1 / 20

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 77-80

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 77-80. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 403 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Rómantík. Í daglegu tali er rætt um rómantík sem eitthvað hugljúft sem á sér stað á milli elskenda.

dextra
Télécharger la présentation

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 77-80

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenskar bókmenntir 1550-1900Rómantík 19. aldar, bls. 77-80 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 403 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Rómantík • Í daglegu tali er rætt um rómantík sem eitthvað hugljúft sem á sér stað á milli elskenda. • Í bókmenntasögunni er rómantík ákveðin stefna sem ríkjandi var á Íslandi mikinn hluta 19. aldar.

  3. Hvaðan kemur rómantíkin? • Rómantík á rætur að rekja til Þýskalands og Englands á síðari hluta 18. aldar. • Til Íslands komu rómantísk bókmenntaáhrif í gegnum Danmörku og Þýskaland. • Veturinn 1802-1803 hélt norski heimskpekingurinn og náttúrufræðingurinn Henrik Steffens fyrirlestra í Kaupmannahöfn þar sem hann deildi á skynsemisdýrkun og kom fram með kenningar um andann í allri starfsemi náttúrunnar.

  4. Hvaðan kemur rómantík?, frh. • Allt í náttúrunni, dauðri sem lifandi, var hluti af andlegri einingu. • Það sem skildi að var mismunandi meðvitund: • Steinar hafa takmarkaða meðvitund. • Plöntur og dýr eru flóknari og skynja meira. • Manneskjan er á háu meðvitundarstigi. • Hæst trónir snillingurinn. • Þýski heimspekingurinn Schelling sagði: • Náttúran er ósýnilegur andi en andinn er ósýnileg náttúra.

  5. Hvaðan kemur rómantík?, frh. • Fyrirlestrar Steffens vöktu mikla athygli og höfðu mikil áhrif á skáld og almenning, bæði á Íslandi og víðar í Evrópu. • Sbr. t.d. hinn danska Adam Oehlensläger.

  6. Hvað er rómantík? • Erfitt er að skilgreina rómantík þar sem stefnan er breytileg eftir: • tíma • löndum • skáldum • Þjóðfélög víða í Evrópu voru í örri þróun vegna iðnbyltingar en önnur lönd voru skemmra á veg komin. • Víðast hvar komu þó fram nýjar hugmyndir í heimspeki og listum og þær áttu margt sameiginlegt.

  7. Hvað er rómantík?, frh. • Ný sýn var á hlutverk listarinnar. • Bókmenntir voru ekki lengur álitnar kyrrstætt óumbreytanlegt form eins og hafði verið ríkjandi hugmynd nýklassísisma. • Farið var að líta svo á að bókmenntir væru breytingum háðar. • Einstaklingurinn varð mikilvægur. • Það skipti öllu máli hvernig skáldið sá heiminn. • Skynsemin var lögð til hliðar, ímyndunaraflið skipti meira máli. • Horft var á innsta eðli náttúrunnar og samband manns og náttúru varð aðalatriðið.

  8. Nýklassísismi • Á endurreisnartímabilinu í Evrópu var lögð mikil áhersla á að leita fyrirmynda í grískum og rómverskum bókmenntum og listum. • Þær hugmyndir eru oft kallaðar klassísismi. • Með tímanum var gengið skrefi lengra og settar ákveðnari formkröfur samkvæmt klassískum fyrirmyndum. • Sú listastefna er oft kölluð nýklassísismi.

  9. Nýklassísismi, frh. • Í nýklassísisma var gengið út frá því að fyrirmyndir Grikkja og Rómverja væru eilífar og lengra væri ekki hægt að komast hvað form varðaði. • Rómantíkin gekk aftur á móti út á að form væri breytilegt. • Formkröfur klassísisma urðu einna áhrifamestar í leikritun og átti bygging verksins að vera samkvæmt ákveðinni forskrift (eining atburðarásar, tíma og staðar).

  10. Nýklassísismi, frh. • Nýklassísismi barst ekki að marki til Íslands. • Þó eru á þessu nokkrar undantekningar: • Í myndlist Bertels Thorvaldsen. • Sjá mynd af Voninni á bls. 78. • Í bókmenntum í þýðingum Benedikts Gröndal og Jóns Þorlákssonar.

  11. Hvert var viðhorfið til náttúrunnar? • Sýn rómantísku skáldanna á náttúruna var eitt það frumlegasta við stefnuna. • Í Evrópu mótaðist sú sýn af því að borgir höfðu vaxið og náttúran varð að einhverju dularfullu og villtu. • Á Íslandi settu rómantísku skáldin viðhorf upplýsingarmanna um nytsemi náttúrunnar til hliðar og horfðu fremur á fegurð náttúrunnar og sérstöðu. • Í meðförum þeirra varð náttúran hluti af þjóðinni og sögu hennar.

  12. Hvernig byrjaði rómantíkin á Íslandi? • Fyrsta rómantíska kvæðið birtist í Klausturpóstinum sem Magnús Stephensen hóf að gefa út árið 1818. • Í tímaritinu bar mest á greinum og skáldskap í anda upplýsingar. • En í 11. tölublaði árið 1818 kom út kvæðið Ísland eftir Bjarna Thorarensen. • Í kvæðinu birtist sú sýn að fegurð landins felist ekki í nytsemi þess heldur í hrikaleikanum (sem áður hafði verið talinn ókostur). • Sjá erindi úr kvæðinu á bls. 79.

  13. Hver var Bjarni? • Bjarni Thorarensen (1786-1841) var af embættismönnum komin og var sjálfur embættismaður. • Hann var góður námsmaður og lauk lögfræðinámi í Kaupmannahöfn. • Hann var lengi dómari við Landsyfirréttinn en var síðan amtmaður norðanlands og austan til dauðadags. • Bjarni kom til Kaupmannahafnar 15 ára gamall og þá voru fyrirlestrar Steffens í algleymingi. • Bjarni hefur líklega sótt einhverja af þessum fyrirlestrum en þó má ekki sjá bein áhrif frá þeim í skáldskap hans. • Líklega hefur hann þó orðið fyrir óbeinum áhrifum af þeim enda notaði hann ímyndunaraflið til að skynja innsta eðli náttúrunnar.

  14. Hvað einkennir kvæði Bjarna? • Rómantísk sýn í skáldskap Bjarna kemur sterkast fram í náttúru- og ættjarðarljóðum hans. • Í fyrstu kvæðum sínum bar Bjarni Ísland og Danmörku saman og var sá samanburður Íslandi í hag. • Ísland með sinni fornu frægð og fögru fjöllum átti hug hans allan.

  15. Hvað einkennir kvæði Bjarna?, frh. • Bjarna var harka norðursins hugleikin. • Þeir sem búa við hörku verða sterkir en þeir sem búa við mildi og sællífi verða veikir. • Hörkudýrkun Bjarna er sérstök í íslenskum kveðskap. Flest skáld sem seinna komu lögðu meiri áherslu á vorið og sumarið! • Sú kenning að kalt loftslag geri menn hrausta og sterka hefur verið nefnd loftslagskenningin.

  16. Hvað með ástarljóð? • Rómantísk sýn birtist líka í ástarljóðum Bjarna. • Sigrúnarljóð fjalla um ást sem er eilíf; nær út fyrir jarðneskt líf, því elskendurnir ná saman eftir dauðann. • Þar ber líka á öðru sem einkennir rómantíkina; áhuga á fornum bókmenntum. • Sigrún er fornt valkyrjuheiti og í Sigrúnarljóðum er vísað til Helga kviðu Hundingsbana II sem er eddukvæði (hetjukvæði). • Í kysstu mig aftur heitir stúlkan Svava en Svava var einnig valkyrja. Sjá bls. 80.

  17. Og erfiljóð? • Umdeilanlegt er að hve miklu leyti erfiljóð Bjarna eru rómantísk. • Erfiljóð þjónuðu á þessum tíma svipuðu hlutverki og minningargreinar í Mogganum! • Oft voru þau pöntuð hjá skáldum og listrænt gildi þeirra var misjafnt. • Bjarni orti hins vegar aðeins erfiljóð um fólk sem var honum nákomið og hann lagði meiri metnað í þessi ljóð en önnur skáld.

  18. Og erfiljóð, frh. • Bjarni orti oft um menn sem þóttu sérstakir og voru búnir hæfileikum sem af einhverjum ástæðum fengu ekki að njóta sín. • Í þessu felst ákveðin einstaklingshyggja sem er áberandi þáttur í rómantíkinni: • Hið sérkennilega er dregið fram á kostnað hins venjulega.

  19. Og erfiljóð, frh. • Bjarni hefur um margt sérstöðu meðal rómantískra skálda á Íslandi. • Þegar rómantíkin komst á fullt skrið hér á landi tengdist hún mjög sjálfstæðisbaráttunni. • Bjarni var fylgjandi ýmsu henni tengdu, vildi t.d. hafa Alþingi á Þingvöllum, en var þó um margt íhaldssamari en önnur rómantísk skáld. • Af kvæðum Bjarna er Íslands minni („Eldgamla Ísafold“) líklega þekktust á meðal almennings nú til dags.

  20. Veturinn o.fl. • Nemendur lesa í Rótum: • Veturinn á bls. 224-227. • Sigrúnarljóð á bls. 227-229. • Oddur Hjaltalín á bls. 232-234.

More Related