1 / 26

Hlutverk næringarefnanna

Hlutverk næringarefnanna . Kolvetni gefa orku veita nauðsynleg trefjaefni Fita gefur orku veitir lífsnauðsynlegar fitusýrur er nauðsynleg fyrir nýtingu fituleysanlegra vítamína Prótein eru byggingar- og viðhaldsefni fyrir vefi líkamans, og próteinsambönd gefa orku.

aviva
Télécharger la présentation

Hlutverk næringarefnanna

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Hlutverk næringarefnanna • Kolvetni • gefa orku • veita nauðsynleg trefjaefni • Fita • gefur orku • veitir lífsnauðsynlegar fitusýrur • er nauðsynleg fyrir nýtingu fituleysanlegra vítamína • Prótein • eru byggingar- og viðhaldsefni fyrir vefi líkamans, og próteinsambönd • gefa orku

  2. Hlutverk næringarefnanna • Steinefni - m.a. nauðsynleg: • fyrir beinagrind, tennur og blóð • sem byggingar- og viðhaldsefni fyrir vefi • sem hjálparhvatar í efnaskiptum líkamans • Vítamín • taka þátt í efnaskiptum líkamans • eru nauðsynleg til þess að við getum notfært okkur önnur næringarefni

  3. Hlutverk næringarefnanna • Trefjaefni • nauðsynleg fyrir góða meltingu • forvörn hægðatregðu • tempra frásog í þörmum • Vatn • flytur næringarefni um líkamann og úrgangsefni út úr honum • hefur áhrif á lögun vefja • temprar líkamshitann

  4. Hluverk fæðunnar/næringarefna • Að veita líkamanum orku • fyrir grunnstarfsemi líffæra, hreyfingu/vinnu • til að halda á sér hita • Að veita líkamanum nauðsynleg næringarefni til uppbyggingar, þroska og viðhalds vefja og efnasambanda • Að veita líkamanum þau efni sem stilla og sjórna efnaskiptunum.

  5. Samsetning líkamans • Þú ert það sem þú borðar ! • Í líkama okkar eru sömu efnin og við fáum úr matnum • Mestur hluti líkamans er vatn, þar næst koma prótein og fita, síðan steinefni, en mjög lítið er af kolvetnum og vítamínum • Samsetning líkamans mjög misjöfn - hlutföll vefjategunda breytileg

  6. Næring og heilsa. • Lítil, einhæf og næringarsnauð fæða í lengri tíma er óæskilegt fyrir líkamann: • lélegri starfsemi líffæra • lélegra ónæmiskerfi => oftar með kvef/flensu • lélegra blóðflæði => minna úthald, orkuleysi • lélegra frásog næringarefna • hægari orkubrennsla • hægari vöxtur og þroski • verri einbeiting í námi • lélegra úthald í námi og/eða íþróttum

  7. Röng næring -velferðarsjúkdómar • Hjarta- og æðasjúkdómar • Háþrýstingur • Offita • Sykursýki týpa 2 • Krabbamein • Meltingarfærakvillar • gallsteinar, hægðatregða • Beinþynning • Blóðleysi • Tannskemmdir

  8. Manneldismarkmið Íslands(www.manneldi.is) • Íslensk manneldismarkmið komu fyrst 1987 - endurútg. 1994 • Áður stuðst við samnorræn markmið • Eru í dag hliðstæð manneldismarkmiðum nágrannaþjóðanna • Hér eru þó hófsamari breytingar í rétta átt • hærra fituhlutfall • meiri saltneysla

  9. Manneldismarkmið Íslands • Ábendingar um heilsusamlegt mataræði • Miðast við þarfir alls þorra heilbrigðs fólks • Gilda fyrir börn frá 2ja ára aldri , unglinga og fullorðna • Sömu ráðleggingar til barna og unglinga um mataræði að öllu leyti nema fyrir fitu • Tilgangur þeirra er • að stuðla að æskilegri þróun í mataræði • að efla heilbrigði

  10. Ráðlagðir dagsskammtar • Settir af Manneldisráði Íslands • Taka mið af samnorrænum ráðleggingum • RDS eru það magn nauðsynlegra næringarefna sem talið er fullnægja þörfum alls þorra heilbrigðs fólks. • fyrirburar og sjúklingar hafa oft aðrar næringarþarfir • Ekki eru til RDS fyrir öll nauðsynleg næringarefni • fjölbreytt fæði tryggir inntöku allra næringarefna

  11. Ráðlagðir dagsskammtar(www.manneldi.is) • Segja ekki til um einstaklingsbundnar þarfir • þarfir fólks fyrir næringarefni eru mjög breytilegar • RDS-gildin eru sett hærri en þörf allflestra einstaklinga • Notagildi RDS: • til að meta næringargildi fæðis fyrir hópa fólks • viðmiðunargildi fyrir hollt fæði

  12. Notagildi Manneldismarkmiðanna og RDS • Leiðbeiningar við ákvörðun á mataræði fyrir hópa (sjúkrahús, elliheimili, leikskóla) • Grunnur fyrir kennslu og fræðslu um æskilegt og heilsusamlegt mataræði • Grunnur fyrir næringarlegar pólitískar ákvarðanir • Grunnur til þess að leggja mat á mataræði hópa og viðmið fyrir einstaklinga

  13. Kjarni markmiðanna: • Mataræði skal miðast við að fólk haldi eðlilegri líkamsþyngd, og að börn vaxi og þroskist eðlilega • Að borða fjölbreytta fæðu úr öllum fæðuflokkunum 6….. • …. í þeim hlutföllum orkuefna sem æskilegust þykja

  14. Kjarni markmiðanna: • Að draga úr fituneyslu - en einnig breyta fitusamsetningu • Að auka neyslu á sterkju- og trefjaríkum fæðutegundum • Að draga verulega úr notkun á fínunnum sykri • Að minnka óhóflega notkun á salti

  15. FITA fullorðnir 25 - 35% börn 30 - 35% þar af mest 15% mettuð fita KOLVETNI 50 - 60% þar af mest 10% fínunninn sykur PRÓTEIN 10 - 15% 9 kkal/g fita 4 kkal/g kolvetni 4 kkal/g prótein Æskileg hlutföll orkuefnanna af heildarorkuinntaki

  16. Fæðuhringurinn • Sex flokkar skipt eftir; • fæðutegundum • næringargildi • Misstórir geirar • undirstrikar vægi hvers fyrir sig • Skammtakerfi; • 6-11 skammtar úr kornflokki • 3-5 skammtar af grænmeti • 2-4 skammtar af ávöxtum • 2-3 skammtar úr kjötfl. • 2-4 skammtar úr mjólkurfl.

  17. Æskilegt er að borða daglega: • Gróf brauð eða annan kornmat • Að minnsta kosti 100g af grænmeti fyrir utan kartöflur • 1-2 ávexti • 2-3 glös af mjólk eða annan mjólkurmat • Fisk, kjöt egg eða baunir • Taka lýsi, lýsispillur eða annan D-vít.-gjafa - a.m.k. á veturna!

  18. Af hverju fjölbreytt fæði? • Allar fæðutegundir gefa líkamanum eitthvað sem hann getur nýtt sér • Engin ein fæðutegund er sett saman á fullkominn hátt - (mjólk, egg - næstum því!) • Enginn einn fæðuflokkur gefur öll þau næringarefni sem við þurfum á að halda í nægjanlega miklu magni • Einhæft fæði eykur líkurnar á næringarefna-skorti í einhverri mynd

  19. Fjölbreytt fæði æskilegt. • Mikilvægt að borða daglega úr öllum fæðuflokkunum 6…… • …en einnig mikilvægt að borða fjölbreytt innan hvers fæðuflokks fyrir sig • Svo þetta sé mögulegt er nauðsynlegt að borða oft og reglulega yfir daginn

  20. Mataræðisvenjur. • Reglubundin neysla er æskileg • stutt á milli mála => minni hætta á ofáti • sjaldan mjög svangur/svöng • orkuefnabrennslan verður stöðugri og meiri • Orkuefnin nýtast betur fyrripart dags • oftast meiri líkamleg áreynsla • að borða heita máltíð í hádeginu æskilegra • Morgunmatur er mikilvægur • minni hætta á óreglu á máltíðum og í fæðuvali

  21. Reglulegar máltíðir: • 3 aðalmáltíðir - heildarorka dagsins: • morgunmatur - 25% orkunnar • hádegismatur - 30% orkunnar • kvöldmatur - 30% orkunnar • 2-3 millibitar - samtals 15% orkunnar • etv. morgunbiti • síðdegisbiti • kvöldbiti

  22. Morgunmatur mikilvægur? • Orkuefnin nýtast best fyrri hluta dags • Auðveldara að halda þyngd sinni innan eðlilegra marka • Börn sýna betri árangur í námi • betri einbeiting • svöng börn verða eirðarlaus og/eða þreytt • Rannsókn Manneldisráðs ‘92-’93; • nemendur sem borða morgunverð flesta /alla daga borða almennt næringarríkara fæði • fá 50% meira af flestum nauðsynl. nær.efnum • börn sýna betri árangur í námi

  23. Fæðuleiðbeiningar • Fæðuhringurinn - sex fæðuflokkar • Fæðupýramídinn - þrír fæðuflokkar • Fæðuflokkarnir fjórir - skammtakerfið • Einingakerfi/skiptilistakerfi

  24. Fæðuflokkarnir fjórir - ráðlagðir dagskammtar - • Mjólkurflokkur 2 skammtar • börn/unglingar 3-4 skammta • barnshafandi/mjólkandi 4 skammta • konur á breytingaskeiði 4 skammta • Kjötflokkur 2 skammtar • Kornflokkur 4 skammtar • Garðávaxtaflokkur 4 skammtar • Meiri orkuþörf => fleiri skammtar

  25. Fæðubótarefni - skilgreining: • Vara sem inniheldur efni í meira magni en gengur og gerist, sem neytt er með venjulegu fæði. • einstaka vítamín, steinefni, amínósýrur, fitusýrur eða sambland þessarra efna. • Tilgangurinn að kalla fram næringar- eða lífeðlisfræðilega eiginleika. • Ætti að vera viðbótvið lélega fæðu en ekki koma í staðinn fyrir.

  26. Er nauðsynlegt að taka inn vítamín og steinefni ? • Ekki nauðsynlegt fyrir ALLA • Ef mataræðið er fjölbreytt og gott þarf ekki að bæta það upp með auka vít.- og steinefnum • Áhættuhópar: • þeir sem borða einhæft og mjög lítið í lengri tíma • þeir sem eru í mjög mikilli toppíþróttaþjálfun • stelpur/konur sem hafa mjög miklar blæðingar, eru þungaðar, eða hafa barn á brjósti • grænmetisætur sem forðast alveg alla dýrafæðu

More Related