1 / 52

Skipting taugakerfisins

Taugungur / taugafruma. Taugafruma er samsett

corine
Télécharger la présentation

Skipting taugakerfisins

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


    1. Skipting taugakerfisins Eftir staðsettningu Miðtaugakerfið (systema nervosum centrale) Heili Mæna Úttaugakerfið (s.n. perifericum) Heilataugar (12 pör) (nervi craniales) Mænutaugar (31 par) (nervi spinales) Stafræn skiptin Viljastýrða taugakerfið (viljataugakerfið) (s.n. somaticum) Ósjálfráða taugakerfið (dultaugakerfið) (s.n. autonomicum)

    2. Taugungur / taugafruma Taugafruma er samsett úr: Bol (soma): Bolur er þykkildi sem geymir kjarnann og mest af umfryminu. Er oftast á öðrum endanum Griplum (dentrites): Griplur eru þræðir sem bera boð að bolnum frá aðlægri taugarfrumu. Eru líkt og loftnet sem grípa boðin Síma (axon): Sími er langur þráður, og hver taugafruma hefur bara einn. Hann flytur boð frá bolnum að taugaenda. Síminn er annaðhvort með mýelínslíður eða ekki. Síminn er mjög mislangur eftir því hvar í líkamanum taugafruman er, allt frá nokkrum nm i u.þ.b. einn metra Taugaenda (neurite): síminn klofnar á endanum, og þessir endar flytja boðin yfir á næstu frumu með sérstökum boðefnum. Taugaendinn er sá hluti frumunnar sem losar taugaboðefnin

    3. Taugafruma

    4. Tegundir taugafruma Taugafrumum er gróflega skipt í tvennt Taugungar/boðfrumur (neurones) Boðfrumur flytja boð um líkamann Taugatróð (neuroglia) Er 90% allra taugafrumnataugatróð, sem er aðallega Slíðurfrumur, einangra símana (t.d. Schwan frumur) Stjarnfrumur, flytja næringu og súrefni til taugafrumna og fjarlægja úrgangsefni

    5. Boðfrumur Þrjár gerðir af taugaungum finnast í líkamanum Boðtaug Flytur skynboð til MTK Millitaug Eru langalgengasta tegundin, um 99% allra taugunga eru millitaugungar Finnast bara í MTK Hreyfitaug Flytur boð til vöðva eða kirtils frá MTK

    7. Himnuspenna Allar frumur líkamans hafa ákveðna himnuspennu (Em) Mismunandi efnasamsettning innan og utan frumu Hvíldarspennan er neikvæð (mínus hlaðin), þ.e. frumuhimnan er mínus hlaðin að innan en plús hlaðin að utan Himnuspennan getur breyst Stigspenna boðspenna

    8. Hvíldarspenna Hvíldarspenna (u.þ.b. -70 mV hjá taugafrumu ) er tilkomin vegna mismunandi efnasamsettning innan frumu og utan Meira af K+ inni í frumunni Meira af Na+ utan frumu Fruman pumpar 2 K+ inn, og 3 Na+ út (þ.e. úr meiri styrk í minni) með svokallaðri Na+/ K+ pumpu 3 + út en bara 2 + inn => meiri plús fyrir utan frumuhimnuna Þessi pumpa er orkukræf (gengur fyrir ATP) og tekur allt af 1/3 af orkunni sem eyddri er í hvíld, og um 70% af orku taugafrumna Na+/ K+ pumpan er nauðsynleg til að viðhalda eðlilegri hvíldarspennu K+ lekur út um frumuhimnuna og dregur með sér mínushlaðnar lífrænar jónir á frumuhimnuna Lífrænu jónirnar komast ekki út úr frumunni, en K+ gerir það => frumuhimnan mínushleðst að innan Þessir tveir þættir gera frumuhimnuna neikvætt hlaðna að innan og jákvætt hlaðna að utan (skautuð).

    9. Hvíldarspenna, stigspenna og boðspenna Griplur taka við boðum frá aðliggjandi frumu, við það opnast efnastýrð göng sem breyta hvíldarspennuni ? forspenna Getur verið örvandi boð (hækkar himnuspennuna) Getur einnig verið letjandi boð (lækkar frumuspennuna) Þessi breyting verður vegna breyttrar dræpni jóna á frumuhimnunni, Na+ fer að leka inn => himnuspennan breytist (verður lægri) Stigspenna er breytilega spennan frá -70mV til -55mV (fyrirfari boðspennunar)

    10. Hvíldarspenna, forspenna og boðspenna Ef himnuspennan nær þröskuldi sem er u.þ.b. -55m verður boðspenna (+30 mV) Hér gildir allt eða ekkert. Ef himnuspennan nær ekki -55 mV þá verður engin boðspenna Boðspenna myndast einungis ef þröskuldur næst (-55 mV) Boðspennan er tilkominn vegna þess að spennustýrð Na+ göng opnast, Na+ steymir inn og leiðir til afskautunar taugahimnu símans (hún verður + hlaðin í stað – að innan).

    11. Hvíldarspenna, forspenna og boðspenna Þetta er sú aðferð sem taugin notar til að flytja boðið í gegnum símann Þegar taugahimnan hefur afskautast í +30 mV, lokast Na+ hliðin en K+ hlið opnast (K+ streymir út) sem leiðir til endurskautunar taugafrumunnar ? hvíldarspenna næst aftur Boðspenna berst því líkt og “áhorfendabylgja” niður eftir taugasímanum Eftir að Na+ hliðin hafa lokast, haldast þau læst í nokkrar millisekúndur til að koma í veg fyrir að taugaboðið snúi við.

    12. Hraði taugaboða og Mýelínslíðrið Hraði taugaboða Fer eftir sverleika símans (sverari sími ? hraðara taugaboð) og einangrun símans (góð einangrun ? hraðara taugaboð) Schwan frumur mynda mýelínslíður sem einangrar símann Schwan frumurnar snertast ekki heldur er alltaf bil á milli þeirra þar sem glittir í beran taugavef Kallast þessi bil mýlísskor eða hnútur (Node of Ranvier)

    13. Hraði taugaboða og Mýelínslíðrið Mýelínslíðrið einangrar símann þannig að boðspennan afskautar aðeins (“stekkur”) á milli mýlisskoranna, í stað þess að afskauta allan símann. Einnig hindrar mýélínslíðrið að boðin berist ekki í næsta síma við hliðina. Í MS sjúkdómnum eyðist mýelínslíðrið, og einstaklingurinn missir stjórn á hreyfingum og annarri líkamsstarfsemi

    15. Flutningur milli taugunga Á milli taugaenda aðkomandi taugungs og markfrumu (griplur annars taugungs, vöðvafruma, kirtilfruma) er örlítið bil, taugamót (synapsis)(20-30 nm), og því kemst boðspennan ekki lengra. Yfir þetta bil (taugamótin) fer taugaboðið sem efnaboð.

    16. Flutningur milli taugunga Þegar boðspennan kemst á taugaendann þá losnar seytibóla sem inniheldur taugaboðefni Seytibólan fer yfir taugamótin, lendir á viðtaka næstu frumu og framkallar afskautun ? taugaboðið heldur áfram. Ca2+ er nauðsynlegt svo að seytibólurnar fari út í taugamótin Taugaboðefnunum er svo niðurbrotin, tekin aftur upp af frumunni sem losaði þau (endurnýtt) eða flutt á brott með blóði.

    18. Flutningur milli taugunga Tryggir þetta að taugaboðin fara aðeins í aðra áttina, þ.e. í átt að taugaenda. Kallast þetta efnataugamót Efnataugamót eru ekki bara á milli tveggja taugunga, heldur líka á milli taugunda og kirtlafrumna eða vöðvafrumna Annarskonar taugamót er til, en það er raftaugamót Þá kemst rafstraumur á milli frumna í gegnum gap junctions, og geta þau farið í báðar áttir Þau eru sjaldgæf í taugakerfinu, en finnast í hjarta- og sléttum vöðvafrumum

    20. Tauga/vöðvamót Sími taugungs greinist í margar greinar áður en hann kemur að vöðvanum, og tengist hver grein einum vöðvaþræði Taugaendinn breikkar í nokkurskonar þófa og lendir í gróf í vöðvafrumunni. Kallast þetta endaflaga. Taugaendarnir losa síðan taugaboðefni (asetílkólín) á vöðvafumuna, og framkalla boðspennu í henni og vöðvasamdrátt

    21. Miðtaugakerfið (systema nervosum centrale) Heili og mæna Mjúkir hlaupkenndir vefir Vörn Bein (höfuðkúpa) Þrjár himnur (dura mater (ysta lagið), arachnoid membrane, pia mater (innsta lagið)) Vökvi (heila- og mænuvökvi) Ath: ef bólga eða blæðing, lítið svigrúm => þrýstingur á taugavef

    22. Heila- og mænuvökvi (CSF) Vökvi í heilanum að mestu innanfrumuvökvi (˜1000 ml), annað: ˜ 100-150 ml blóðvökvi ˜ 250-300 ml CSF + millifrumuvökvi CSF Seytt af þekjufrumum í heilaholi og berst þaðan í bil á milli tveggja innri heilahimnanna Létting (30 X) + höggdeyfir Verndar gegn sumum eiturefnum, s.s. blýi CSF er tekið upp aftur í gegnum einstefnu lokur, ef þær lokast => vatnshöfuð

    23. Heilahol

    24. Efnaflutningur til og frá heila ˜ 15% af blóðflæði líkamans til heila (2% líkamsþyngdar) Blóð/heilaþröskuldur Lítt gegndræpar háræðar í heila, vegna tight junctions í þekjufrumum þeirra Hindrar að hormón, sumar jónir komist til heilans en fituleysaleg efni, súrefni, vatn og glúkósi komast greiðlega um Til eru svæða þar sem þessi þröskuldur er ekki til staðar t.d. undirstúka og heiladingull Taugahormón í blóð í afturhluta heiladinguls Uppsölustöð mænukylfu skynjar óæskinleg efni í blóði => uppköst

    25. Skilgreiningar

More Related