dregur ályktanir Endursegir Marklisti 1 2 3 - +/- +    Tengir fyrri þekkingu   Spyr    Sér fyrir sér    Ákvarðar mikilvægi    Fylgist með skilningi    Dregur ályktanir    Endursegir    Gátlisti, marklisti og matslisti Matslisti Sjá fyrri glærur

  44. Hvers vegna matslista? Sjónarhorn kennara Hjálpar kennurum að skilgreina hvað er góður árangur og skipuleggja kennslu þannig að nemendur nái honum Tengir markmið og mat Hjálpar kennurum að vera nákvæmir, sanngjarnir og samkvæmir við fyrirgjöf Getur stuðlaða að samræmdum væntingum innan skóla, í árgangi eða deild Nýtist í matssamtali Saskatchewan Professiolan Development Unit

  45. Hvers vegna matslista? Sjónarhorn nemenda Skýrir væntingar kennara Tengir væntingar við vel skilgreinda gæðaframmistöðu Nýtist við að skipuleggja nám Styður sjálfsmat og jafningjamat Veitir markvissa svörun um hvernig eigi að bæta frammistöðu Nýtist við jafningjamat Curriculum corporation Saskatchewan Professiolan Development Unit

  46. Þátttaka nemenda við gerð matslista Taka þátt í eigin mati Tengjast náminu frá upphafi Skilja væntingar og viðmið um gæði Skilja bakgrunn mats og svörunar Curriculum corporation

  47. Viðtal við nemanda í 9. bekk • Hvað og til hvers er námsmat? • Einkunnir, tölur, það er til að bæta sig, bara til að læra, sjá á prófunum... • Tekur þú þátt í námsmati? • Nei aldrei, aldrei tekið þátt í sjálfsmati (að eigin sögn) • Til hvers eru próf? • Gá hvað við vitum mikið, (aðhald og þrýstingur) • Hvað gerir kennari með niðurstöður prófa? • Ekkert sem ég veit um • En foreldrar? • Sjá sjaldan prófin, þeir sjá bara einkunnir

  48. Viðtal við nemanda í 9. bekk • Til hvers eru niðurstöður prófa fyrir nemendur? • Þeir þurfa að læra undir þau og svo er hægt að sjá hvað þeir vita • Hvernig leiðbeinir námsmat þér í námi? • Ekkert • Taka kennarar mið af niðurstöðum prófa • Nei, við erum t.d. að læra um e-ð sem við vitum ekkert hvað er og skiljum ekkert en kennarinn heldur bara áfram og við höfum lítinn möguleika á að geta eitthvað á prófinu og svo sjáum við ekki prófið og vitum ekkert hvað við gerðum vitlaust

  49. Viðtal við nemanda í 9. bekk • Hvort viltu tölur eða umsögn eða hvorutveggja? • Fæ alltaf umsögn með einkunnum. Fínt að fá umsögn en umsögn hjálpar ekkert í náminu. Ef þarf að velja á milli einkunna og umsagna þá vil ég heldur einkunnir því þá veit ég hvað ég fékk á prófinu • Hvort heldur þú að foreldrar þínir vilji ferkar tölur eða umsögn? • Tölur • Hvernig skilur þú tölurnar 8 og 5? • 8 gengur mjög vel (en veit ekki hvernig ég á að bæta mig) 5 þá veit ég helminginn af því sem ég á að vita (en veit ekki hvorn helminginn!) • Aldrei fengið einkunn fyrir neitt annað en fögin, ekki fyrir félagslega þætti eða aðra þátttöku í skólastarfinu

More Related