1 / 11

Íslenska tvö Kafli 6, bls. 321-333

Íslenska tvö Kafli 6, bls. 321-333. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 203 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Heimsendir. Flest menningarsamfélög eiga sér goðsagnir um endalok sín og aðdraganda þeirra. Í kennslubókinni eru þrjár slíkar goðsagnir birtar: Sagan um Nóa-flóðið í Biblíunni.

majed
Télécharger la présentation

Íslenska tvö Kafli 6, bls. 321-333

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenska tvöKafli 6, bls. 321-333 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 203 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Heimsendir • Flest menningarsamfélög eiga sér goðsagnir um endalok sín og aðdraganda þeirra. • Í kennslubókinni eru þrjár slíkar goðsagnir birtar: • Sagan um Nóa-flóðið í Biblíunni. • Samísk goðsögn um refsingu manna sem hafa farið illa með sköpunarverkið. • Ragnarök skv. Snorra-Eddu. • Hér á eftir er fjallað um hugmyndir heiðinna manna um heimsendi og aðdraganda hans samkvæmt Snorra-Eddu. • Við höfum fylgst með hvernig heimurinn spillist smám saman á flestum sviðum og nú er svo komið að óvinaherinn nær undirtökum og eyðir þeirri veröld sem goðin höfðu byggt upp.

  3. Úr Gylfaginningu • Ragnarök • Fyrirboðar ragnaraka eru nokkrir. • Fyrst koma þrír harðir vetur og ekkert sumar á milli þeirra. • Síðan koma þrír vetur þar sem mikið verður um orrustur. Bræður munu berjast vegna ágirni og enginn mun vægja skyldmennum sínum. • Að lokum munu úlfar gleypa sólina og tunglið. Stjörnur hverfa af himni, jörðin skelfur, skógar eyðast, björg hrynja og allir fjötrar losna.

  4. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Fenrisúlfur og Miðgarðsormur færast í jötunmóð og sækja upp á land. • Naglfar losnar. Hrymur heitir jötunninn sem stýrir því. • Fenrisúlfur fer með gapandi munni og ber efri skoltinn á honum við himin en hinn neðri við jörðu. Eldur brennur úr augum hans og nösum. • Miðgarðsormur blæs eitri yfir lönd og höf. • Himinninn rofnar og Múspellssynir koma ríðandi. • Surtur ríður fyrst og honum fylgir brennandi eldur. • Sverð Surts er mjög gott.

  5. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Þegar þessi mikli óaldarflokkur ríður yfir Bifröst brotnar hún. • Múspellssynir sækja fram á völl sem heitir Vígríður og er geysistór. • Þar sameinast Múspellssynir Fenrisúlfi, Miðgarðsormi, Loka, Hrymi, öllum hrímþursum og Heljarsinnum. • Þegar þessi tíðindi verða blæs Heimdallur í Gjallarhorn og vekur öll goðin og einherjana. • Goðin ráða ráðum sínum og Óðinn ráðfærir sig við Mímisbrunn. • Askur Yggdrasils skelfur og enginn hlutur á himni eða jörð er óttalaus.

  6. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Æsir hervæðast og halda til orrustu. • Óðinn berst við Fenrisúlf. • Óðinn fellur en Víðar hefnir föður síns. Hann stígur í kjaft úlfsins á sínum góðum skóm, rífur hann í sundur og drepur þar með úlfinn. • Þór berst við Miðgarðsorm. • Þór drepur orminn en fellur svo sjálfur vegna eiturgufanna frá honum. • Freyr berst við Surt. • Freyr fellur enda er hann sverðlaus. • Týr berst við hundinn Garm. • Þeir fella hvor annan. • Loki og Heimdallur berjast. • Þeir fella hvor annan. • Surtur brennir svo alla jörðina.

  7. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Gangleri veltir því nú fyrir sér hvað taki við þegar þessi ósköp eru yfirstaðin. • Hann minnir á að áður hefur verið sagt að allir menn skuli eiga eilíft líf í öðrum heimi eftir dauðann í þessum heimi. • Þriðji segir að framhaldslífið sé misgott eftir því í hvaða heimi maður lendir eftir dauðann.

  8. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Best er að lenda á Gimli. • Þar er (bjór)salurinn Brimir á fjallinu Ókólni. • Þar er einnig annar góður salur sem heitir Sindri. Hann stendur á Niðafjöllum og er úr rauðagulli. • Í þessum sölum fá góðir og siðlátir menn vist. • Á Náströndum er mikill og illur salur. • Dyr hans vísa í norður og hann er fléttaður úr ormahryggjum. • Ormahöfuðin vísa inn og blása eitri um salinn. • Eftir salnum renna eiturár og þær þurfa morðingar og meinsærismenn að vaða. • Verst er hins vegar að lenda í Hvergelmi. • Þar kvelur Níðhöggur hina látnu.

  9. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Gangleri spyr nú hvort nokkur goð lifi ragnarökin af og hvort jörð og himinn verði til eftir þau. • Hár segir að jörðinni skjóti upp aftur úr sænum og þá verði hún græn og fögur. • Víðar og Váli lifa ragnarök af og hefja uppbyggingu á Iðavelli þar sem Ásgarður stóð áður. • Þá koma einnig Móði og Magni, synir Þórs, en þeir varðveita Mjöllni. • Baldur og Höður koma einnig frá Hel. • Haldinn er fundur þar sem fortíðin er rædd. • Gulltöflurnar, sem æsir höfðu áður átt, finnast í grasinu. • Sól hefur getið dóttur sem er jafnfögur henni. • Hún fetar sömu braut og móðir hennar gerði áður.

  10. Úr Gylfaginningu • Ragnarök, frh. • Hár segir Ganglera að nú sjái hann ekki lengra fram í tímann en biður hann að njóta þess sem hann lærði. • Gangleri heyrir mikinn dyn og skyndilega er hann einn. • Höllin er horfin og sagnamennirnir, Hárl, Jafnhár og Þriðji, sömuleiðis. • Gangleri fer aftur í ríki sitt og segir frá því sem hann hefur lært. • Þessar sögur ganga svo mann fram af manni.

  11. Til umræðu í kennslustund • Rifjið upp ástæðu þess að Freyr er vopnlaus í baráttu sinni við Surt í ragnarökum. • Að hvaða leyti eru Baldur og Höður frábrugðnir öðrum goðum og hvaða vísbendingar um nýjan heim gefur það að þeir eru það en ekki til dæmis Óðinn og Þór?

More Related