1 / 13

Almannaréttur réttur til umferðar og dvalar í annars manns landi

Almannaréttur réttur til umferðar og dvalar í annars manns landi. Katrín Theodórsdóttir Erindi flutt á umhverfisþingi 2011. Skilgreining. Réttur sem almenningi er áskilinn til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn og fleira samkvæmt náttúruverndarlögum.

tameka
Télécharger la présentation

Almannaréttur réttur til umferðar og dvalar í annars manns landi

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Almannarétturréttur til umferðar og dvalar í annars manns landi Katrín Theodórsdóttir Erindi flutt á umhverfisþingi 2011

  2. Skilgreining Réttur sem almenningi er áskilinn til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn og fleira samkvæmt náttúruverndarlögum.

  3. Almannaréttur í núgildandi náttúruverndarlögum nr. 44/199l • Gangandi/hjólandi/skíðum/skautum/sleðum eða á annan sambærilegan hátt. • Umferð hjólandi og ríðandi manna. • Umferð um vötn. • Akstur utan vega. • Heimild til að tjalda. • Tínsla berja, sveppa, fjallagrasa, fjörugróðurs og fleira.

  4. Jónsbók 1281 • Víðtækur réttur almennings til umferðar um eignalönd. • Heimild til að höggva sér leið um skóglendi í einkaeign. • Heimild til að æja hestum sínum í landi annars manns, “þar sem eigi hefur áður slegið verið”.

  5. Þjóðbraut í Jónsbók • Almenna reglan var sú að þjóðgata skyldi vera sem að fornu fari hafði legið. • Ef byggt var fyrir þjóðgötu var sú skylda lögð á að gera nýja götu jafngóða utangarðs. • Heimild til að fjarlægja hindranir af þjóðbrautum. • Skylda til að tryggja greiðfarni umferðar á fjölförnum leiðum.

  6. Stoðirnar eru sett lög og venjuréttur • Grágás 930 • Jónsbók 1281 • Veiðitilskipunin frá 1849 • Girðingarlög nr. 66/1913 • Vatnalögin nr. 15/1923 • Fyrstu náttúruverndarlögin nr. 48/1956 • Náttúruverndarlög nr. 47/1971 • Núgildandi náttúruverndarlög nr. 44/1999

  7. Náttúruverndarlög nr. 48/1956. • Réttur til frjálsrar farar um landsvæði utan landareigna lögbýla og dvöl þar í lögmætum tilgangi. • Gangandi fólki heimilt að fara um óræktuð lönd manna utan þéttbýlis og dvelja þar í því skyni að njóta náttúrunnar enda hefði slíkt ekki í för með sér mikið óhagræði fyrir eigandann. Í þeim tilvikum sem land var afgirt var aðeins heimilt að fara gegnum hlið á girðingunni. • Umferð um ræktað land var háð leyfi forráðamanns lands.

  8. Náttúruverndarlög nr. 47/1971. • Almenningi er heimil för um landsvæði utan landareigna lögbýla og dvöl á þessum svæðum í lögmætum tilgangi. • Um eignarlönd manna er almenningi þó og því aðeins heimil för, að þau séu óræktuð og ógirt og að dvöl manna þar hafi ekki í för með sér ónæði fyrir búpening né heldur óhagræði fyrir rétthafa að landinu. • Ef land er girt, þarf leyfi landeigenda til að ferðast um það eða dveljast á því og sama gildir um ræktuð landsvæði.

  9. Náttúruverndarlög nr. 44/1999. • Óræktað land utan byggðar. Almenningi er heimil för og dvöl á óræktuðu landi utan byggðar án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa. • Óræktað eignarland í byggð. Almenna reglan er að almenningi sé heimil för og dvöl en eiganda eða rétthafa er þó heimilt að takmarka eða banna för og dvöl á afgirtu óræktuðu landi með því að koma upp merkingum við hlið og göngustíga. • Ræktað land. Almenningur þarf samþykki eiganda eða rétthafa til að fara um og dvelja á ræktuðu landi.

  10. Inntak og afmörkun almannaréttar. • Landfræðileg afmörkun. • Meginregla um frjálsa umferð almennings um eignarlönd og skyldur henni samfara. • Heimild landeiganda til að útiloka umferð gangandi vegfarenda um land sitt. • Staða almannaréttar í íslenskum rétti og eftirfylgni.

  11. Niðurstaða og tillögur. • Er nauðsynlegt að viðhalda heimild landeigenda til að útiloka umferð almennings um óræktað land sitt? • Er nægilegt að takmarka heimildina við eignarland í byggð? • Hvað mælir gegn rétti gangandi manna um eignarlönd, girt sem ógirt ef för þeirra eða dvöl hefur ekki í för með sér óhagræði fyrir eigandann?

  12. Kort

More Related