1 / 27

Ingvar Sigurgeirsson

Ingvar Sigurgeirsson. Spjall við kennara Fjölbrautaskóla Snæfellinga Námsmat í deiglu. Dagskrá. Inngangur: Á litamál og hugtök Námsmat í framhaldsskólum hér á landi – ákvæði námskrár Efst á baugi: Þýðing og þáttur prófa Efst á baugi: Leiðsagnarmat

irma
Télécharger la présentation

Ingvar Sigurgeirsson

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara Fjölbrautaskóla Snæfellinga Námsmat í deiglu

  2. Dagskrá • Inngangur: • Álitamál og hugtök • Námsmat í framhaldsskólum hér á landi – ákvæði námskrár • Efst á baugi: • Þýðing og þáttur prófa • Efst á baugi: • Leiðsagnarmat • Óhefðbundið námsmat, stöðugt mat, einstaklingsmiðað námsmat

  3. Vandi • Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhalds-skólum hér á landi! • Raunar er sáralítið vitað um framhaldsskólann yfirleitt!!! • Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG)

  4. Bakgrunnur • Gróska í kennslu- og námsmatsfræðum – einnig hér á landi • Gerjun og deilur: Bandaríkin (prófin / óhefðbundið námsmat, England (prófin / leiðsagnarmat) • Margir grunnskólar hér á landi vinna nú skipulega að þróun námsmats: Laugalækjarskóli, Ingunnarskóli, Norðlingaskóli, Salaskóli og margir fleiri • Áhugaverðar rannsóknir á námsmatsaðferðum í grunnskólum: Erna Ingibjörg Pálsdóttir, Rúnar Sigþórsson

  5. Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður. Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti. Námsmatshugtakið • Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til annarra Óformlegt námsmat – formlegt námsmat

  6. Hver eru helstu námsmatsverkin?Hversu stór hluti af starfi framhaldsskólakennara er námsmat?

  7. Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati í framhaldsskólum yfirleitt háttað? • Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? • Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? • Er vel staðið að námsmati? Hvað þarf helst að bæta eða þróa? Hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? • Hvernig ber að skilja ákvæði aðalnámskrár? Á hvaða námsmatsaðferðir ber að leggja áherslu samkvæmt námskránni? • Á hverju á að byggja þróun námsmats?

  8. Ákvæði Aðalnámskrár 1999 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemandi hefur tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.

  9. Ákvæði Aðalnámskrár 1999: Náttúrufræði Námsmat skal byggjast á • lokamarkmiðum með náttúrufræðinámi er varða greinar námssviðsins, vinnubrögð og færni, svo og skilning á hlutverki og eðli náttúruvísinda • kröfum sem gerðar eru í markmiðum einstakra áfanga Þess skal gætt að námsmat taki til allra þátta námsins. Með því er átt við að auk þekkingarmarkmiða beri að meta færni-, skilnings- og viðhorfamarkmið á margvíslegan hátt auk framfara, vinnulags og hugkvæmni nemandans. Mikilvægt er að matið sé upplýsandi fyrir nemendur og foreldra og um leið hvetjandi. Auk mats á stöðu nemenda er æskilegt, þar sem það á við, að matið feli í sér upplýsingar um leiðir sem nemandinn getur farið til að bæta stöðu sína. Sú vitneskja, sem námsmatið veitir, hjálpar einnig skólastjórnendum við námsskipan og kennurum til nýrrar markmiðssetningar og getur oft gefið tilefni til breytinga á námsefni, niðurröðun þess á skólaárið og kennsluaðferðum.

  10. Ákvæði Aðalnámskrár 1999: Samf.gr Námsmatið skal vera í samræmi við markmið náms eins og þau eru sett fram í aðalnámskrá og skólanámskrám … Aðferðir til námsmats eru margvíslegar og varða bæði tímasetningu þess, viðfang og vinnulag. Sem dæmi má nefna • símat á öllum námstímanum • lokapróf að námsáfanga loknum, annaðhvort munnleg eða skrifleg • mat á verkefnum af ýmsu tagi • mat á vinnuferli við verkefnin Í samfélagsgreinum geta allar þessar leiðir átt við - og fleiri til - allt eftir markmiðum náms hverju sinni. Ef t.d. er ætlast til þess að nemendur tileinki sér ákveðinn þekkingarforða getur einfalt skriflegt próf verið viðeigandi. Ef unnið er að stórri ritgerð í námsáfanga hlýtur mat á henni að vega þungt. Ef lögð er áhersla á vinnubrögð við gerð slíkrar ritgerðar þarf að meta vinnu nemenda sérstaklega en ekki lokaafurðina eingöngu. Þetta má gera með því að fylgjast með vinnunni milliliðalaust eða með því að nemendur haldi dagbók (leiðarbók). Ef markmiðið er að nemendur þjálfist í að tjá sig eða rökræða mál þarf að meta tjáninguna sjálfa og rökræðuna. Í öllum tilvikum er nauðsynlegt að nemendum sé ljóst fyrir fram hvað og hvernig eigi að meta og að niðurstöðurnar séu sundurliðaðar og skýrar. Á fyrri stigum náms í samfélagsgreinum eru skrifleg próf oft uppistaðan. Rétt er að gæta þess engu að síður að öll markmið séu metin svo að t.d. sköpun, sjálfstæði, rökræða og önnur tjáning fái einnig rými. Til þessa getur verið gagn að því að meta munnlega frammistöðu, framsetningu efnis eða lítil sjálfstæð verkefni. Að jafnaði eykst hlutfall verkefna eftir því sem lengra dregur í náminu.

  11. Tilgangur námsmats!? Námshvatning – aðhald Upplýsingar til nemenda, foreldra, annarra Vísbendingar til kennara Greina og meta nám eða kennslu Gæðaeftirlit Gera tilgang námsins ljósari Val og flokkun á fólki

  12. Önnur sjónarmið um tilgang námsmats (hin dulda námskrá) • Búa nemendur undir lífsbaráttuna • Halda aga • Umbuna eða refsa? • Styrkja vald kennarans? • Ógnun • Eyða tíma!?

  13. Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ? Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ? • ... er flókið • það er afdrifaríkt • fyrir þróun sjálfsmyndar • fyrir starfsval og starfsframa • ... reynir mjög á sanngirni og réttlætiskennd • ... tengist ólíkum viðhorfum • ... tengist fordómum okkar • ... manneskjan er ótraust mælitæki!

  14. Rannsókn Lucas (1971) Lucas (1971) lét 6 prófdómara meta 44 úrlausnir á stúdentsprófi í líffræði. Gefnar voru einkunnir á bilinu 0-6: • Ein úrlausn fékk sömu einkunn allra prófdómaranna. • 19 úrlausnir fengu tvær einkunnir • 12 fengu þrjár einkunnir • 12 úrlausnir fengu ýmist 0 eða 3 • Ein fékk bæði 0 og 4

  15. Nokkur mikilvæg námsmatshugtök Greinandi mat:Til að greina námserfiðleika (Diagnostic Assessment) Stöðumat:Hvar stendur nemandinn? (Placement Assessment) Leiðsagnarmat:Til að bæta námið (Formative Assessment) Heildarmat (yfirlitsmat):Til að meta námsárangur þegar kennslu er lokið (Summative Evaluation) Símat:Stöðugt námsmat á námstíma (Continuous Assessment / Ongoing Assessment)

  16. Leiðsagnarmat (lykilhugtak í einstaklingsmiðuðu námi) • Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) • Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni fram á þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur • Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati • Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilja markmiðin) (Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

  17. Endurgjöf „Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar um frammistöðu nemanda; hrósar því sem vel er gert eða athyglisvert, bendir á bresti og sem flestar færar leiðir til úrbóta.“(Rowntree, 1983, 29).

  18. Álitamál álitamálanna!Hvaða hlutkverki gegna próf í námsmati?Hvaða hlutverki eiga þau að gegna?

  19. Dæmi um mikilvæga þætti sem erfitt er að meta með skriflegum kunnáttuprófum • Umræður, upplestur, tilraunir, • tjáning, vinnubrögð, leikni í samskiptum Leikni • Umgengni, ástundun, iðni, frumkvæði, • áræðni, úthald Vinnuvenjur Félagsleg viðhorf • Tillitssemi, umhyggja, löngun til • að stuðla að góðum samskiptum Viðhorf til þekkingar • Forvitni, opinn og spurull hugur Áhugi • Áhugi Starfsgleði • Ánægja – gleði Sjálfsmynd • Virðing, geta tekið gagnrýni

  20. Meginsjónarmið prófandstæðinga • Próf mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða • Próf er einangrað skólafyrirbæri sem á sér fáar hliðstæður annars staðar í samfélaginu • Ef meginhlutverk skólans er að undirbúa nemendur undir líf og starf í lýðræðis-þjóðfélagi ætti námsmat að líkjast þeim matsaðferðum sem almennt eru notaðar í lífi og starfi • Námsmat á að vera samofið öðru skólastarfi falla að því með eðlilegum hætti

  21. Hvað er próf? 1. Verkefni sem ætlað er að kanna þekkingu nemenda eða leikni 2. Lagt fyrir á tilteknum tíma, leyst innan tímamarka eftir ákveðnum reglum 3. Nemendur fá sömu (sambærileg) verkefni 4. Nemendur búa sig undir prófið án þess að vita nákvæmlega um hvað verður spurt 5.Verkefnið er leyst í viðurvist eftirlitsmanns sem aðeins má veita takmarkaða eða jafnvel enga aðstoð 6. Nemendur mega ekki hjálpast að 7.Yfirleitt má ekki styðjast við heimildir eða gögn

  22. Aðrar gerðir prófa (Alternative Tests) ☺„Allir hjálpast að “- prófið ☺Tíu-prófið ☺Nemendum leyft að hafa með sér gögn / heimildir (dæmi „svindlpróf“) ☺Prófverkefni / spurningar gefið upp með fyrirvara ☺ Nemendur fá nokkra daga til að skila úrlausn (heimapróf) ☺Samvinnupróf

  23. Efst á baugi í námsmati • Leiðsagnarmat (Formative Assessment) • „Rauntengt“ námsmat (Authentic Assessment) námsmat • Óhefðbundið námsmat (Alternative Assessment) • Frammistöðumat (Performance-based Assessment eða Performance Assessment) • Portfolio Assessment: Námsmöppur, verkmöppur, sýnismöppur • Önnur hugtök sem oft eru notuð: Differentiated Asssessment (einstaklingsmiðað námsmat), Multidimensional eða Multiple Assessment (margþætt námsmat), Holistic Assessment (heildstætt námsmat)

  24. Hvaða orð á að nota á íslensku? • Stöðugt, alhliða ...? • Heildstætt ...? • Fjölþætt ... margþætt ...? • Símat? • Einstaklingsmiðað ...?

  25. Einstaklingsmiðað námsmat • Gengið er út frá getu og hæfni hvers nemanda • Matið nær til allra flokka markmiða • Matið er stöðugt allan námstímann og reynt er að flétta með eðlilegum hætti inn í námið • Námsmatsverkefnin sjálf eiga að hafa kennslufræðilegt gildi • Áhersla á uppbyggjandi endurgjöf (leiðsögn) • Matið nær jafnt til aðferða og afurða (úrlausna) • Byggt er á margvíslegum gögnum og sjónarhornum • Áhersla á virka þátttöku nemenda, sjálfsmat, jafningjamat

  26. Helstu námsmatsaðferðir • Skipulegar athuganir • Mat á frammistöðu • Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) • Greining og mat á verkefnum / úrlausnum • Dagbækur, leiðarbækur • Sjálfstæð verkefni • Sjálfsmat nemenda • Jafningjamat • Umræður – viðtöl • Viðhorfakannanir • Próf og kannanir • Námshátíðir, upp-skeruhátíðir (Celebration of Learning, Learning Celebrations)

  27. Heimildir um námsmatsaðferðir Kennsluaðferðavefurinn

More Related