1 / 23

Guðbergur Rúnarsson, Landssamband fiskeldisstöðva

Norðmenn – leyfisveitingar og skipulagsmál í fiskeldi Gullestad skýrslan – Effektiv og bærekraftig arealbruk í havbruksnæringen. Guðbergur Rúnarsson, Landssamband fiskeldisstöðva. Nýting fóðurs. 1,2 milljón tonn af fóðri í laxeldi gaf: 550.000 tonn af bein- og roðlausum fiski

ulani
Télécharger la présentation

Guðbergur Rúnarsson, Landssamband fiskeldisstöðva

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Norðmenn – leyfisveitingar og skipulagsmál í fiskeldiGullestad skýrslan – Effektiv og bærekraftigarealbruk í havbruksnæringen Guðbergur Rúnarsson, Landssamband fiskeldisstöðva

  2. Nýting fóðurs • 1,2 milljón tonn af fóðri í laxeldi gaf: • 550.000 tonn af bein- og roðlausum fiski • Hefði aðeins dugað til að framleiða: • 270.000 tonn af bein- skinnlausum kjúklingakjöti eða • 160.000 tonn af svínakjöti.

  3. Þróun í Noregi • Ótrúleg þróun fiskeldis í Noregi s.l. 40 ár • frá 531 tonni 1971 í u.þ.b. 1 milljón tonna 2010 • ein mikilvægasta atvinnugrein strandsvæðanna • Ótrúlegir hæfileikar greinarinnar að leysa vandamál sem upp hafa komið: tækni, rekstur, heilbrigði, eldi, fóður, markaðssetning. • Grundvöllur þess að fiskeldi verður mikilvægasta útflutningsgreinin í Noregi þegar olíuævintýrinulýkur. • Samkeppnisforskot Norðmanna eru einstakar aðstæður fyrir eldi í sjó. • Nú er svo komið að lítið er eftir af heppilegum svæðum og þá helst í Norður Noregi

  4. Stefna Norðmanna um umhverfisvænt og sjálfbært fiskeldi frá 2009 • Sjúkdómar í fiskeldi hafi ekki áhrif á villtan fisk, og stærsti hluti eldisfisksins vaxi í sláturstærð með lágmarks lyfjanotkun. • Fiskeldi í sjó hafi ekki áhrif á breytingar á erfðaeiginleikum villtra fiskstofna. • Allar eldisstöðvar í rekstri uppfylli reglur um ásættanlegt umhverfisástand, og losa ekki næringarsölt og úrgang umfram þolmörk viðtaka. • Skipulegt fiskeldi í sjó og svæðanotkun þess minnki umhverfisáhrif og hættu á sjúkdómasmiti. • Þörf fiskeldisins fyrir fóður er mætt án þess að ógna villtum sjávardýrastofnum.

  5. Gullestad nefndin í Noregi • Þrjár forsendur nefndarinnar um þróun fiskeldis í Noregi: • Strandsvæði Noregs verði skipt upp í aðskilin eldissvæði með eldisstaðsetningum • Aðgerðar á eldissvæðum skulu stjórnast af skilgreindum vísum (indikatorum) og verlagsreglum (handlingsregler) • Eldisfyrirtækin á einstökum eldissvæðum fái meira hlutverk og samfélagsábyrgð við að lausn á sameiginlegum viðfangsefnum.

  6. Norska nefndin • Engin ný eldisleyfi eða aukning á MTB þar til að framleiðslusvæði hafa verið skilgreind • Svæði fyrir lokuð kerfi eru aðgengileg • Hækka mörk þyngdar á seiðum fyrir útsetningu upp fyrir 250 gr. • Auka og stækka fiskeldi á landi • Styrkja og auka umhverfisvöktun hjá stórum eldisstöðvum og deildum þeirra. • Umsóknum um stofnun eða stækkun á seiðaeldisstöðvum í forgang.

  7. Gullestad nefndin fra.h • Ráðleggur eldisfyrirtækjunum að skipuleggja sameiginleg verkefni á framleiðslusvæðunum • Nefndin leggur til að ríkið kom fram með væntingar um svæðaskipulag í fiskeldi • Gerð verði “pilot” eldistöð fyrir sjálfbært eldi • Gerður verði vegvísir um skipulag fiskeldisins • Ráðleggur að eftir nokkur ár verði það metið af sveitarfélögum hvort fasteignaskattur á fljótandi fiskeldismannvirki í sjó hafi haft æskileg áhrif. • Þörf á vísinda- og rannsóknaverkefnum: lokuð kerfi, sjúkdómar, sníkjudýr, fóður, flutningar, áhrif á umhverfi og velferð fiska svo eitthvað sé nefnt.

  8. Norsk strandsvæði • Norsk strandsvæði er stærsti almenningur í Noregi. Þar er öllum frjáls för, tómstundaveiði heimil og aðgangur fyrir alla. Aðgangur er þó takmarkaður við fiskeldissvæðin. • Með nýtingu á strandsvæðanna, vali milli ólíkra hagsmuna koma fram ýmis vandamál sem eru aðkallandi og þarf að takast á við og leysa. • Hvernig næst góð skipting svæða milli mismunandi nýtingahagsmuna? Á hvað á að leggja áherslu? • Ríkið, fylki, landshlutar og sveitarfélög standa frammi fyrir þeirri áskorun að stýra nýtingu stórra strandsvæða. • Fiskeldi í Noregi er stór iðnaður. Eldislaxinn með ákjósanlegum framleiðslu- og markaðskostum er sigurvegarinn. • Í mörgum tilvikum fellur stjórnsýsla undir nokkur sveitarfélög. Í slíkum tilfellum er þörf á sameiginlegu átaki sveitarfélaganna í skipulagsmálum.

  9. Fylkiskommunen meðhöndlar allar fiskeldisumsóknir • “Soner” Svæði, árgangasvæði, branngater • Ein aðaláhersla er á að skipta strandsvæði Noregs í “soner” eldissvæði sem síðan er skipt niður í útsetningarsvæði fyrir vorfisk (sone 1) og svæði fyrir haustfisk (sone 2) • Með slíku fyrirkomulagi er hugsunin sú að allur fiskur fari í/úr kvíum á sama/(svipuðum) tíma. Eftir slátrun eru svæði hvíld til að minnka áhættu t.d. af völdum vírusa, snýkjudýra o.fl. • Hugtakið “branngater” eru aðliggjandi eldisfrí svæði, hugsuð til að hindra að smit berist á milli svæða. • 1000 svæði eru fyrir lax. 600 eru í rekstri. Svæði í hvíld eftir slátrun

  10. Dæmi um verklagsreglur • Bannað verði að flytja seiði, tæki og búnað milli eldissvæða • Mikið tap í eldisrekstri á ákveðnu svæði er merki um slæma nýtingu strandsvæðis • Minnka lífmassa á svæðum með mikið tap • Stuðla að flutningi til svæða með lítið tap.

  11. Umhverfisáhrif frá fiskeldi • Losun á lífrænum úrgangi og næringarsöltum • Losun á lyfjaleyfum og ýmsum efnum • Áhrif á villtan lax og sjóbirting • Áhrif á sjávardýrastofna, fisk, skeldýr og lindýr • Áhrif á fugla og spendýr

  12. Smáar og stórar eldisstöðvar • Stærðaraukning í sjókvíum eykur ekki líkur á sjúkdómum, en • afleiðingarnar af sjúkdómum eru mun meiri • gerir kröfu um áreiðanlegt rekstrarverklag og mikla tækni • Stærri stöðvar • gera mögulegt og er forsenda þess að bæta nýtingu svæða

  13. Hvíld svæða • Hvíld svæða minnkar smit í umhverfinu • áhrifin eru háð mörgum þáttum • Hvíld er notað sem fyrirbyggjandi aðgerð • staðsetningar minnst 2 mánuðir • Kappkosta hvíla svæði í 1 mánuð • Framkvæmd er misjöfn • Hvíld búnaðar og svæða er framkvæmd til að koma í veg fyrir að útbreiðslu sjúkdóma í fiskeldi.

  14. Heilbrigðisástand í laxeldi í Noregi • Gott eftirlit með bakteríusjúkdómum - leiðir til minni lyfja- og efnanotkun. • Áskorunin eru – “gömlu og nýju” vírussjúkdómarnir • Laxalúsin er stærsta áskorunin • Hlutfallslega er mikið tap sem stafar af sjúkdómum.

  15. Snerting við vatn og útbreiðsla smits • Smit breiðist út með vatni milli fiska • Vatnið/sjórinn er áhrifamesta smitleiðin fyrir flesta sjúkdóma ásamt flutningi á lifandi fiski • Rannsóknir sýna að fjarlægð milli stöðva er mikilvægur áhættuþáttur • Niðurstaða. Straumhraði, straumátt og fjarlægð milli stöðva • Fjarlægð notuð sem aðalforsenda • Straumfræðimódel er stundum notað – Það er mikilvægt verkfæri við mat á smitáhættu.

  16. Ástæður fyrir framleiðslutapi í fiskeldi • Tap er mismunandi eftir fylkjum í Noregi • Í Færeyjum liggur tap í milli 5-10% • Noregi að meðaltali í kringum 20% • Um 80% þess er fiskdauði • og Skotlandi allt að 28% • Mikilvægir áhættuþættir fyrir tapi: • Vatnsgæði í seiðaeldi og gæði seiða • Staðsetningar og rekstur sjókvíastöðva • Fjöldi fiska í sjókví • Gæði eldissjávar og umhverfisþættir í staðsetningu.

  17. Framleiðslusvæði • Fjórar norskar stofnanir; Matvælastofa, Fiskistofa, Loftlags-og fráveitustofa og Auðlindastofa vilja taka upp svæðaskipulag, skilgreind framleiðslusvæði og verklagsreglur til að bæta svæðanýtingu með lágmarks umhverfisáhrifum frá fiskeldi. • Norsku stofnanirnar eru sammála um: • skipuleggja framleiðslusvæði í fiskeldi, aðskilin með svæðum með engu fiskeldi, branngater • skilgreina verklagsreglur og vísbendingar/kennitölur (indikatora) sem sýna góða nýtingu svæðis í fiskeldi á viðunandi hátt. • Strandsvæði ber að kortleggja ýtarlegar upplýsingar um strauma til að hafa besta vísindalegan grunn til að staðsetja fiskeldi miðað við umhverfi og smithættu. • Taka meira tillit til umhverfisins en nú er gert en einnig heilbrigði fisks og velferð fiska. • Margar stofnanir eru í ákvörðunarferlinu og eðlilegt þykir að kanna hvernig stofnanirnar framkvæma tillögur nefndarinnar með sem hagkvæmustum hætti.

  18. Einföld mynd af umsóknarferli fyrir fiskeldi í Noregi Heimild:

More Related