1 / 50

Þekkingarfræði

Þekkingarfræði. Skilgreining á þekkingu. Þekking er sönn skoðun Þekking er staðreynd sem ekki hefur tekist að afsanna Þekking er það sem sannað er án allra vísana í hluti eða fyrirbæri sem geta breyst. Þrískipting þekkingarfræðinnar. Raunhyggja vs. Rökhyggja. Römm Raunhyggja:

alton
Télécharger la présentation

Þekkingarfræði

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Þekkingarfræði

  2. Skilgreining á þekkingu • Þekking er sönn skoðun • Þekking er staðreynd sem ekki hefur tekist að afsanna • Þekking er það sem sannað er án allra vísana í hluti eða fyrirbæri sem geta breyst

  3. Þrískipting þekkingarfræðinnar

  4. Raunhyggja vs. Rökhyggja • Römm Raunhyggja: • Öll þekking byggð á reynslu • Skynfærin veita okkur nægilega nákvæmar upplýsingar um heiminn • Það eitt sem byggt er á reynslu af heiminum, auk reynslu af þeim lögmálum sem þar gilda, er réttnefnd þekking

  5. Raunhyggja vs. Rökhyggja (frh.) • Römm Rökhyggja: • Öll þekking byggð á skynseminni (þ.e. rökum) • Skynfærin veita okkur villandi upplýsingar um heiminn • Það eitt sem byggt er á skynseminni einni, s.s. stærðfræði og rökfræði, er réttnefnd þekking

  6. Þekkingarfræði í fornöld - Sókrates • Var efahyggjumaður að því leyti að hann trúði ekki á að sönn þekking (epistêmê) væri möguleg • Menn geta þó náð langt ef þeir gera sér grein fyrir þessari staðreynd

  7. Þekkingarfræði í fornöld - Sókrates • Ljósmóðuraðferðin • Sálin er frá upphafi „þunguð” af þekkingu • Til þess að auðvelda fæðinguna þarf ljósmóður • Sönn þekking fæst ekki með því að rannsaka skynheiminn, heldur þarf að seilast yfir hann, þ.e. í heim frummynda

  8. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Aristóteles (384-322 f.Kr.) • Hafnaði rökhyggju Platóns • Taldi frummyndirnar ekki eiga sér sjálfstæða tilvist • Gerði greinarmun á formi og efni • Formi má líkja við frummynd

  9. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Markhyggja (tilgangshyggja, teleólógía) • Allir (lifandi) hlutir leitast við að verða eitthvað annað eða meira en þeir eru • Veruleikinn stjórnast af einhverjum tilgangi eða ákveðnu markmiði • Sá máttur sem þessu stýrir er guð • guð er hreint form (án alls efnis) og óhreyfanlegur, handan tíma og rúms

  10. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Markhyggja (frh.) • Tíminn er eilífur • Tími og hreyfing eru það sama • Hreyfingu má skilgreina sem breytingu frá einum tímapunkti til annars • Hreyfing hlýtur að vera upprunin í einhverju sem ekki hreyfist sjálft • ERGO: guð er óhreyfður frumhreyfill alls • guð setti heiminn af stað og skiptir sér ekki af honum upp frá því

  11. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Þekkingarfræðin • Skynjun einstakra hluta • Sértekning hins almenna eðlis hlutarins út frá tilfallandi eiginleikum • Eðliseiginleikar teknir saman í skilgreiningu, t.d. Tegundarheiti • Slík skilgreining er réttnefnd þekking

  12. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles Fjórfættur Loðinn HUNDUR Tryggur Spendýr Lítill Geltir

  13. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Öflun þekkingar er ákveðið ferli • Frá hinu sérstaka til hins almenna • Tilleiðsla • Sértekningar má svo nota í rökhendu (syllogisma) þar sem ályktað er frá hinu almenna til hins sérstaka • Afleiðsla

  14. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Tilleiðsla: Hundur 1 er loðinn Hundur 2 er loðinn … Hundur n er loðinn => Allir hundar eru loðnir

  15. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Afleiðsla: Allir hundar eru loðnir Sámur er hundur => Sámur er loðinn

  16. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Form og efni • Hlutir eru búnir til úr efni • Formið er það sem einkennir þá • Hvað er það sem orsakar formið?

  17. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Orsakahugtakið • Tilgangsorsök – sá tilgangur sem vakti fyrir þeim sem gaf hlutnum form • Gerandaorsök – hreyfiaflið sem knýr atburðinn áfram • Efnisorsök – efnið sjálft • Formleg orsök – form hinnar endanlegu afurðar

  18. Þekkingarfræði í fornöld - Aristóteles • Orsakahugtakið • Sá sem þekkir allar fjórar orsakir hlutarins/fyrirbærisins hefur öðlast fulla þekkingu á hlutnum/fyrirbærinu

  19. Þekkingarfræði á nýöld • René Descartes (1596-1650) • Leitaðist við að leggja grunn að öruggri þekkingu

  20. Þekkingarfræði á nýöld - Descartes • Hinn skipulegi efi • Efast skal um allt sem efast verður um • Skilningarvitin geta leitt okkur á villigötur og við erum fórnarlömb blekkinga og drauma. Jafnvel Guð getur blekkt okkur • Ég hugsa, þess vegna er ég til (Cogito ergo sum) • Efi => Hugsun => Tilvist

  21. Þekkingarfræði á nýöld - Descartes • Fullkomleikarökin fyrir tilvist Guðs • Ég efast => ég er ófullkomin • Hugmyndin um ófullkomleika krefst þess að til sé eitthvað sem er fullkomið til samanburðar • Hugmyndin um fullkomleika getur ekki átt upptök sín hjá mér, hún hlýtur að rekja rætur til einhvers sem er fullkomið í raun og veru • ERGO: Til er Guð

  22. Þekkingarfræði á nýöld - Descartes • Eftirleikurinn auðveldur: • Guð er fullkominn og hefur því ekki blekkt manninn heldur gætt hann skynsemi • Við getum því treyst skynseminni þegar við greinum á milli sannleika og lygi, draums og veruleika • Með hugsun getum við því ekki aðeins öðlast stærðfræðilega þekkingu, heldur líka eðlisfræðilega þekkingu, þ.e. þekkingu byggða á reynslu

  23. Þekkingarfræði á nýöld • John Locke (1632-1704) • Fulltrúi „heilbrigðrar skynsemi”

  24. Þekkingarfræði á nýöld - Locke • Sálin er óskrifað blað – Tabula Rasa – sem reynslan ristir rúnum sínum • Ef til væru meðfæddar hugmyndir, eins og Descartes talaði um, væru til hugmyndir sem allir væru sammála um • Slíkar hugmyndir eru ekki til • ERGO: Engar meðfæddar hugmyndir

  25. Þekkingarfræði á nýöld - Locke • Tvenns konar efniviður hugsana: • Skynjun ytri hluta (ytri skynjun) • Íhugun innra starfs sálarinnar (innri skynjun) • Öll þekking sprottin af þessum rótum

  26. Þekkingarfræði á nýöld - Locke • Afstæði og algildi • Ef öll þekking er sprottin af reynslu og reynsla fólks er ólík er þá þekking afstæð? • Locke greinir á milli tvennskonar eiginleika hluta: • Frumeiginleikar • Annars stigs eiginleikar

  27. Þekkingarfræði á nýöld - Locke • Frumeiginleikar: • Þeir eiginleikar sem tilheyra hlutunum sjálfum, óháð skynjandanum • Þéttleiki, rúmtak, lögun, hreyfing og fjöldi • Annars stigs eiginleikar • Þeir eiginleikar sem eru háðir þeim sem skynjar hlutinn • Litur, hljóð, bragð o.s.frv.

  28. Þekkingarfræði á nýöld - Locke • Hinn ytri heimur er því til en kann þó að vera ólíkur þeim heimi sem við skynjum að einhverju leyti • Þekking er því að sumu leyti algild en að einhverju marki afstæð

  29. Þekkingarfræði á nýöld • George Berkeley (1685-1753) • „Esse est percipi” „Að vera er að vera skynjaður”

  30. Þekkingarfræði á nýöld - Berkeley • Reynsla okkar af hinum ytra heimi er eingöngu byggð á skynhrifum • Sjón, heyrn, snertiskyn, lyktarskyn, bragðskyn • Skynhrifin eru það eina sem hefur áhrif á vitund okkar um hluti hins ytra heims • Annars konar aðgang höfum við ekki að hlutunum

  31. Þekkingarfræði á nýöld - Berkeley • Það sem við skynjum eru ekki efnislegir hlutir heldur vissir eiginleikar (annars stigs eiginleikar): • Ljós og litir • Hljóð • Hart/mjúkt, heitt/kalt o.s.frv. • Ilmur/fnykur • Sætt/súrt, salt/beiskt

  32. Þekkingarfræði á nýöld - Berkeley • Þessir eiginleikar, sem oft eru eignaðir hlutunum sem slíkum, eru eingöngu til í vitund þess sem skynjar þá • Er til hljóð sem enginn heyrir eða ljós sem enginn sér? • Allt snýst um hina skynjandi vitund • Allar setningar um efnislega hluti má þýða sem setningar um skynreynslu

  33. Þekkingarfræði á nýöld - Berkeley • Niðurstaðan er því þessi • Allt sem er til er til í vitund einhvers • Vitund verður því að forsendu fyrir tilvist ákveðinna hluta • það að einhver skynji Hallgrímskirkju er nauðsynleg forsenda þess að hún sé til • Þetta sjónarmið má gera trúverðugra með því að gera ráð fyrir möguleikanum á skynjun • Ef einhver liti á Hallgrímskirkju væri hún til

  34. Þekkingarfræði á nýöld - Berkeley • Berkeley slær tvær flugur í einu höggi: • Kynnir Guð til sögunnar sem hinn eilífa skynjara • Heimurinn á sér eilífa tilvist í vitund Guðs • „Sannar” tilvist Guðs með því að benda á að án hans „hoppi hlutir inn og út úr tilvist” sem stangast á við heilbrigða skynsemi

  35. Þekkingarfræði á nýöld • David Hume (1711-1776) • Róttæk raunhyggja

  36. Þekkingarfræði á nýöld - Hume • Það eina sem er til eru beinar skynjanir og hugmyndir • Allar hugmyndir eiga rætur að rekja til skynjana • Samsettar hugmyndir, t.d. „penni á borði” eiga uppruna sinn í fleiri en einnar skynjunar • Óhlutbundnar hugmyndir, t.d. „Snjómaður” eða „orka” verður líka að vera hægt að rekja til skynreynslu

  37. Þekkingarfræði á nýöld - Hume • Hume hafnar öllum hugmyndum um sjálf • Menn skynja ekki sjálf og hafa þ.a.l. ekki reynslu af því • Það sem við verðum vör við þegar við lítum í eigin barm er aðeins straumur hugmynda og skynjana • Fyrir Hume er sjálfið því ekki „fastur kjarni” heldur tilfallandi „klasi” hugmynda og skynjana

  38. Þekkingarfræði á nýöld - Hume • Hume hafnar öllum hugmyndum um nauðsyn orsakahugtaksins • Við höfum einungis reynslu af því að einn atburður fylgi öðrum, en ekki af því að um orsakatengsl sé að ræða • Við skynjum ekki orsakir • Þ.a.l. eiga hugmyndir okkar um orsakir ekki rætur að rekja til reynslu

  39. Þekkingarfræði á nýöld - Hume • Við höfum því enga þekkingu á nauðsynlegum tengslum í veruleikanum heldur aðeins af tengslum milli hugmynda • Þessi tengsl eru þar að auki algerlega háð tilviljunum: Það að vatn hafi soðið við 100°C hingað til er engin trygging þess að það muni gera það hér eftir • Þ.a.l. er ekki hægt að draga almennar ályktanir um nauðsyn af einstökum tilvikum (tilleiðsla)

  40. Þekkingarfræði á nýöld - Hume • Hvernig geta menn lifað án einhverskonar hugmynda um orsök og afleiðingu? • Menn verða að sætta sig við óvissuna • Það þýðir þó ekki að við getum ekki sætt okkur við tilleiðsluþekkingu í hinu daglega lífi; það verðum við einfaldlega að gera

  41. Þekkingarfræði – Nýöld • Immanuel Kant (1724-1804) Forskilvitleg heimspeki

  42. Þekkingarfræði – Kant • Verður bæði fyrir áhrifum af raunhyggju Humes og rökhyggju í anda Descartes • Kant gat illa sætt sig við þá efahyggju um þekkingu sem af heimspeki Hume leiðir • Lausn hans felst í að hafa endaskipti á hlutunum • Orsakalögmálið býr í okkur sjálfum, ekki í hinum ytri hlutum

  43. Þekkingarfræði – Kant • Skynreynsla á upptök í hlutunum sjálfum -- „Ding an sich” • Hráefni þekkingar er því eiginleikar hluta sem eru skynjaðir • Það sem gerir okkur kleyft að vinna úr þessum skynreynsluheimi býr hins vegar í okkur sjálfum

  44. Þekkingarfræði – Kant • Forskilvitleg heimspeki – Transzendental Philosophie • Þær upplýsingar sem skynfærin veita um hluti eru í sjálfu sér ekkert annað en safn skynmynda • Það sem þarf til þess að vinna úr þessu safni er einhverskonar „tæki” eða „ferli” til að flokka upplýsingarnar og meðhöndla

  45. Þekkingarfræði – Kant • Þetta „tæki” eða „ferli” kallar Kant hugkvíar (kategoríur) • Við höfum ekki öðlast reynslu fyrr en einstakar skynmyndir hafa verið feldar undir ákveðin hugtök • Kvíarnar eru það tæki sem skynsemin notar til að henda reyður á skynreynsluna • Hugmyndin um orsök og afleiðingu er ein af hugkvíunum

  46. TÍMI og RÚM Magn Eining Fjöldi Heild Vensl Eðlislægni og tilvist Orsakir og fylgni Samfélag Eiginleikar Raunveruleiki Neitun Takmörkun Háttur Möguleiki–Hið ómögulega Vera-Óvera Nauðsyn-Tilviljun

  47. Þekkingarfræði – Kant • Kant vildi sýna fram á að orsakalögmálið væri nauðsynlega meðfætt • Greinarmunur á rök- og raunhæfingum • Greinarmunur á fyrirfram og eftirá sannindum • Nauðsyn tryggð með því að gera grein fyrir apriori raunhæfingum

  48. Þekkingarfræði – Kant

  49. Þekkingarfræði – Kant • Rökhæfingar eru sannar vegna gerðar tungumálsins og rökfræð-innar en ekki vegna reynslu • Umsögnin segir ekkert meira en frumlagið og því hefur engin ný þekking orðið til • Raunhæfingar öðlast sanngildi (eða eru staðfestar) með reynslu • Í umsögninni felst ný þekking um heiminn

  50. Þekkingarfræði – Kant • Hugkvíarnar eru ekki sálfræðileg fyrirbæri heldur heimspekileg • Byggja á heimspekilegri íhugun á þekkingarfræðilegum skilyrðum allrar reynslu • Kenning Kants, eins og kenning Humes, er ekki frumspekileg heldur þekkingarfræðileg • Kant segir ekkert um hlutinn í sjálfum sér

More Related