1 / 19

Íslenskar bókmenntir til 1550 Bls. 83-89 Fornaldarsögur, riddarasögur, annálar

Íslenskar bókmenntir til 1550 Bls. 83-89 Fornaldarsögur, riddarasögur, annálar. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 303 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Fornaldarsögur. Efni og einkenni

hesper
Télécharger la présentation

Íslenskar bókmenntir til 1550 Bls. 83-89 Fornaldarsögur, riddarasögur, annálar

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenskar bókmenntir til 1550Bls. 83-89Fornaldarsögur, riddarasögur,annálar Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 303 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Fornaldarsögur • Efni og einkenni • Nafnið á fornaldarsögum er ekki gamalt; kom fyrst fyrir í heildarútgáfu sagnanna (1829-30) en þar eru þær nefndar Fornaldarsögur Norðurlanda. • Sögurnar fjalla um elstu minningar hins norrænan kynstofns á Norðurlöndum og að nokkru leyti í öðrum germönskum löndum.

  3. Fornaldarsögur • Efni og einkenni • Söguefnið er eldra en Íslands byggð. • Engum datt í hug að taka þessar sögur trúanlegar, ólíkt Íslendingasögum og öðrum raunsæjum sagnaritum. • Frásögnin er ekki innan ramma þess sennilega: Menn hafa hamskipti, bregða sér í líki ýmissa dýra, skjóta örvum í logni o.s.frv.

  4. Fornaldarsögur • Efni og einkenni • Í ævintýraheimi fornaldarsagna verða söguhetjur oft hver annarri líkar: • Hetjurnar eru fullkomin ofurmenni, andstæðingar þeirra rakin illmenni, nema það séu flugdrekar, finngálkn eða önnur eitur- og eldspúandi kvikindi. • Engin þessara sagna er látin gerast á Íslandi. Frásagnarmáti þeirra er þó ekki óáþekkur frásagnarmáta Íslendingasagna.

  5. Fornaldarsögur • Tilurð • Flestir telja að ekki sé farið að rita fornaldarsögur fyrr en um 1260. • Þá höfðu konungasögur verið skráðar á bókfell og hluti Íslendingasagna. • Fornaldarsögur eiga sér þó alllanga sögu fyrir þann tíma og eru heimildir um að þær hafi verið sagðar til skemmtunar löngu fyrr.

  6. Fornaldarsögur • Einstakar sögur • Hægt er að skipta fornaldarsögum í nokkra flokka eftir efni: 1. Sögur sem byggjast á hetjukvæðum: Völsunga saga byggir á Eddukvæðum þeim sem fjalla um Sigurð Fáfnisbana, Guðrúnu Gjúkadóttur og Brynhildi Buðladóttur. Hervarar saga og Heiðreks geymir fornlegt hetjukvæði, Hlöðskviðu. Í þessari sögu er elsta safn af gátum sem þekkt er á Norðurlöndum. Hrólfs saga kraka styðst við gömul sagnaminni og forn kvæði (Bjarkarmál og Bjólfskviðu). Hrólfur kraki var konungur í Danmörku á 5. öld og segir frá honum í Snorra-Eddu.

  7. Fornaldarsögur • Einstakar sögur Sögur sem segja aðallega frá víkingaferðum: Ragnars saga loðbrókar fjallar um danskan konung. Ragnars er víða getið, bæði í fornum kvæðum og sögum (t.d.Ragnarsdrápu). Ketils saga hængs og Grímssaga loðinkinna segja frá Hrafnistumönnum en til þeirra töldu margir Íslendingar ættir sínar, s.s.Egill Skalla-Grímsson. Sonur Gríms loðinkinna var Örvar-Oddur en af honum er til sagan Örvar-Odss saga sem segir aðallega frá víkingaferðum. Friðþjófs saga frækna er ástarsaga, talin með eldri fornaldarsögum. Hún er ekki talin styðjast við sannsögulegt efni

  8. Fornaldarsögur • Einstakar sögur 2. Sögur sem virðast hreinn tilbúningur: Göngu-Hrólfs saga. Hún fjallar þó ekki um Göngu-Hrólf hinn fræga í Normandí. Bósa saga er fræg fyrir klúrar lýsingar í gamansömum stíl. Gautreks saga inniheldur frumleg og skemmtileg ævintýri.

  9. Riddarasögur • Uppruni – efni • Á stjórnarárum Hákonar gamla Hákonarsonar (1217-63) tóku frönsk bókmenntaáhrif að berast til Noregs. • Hákon reyndi að hlúa að þeim þar sem hann vildi kenna hirð sinni riddarasiði og kurteisi Frakka. • Hákon kom því til leiðar að fyrsta riddarasagan var rituð á norræna tungu árið 1226. Það var sagan af Tristram og Ísönd en frumtextinn er franskt kvæði e. Thomas af Bretagne frá síðari hluta 12. aldar.

  10. Riddarasögur • Uppruni – efni • Á síðari hluta 13. aldar þýddu Norðmenn mikið af frönskum kappakvæðum sem ort voru snemma á miðöldum. • Frægasta söguhetja þeirra var Karlamagnús (karl mikli). Úr kvæðum um hann og kappa hans varð til löng riddarasaga á norrænu.

  11. Riddarasögur • Uppruni – efni • Annað vinsælt yrkisefni miðaldaskálda í Evrópu voru keltneskar sagnir um Arthúr konung og kappa hans. • Frönskum ljóðum um Arthúr konung var síðan snúið í sögur á norrænu, t.d. Ívents sögu Arthúrskappa og Parcevals sögu. Sagan um Tristram og Ísönd er einnig af þessum toga spunnin.

  12. Riddarasögur • Uppruni – efni • Fleira var þýtt, s.s. Strengleikar eftir frönsku skáldkonuna Marie de France sem dvaldist í Englandi á s. hl. 12. aldar. Strengleikar eru safn söguljóða en hin norræna þýðing er í lausu máli í stíl riddarasagna. • Þiðreks saga er samin upp úr þýskum fornkvæðum í Noregi um miðja 13. öld. Efnislega er hún þó skyldari fornaldarsögum.

  13. Riddarasögur • Uppruni – efni • Flestir þýðendur riddarasagna eru ókunnir. • Allflestar þýðingarnar munu vera gerðar í Noregi en þær bárust þó fljótt til Íslands og urðu geysivinsælar. • Sögurnar hafa nánast eingöngu varðveist í íslenskum handritum. Í Noregi áttu þær sér skamman aldur.

  14. Riddarasögur • Uppruni – efni • Um 1300 fóru Íslendingar sjálfir að setja saman riddarasögur með hinar norsku þýðingar sem fyrirmynd. • Blómatími þessarar sagnaritunar var á 14. og 15. öld. • Mikill fjöldi þeirra er til í handritum en tiltölulega fáar hafa verið gefnar út.

  15. Riddarasögur • Nokkur einkenni riddarasagna • Norræna tunga hafði í öndverður lítt verið tamin til ljóðrænnar tjáningar (fyrir utan eddukvæðin). • Hinn norræni sagnastíll var mjög ólíkur hinum suðrænu ljóðum og var því ekki auðvelt fyrir þýðendur að snúa þessum frönsku ljóðum upp á norræna tungu.

  16. Riddarasögur • Nokkur einkenni riddarasagna • Texti hinna frönsku ljóða er oft styttur og ágripskenndur. Það reyna norrænir þýðendur ljóðanna að bæta upp með ýmiss konar tildri og flúri sem lítt hafði tíðkast í norrænum sögustíl en var í ætt við mærðarstíl klerklegra fræða. • Þessara einkenna gætir þó yfirleitt minna í íslenskum riddarasögum og má væntanlga þakka það áhrifum frá stíl fornaldarsagna.

  17. Riddarasögur • Nokkur einkenni riddarasagna • Ástin er megininntakið í mörgum riddarasögum og skýrir sá þáttur einkum vinsældir þeirra. • Riddarasögur voru ekki settar saman til að menn tryðu þeim heldur til þess að fá fólk til að lifa sig inn í draumaheim þeirra. • Hinar frumsömdu íslensku riddarasögur eru að mestu leyti lélegur skáldskapur en þó merkilegar fyrir margra hluta sakir. • Nú kynntust Íslendingar hinum riddaralegu hugsjónum Evrópu, hinum rómatíska anda miðaldanna, eignuðust nýjar fyrirmyndir og auðugra tilfinningalíf.

  18. Annálar • Latína: annalis = árlegur • Annálar eru ekki samfelld saga heldur þurrupptalningatburðaeftirárum án þess að tilraun sé gerð til þess að tengja þá innbyrðis eða láta koma fram atburðarás. • Íslensk annálaritun hefst seintá13. öld að erlendri fyrirmynd.

  19. Annálar • 14. öldin er blómaskeið annálaritunar en úr henni dregur þegar líður á öldina og er henni að mestu leyti lokið um 1400. • Aðeins einn annáll nær fram á 15. öldina, Nýi annáll (til 1430) en hann var framhald Lögmannsannáls Einars Hafliðasonar. • Annálaritun lá síðan niðri fram yfir siðaskipti.

More Related