1 / 13

SAMVIRKNI

Leiðir að velferð og lífshamingju. SAMVIRKNI. Mynstur fíkna – Neikvætt. Of”neysla” einhvers = ójafnvægi Mynstur fjölskyldna – Neikvætt/jákvætt. Ef neikvætt = Leita jafnvægis Mynstur erfða – neikvætt/jákvætt. Sjúkdómar = bældar tilfinningar. Leita jafnvægis. 1. Munstrin í lífi okkar.

marcin
Télécharger la présentation

SAMVIRKNI

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Leiðir að velferð og lífshamingju SAMVIRKNI

  2. Mynstur fíkna – Neikvætt. Of”neysla” einhvers = ójafnvægi • Mynstur fjölskyldna – Neikvætt/jákvætt. Ef neikvætt = Leita jafnvægis • Mynstur erfða – neikvætt/jákvætt. Sjúkdómar = bældar tilfinningar. Leita jafnvægis 1. Munstrin í lífi okkar

  3. Elska sjálfa/nn sig án sektar, sjálfvorkunnar og fordæmingar. Elska sjálfa/nn sig nákvæmlega eins og maður er • Leyfa sér en temja sér aga! Hafa jafnvægi í öllu sem við gerum, neytum og upplifum. Jafnvægi í vinnu, svefni, mat, hreyfingu og áhugamálum. Hvernig er þitt jafnvægi? • Bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. “Það sem þið viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra”. Komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur! 2. Ást

  4. Fyrirgefa sjálfum sér allt úr fortíðinni • Fyrirgefa öðrum allt úr fortíðinni • Allir hafa ávallt gert sitt besta á hverjum stað og stund. Kannski kunnum við, eða viðkomandi, ekki að hegða sér öðruvísi, bregðast við öðruvísi, vinna úr hlutunum á annann hátt á þeim tímapunkti sem úrvinnslu var þörf 3. fyrirgefning

  5. Kærleikur og ást eru nátengd: „Elska skaltu sjálfan þig einsog náunga þinn“ Það þýðir að elska sjálfa/nn sig fyrst og síðan aðra. Til að geta elskað aðra þarftu að elska sjálfa/nn þig • Kærleikur er að elska skilyrðislaust – án skilyrða • Kærleikur felst í að gefa í hvaða formi sem það er; gefa af sér af sínum tíma og gefa gjafir til þeirra sem skortir eitthvað. “Sælla er að gefa en þiggja” 4. kærleikur

  6. “Ég er sannleikurinn, vegurinn og lífið, enginn kemur til föðursins nema fyrir mig”. Sannleikurinn er okkar tilvera. Sannleikurinn er hver við erum. Innst inni erum við guðlegar verur. Við erum öll samtengd alheiminum. Okkar sál er tengd öllum öðrum sálum í heiminum. En samt er hvert og eitt okkar einstök sál • Við gefum skilaboð með „hugskeytum, með því að finna hluti á okkur, með því að skynja hluti, með því að skilja náttúruöflin. Oft afneitum við því sem við skynjum en við verðum að hlusta á okkur sjálf • Við eigum að læra að treysta á innsæi okkar; hlusta á huga okkar, hlusta á líkama okkar, hlusta á varnarorð og hvatningu okkar eigin sjálfs! Besta leiðin til þess er að eiga stund með sjálfum sér – elska að vera með sjálfum sér. Ef við elskum ekki að vera í okkar eigin félagsskap, hvernig getum við þá ætlast til þess að aðrir geti notið þess 5. Sannleikurinn

  7. Trú mín er að ég geti...(allt sem ég ætla mér) • Trú mín á að ég geti læknast... Við nefnilega getum ekki læknast, hvorki af andlegum né líkamlegum kvillum ef við trúum ekki á lækninguna! Jesús sagði við blinda manninn sem hann gaf sjón: ”Trú þín hefur læknað þig” • Trú á mína hæfileika mína til að minnka og jafnvel eyða kvillum – við búum öllum yfir hæfileikum til að lækna, heila, við verðum bara að trúa því og byrja að nota það á huglægann hátt 6. trú

  8. Trú, von og kærleikur eru náskyld. Von er það sem keyrir áfram lífsvilja okkar. Vonin er lífsneisti okkar • Til að festa von í huga okkar, hjarta og sál verðum við að “staðfesta” hana í huga okkar með því að notað orðin ÉG ER...meistari lífs míns í..., fegurst allra fljóða, hraustur, skuldlaus, ríkur, gefandi, hamingjusöm eða hamingjusamur! • Von er þrá eftir öllu því sem býður okkar – eftir öllu því sem við getum öðlast. Við þurfum bara að leyfa okkur að grípa það úr alsnægtum velviljaðs heims. Við þurfum að vita og skilja að við eigum rétt á því 7. Von

  9. Hugleiðsla – læra að þekkja sjálfa/nn sig, eigið sjálf og tengingu við æðri máttarvöld • (okkur) Æðri máttarvöld er þau sömu fyrir alla í heiminum, við bara köllum þau mismunandi orðum: Guð, Java, Jesús, Búdda Allah, jin og jang eða náttúruöflin • Læra aðferðir • Centering prayer (kjarnaíhugun) sem er hluti kristinnar íhugunar (fallegt og/eða kristið orð notað til að skapa innri kyrrð) • Innhverfar íhugunar (transcendral méditation – mantra úr tungumálinu Sanskrít notuð til að skapa innri kyrrð) • Raja Yoga hugleiðslu (Lokuð augu eða opin augu með fókus á einhvern ákveðinn punkt - innri kyrrð án orða) 8. Hugleiðsla / íhugun

  10. Nú-ið. Hér og nú. Við getum bara verið í nú-inu. Hversvegna að eyða tímanum í fortíðina sem er farin og kemur aldrei aftur! Það getur enginn verið í fortíð eða verið í framtíð. Æfum okkur í að læra að njóta augnabliksins/stundarinnar – Gerum það sem við þurfum að gera á hverjum augnabliki en leyfum okkur að hlæja, leika okkur og vera til! • Fortíðin. Við verðum að losa okkur úr fortíðarfjötrum af öllu tagi og gefa okkur leyfi til að verða frjáls. Frjáls í nú-inu – frjáls til að upplifa núið því það er það sem “er” Það er í raun ekkert annað til fyrir okkur en nú-ið í lífi okkar hverju sinni því allt er breytanlegt þó allt sé eins og það hafi alltaf verið! Hver dagur er í raun nýtt upphaf – nýr fagur áfangastaður þar sem allir draumar okkar geta ræst. Við þurfum engann farangur á þann áfangastað annann en visku fortíðarinnar. Mættum hverjum degi sem ævintýradegi í lífi okkar og uppgötvum “töfra” lífsins! • Framtíðin. Framtíðin er von og ósk um eitthvað enn betra, enn meiri lífsfyllingu og dýpri visku. “Deja vu” upplifun er í raun “Er að eiga sér stað” upplifun í nú-inu. Því þegar við upplifun það sem kallað hefur verið Deja vu þá erum við í raunveruleikanum að upplifa það sem við áður höfðum fengið að sjá í lífsbók okkar! 9. Nú-ið

  11. Markmið – framtíðarsýn. Búa sér til sýn hvernig maður vill sjá líf sitt, sig, sínar aðstæður. Búa til mynd í huga sér og jafnvel skrifa niður á blað. Punktum hjá okkur framtíðardrauma, sjáum þá fyrir okkar í okkar eigin hugskoti, gerum það sem í okkar valdi stendur til að láta það rætast og látum alheimsorkuna um að vinna restina fyrir okkur. Leita eftir því sem maður ELSKAR að gera • Okkar eigin gildismat: • Hafa eigin gildi að leiðarljósi sbr: heiðarleika, virðingu og jafnrétti • Hafa eigin siðfræðireglur • Hafa þekkingu á dyggðunum sjö; visku, hófstillingu, hreysti(hugrekki), réttlæti og trú, von og kærleik sem áður hefur verið nefnt • Allt sem við gerum hér á jörð er viðbótar viska, sumir læra mikið og aðrir læra minna en við förum öll fram á við. Við fetum þannig öll veginn fram á við til eilífðarlífsins 10. LífSsýn

  12. Velferð okkar er í okkar eigin höndum og hamingja okkar getur ekki verið annarsstaðar en þar sem við erum • Það getur enginn gefið okkur hamingjuna nema við sjálf því við ráðum alltaf hvernig við bregðust við umhverfi okkar, hvernig við bregðust við þeim sem eru í kringum okkar og hvernig við bregðust við aðstæðum. Það ræður því enginn nema við sjálf. • Elskum okkur það mikið að við leyfum okkur að nota alla hæfileika okkar, eigin visku og stundum þekkingu annarra til að taka ábyrgð á eigin velferð og lífshamingju! Velferð og lífshamingja

  13. María Jónasdóttir, NLP master practitioner. Undirvitunarfræði, ráðgjöf, leiðsögn. Allir.is • Sími: 858-5900 • Tölvupóstur: maria.jonas@simnet.is • Heimasíða: www.allir.is Fyrirlesari

More Related