1 / 24

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 89-96

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 89-96. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 403 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Hvenær var fyrsta íslenska skáldsagan gefin út á prenti?. Skáldsagan sem bókmenntagrein er ekki gömul á Íslandi.

sissy
Télécharger la présentation

Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Rómantík 19. aldar, bls. 89-96

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Íslenskar bókmenntir 1550-1900Rómantík 19. aldar, bls. 89-96 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 403 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Hvenær var fyrsta íslenska skáldsagan gefin út á prenti? • Skáldsagan sem bókmenntagrein er ekki gömul á Íslandi. • Fyrsta prentaða skáldsagan var Piltur og Stúlka eftir Jón Thoroddsen (1818-1886). • Sagan kom fyrst út árið 1850. • Önnur útgáfa kom út 1867 með nokkrum viðbætum og breytingum á orðalagi.

  3. Hvenær var fyrsta íslenska skáldsagan gefin út á prenti?, frh. • Piltur og stúlka er saga tveggja elskenda. • Fjölskyldur þeirra reyna að koma í veg fyrir að þau giftist en að lokum fer allt vel. • Hluti sögunnar gerist í Reykjavík og er þar dregin upp ófögur mynd af hálfdönskum bæ. • Elskendurnir enda í sveitinni þar sem allt er miklu betra.

  4. Hvenær var fyrsta íslenska skáldsagan gefin út á prenti?, frh. • Piltur og stúlka hlaut strax góðar móttökur og hefur verið vinsæl allt fram á vora daga. • Emil Thoroddsen skrifaði leikgerð eftir sögunni 1934. • Margar aukapersónur sögunnar eru skoplegar og vel gerðar. • Gróa á Leiti

  5. Hvenær var fyrsta íslenska skáldsagan gefin út á prenti?, frh. • Jón samdi einnig skáldsöguna Mann og konu en dó frá henni ólokinni. • Hann var þó komin nógu langt með hana til að hægt væri að gefa hana út og kom hún fyrst út á prenti 1876. • Emil Thoroddsen samdi einnig leikgerð Manns og konu og var hún fyrst sýnd 1933. • Jón Thoroddsen orti líka. • Kvæðið Ísland („Ó, fögur er vor fósturjörð“).

  6. Hafa skáldsögur ekki alltaf verið til? • Skáldsögur eru tiltölulega ung bókmenntagrein. • Það var ekki fyrr en á 18. öld sem skáldsagan hlaut viðurkenningu sem sjálfstæð bókmenntagrein í Evrópu. • Á Íslandi gætti hennar ekki fyrr en á 19. öld. • Sumir nefna Don Kíkóta (1605-15) eftir Spánverjann Cervantes sem fyrstu skáldsöguna. • Á Englandi var mikil gróska í skáldsagnaritun á 18. öld. • Tvær bækur sem nú eru þekktar sem barnabækur en voru upphaflega ætlaðar fullorðnum: • Róbinson Krúsó • Ferðir Gullivers

  7. Hafa skáldsögur ekki alltaf verið til?, frh. • Róbinson Krúsó er eftir Daniel Defoe. • Kom út 1719. • Lýsir því hvernig duglegur og guðhræddur Englendingur breytir eyðieyju í blómlegt ríki. • Er mjög í anda upplýsingar. • Varð gríðarlega vinsæl, var þýdd á mörg tungumál og stælingar komu út um alla Evrópu. • Ferðir Gullivers er eftir Jonathan Swift. • Kom út 1726. • Gerist í 4 ímynduðum þjóðfélögum (t.d. Putalandi og Risalandi) • Mjög pólitísk saga og inniheldur ádeilu á lágkúru og grimmd mannsins.

  8. Hver var fyrsta íslenska skáldsagan? • Piltur og stúlka (1850). • Áður höfðu verið gerðar tilraunir til að skrifa skáldsögu. • Verk Eiríks Laxdals um 1800: • Ólafs saga Þórhallasonar (ekki gefin út fyrr en 1987) • Ólandssaga • Þessar sögur voru einungis til í handritum og komu því ekki fyrir almenningssjónir.

  9. Hvað gerðist fram að aldamótum? • Nokkrar skáldsögur voru skrifaðar á seinni hluta 19. aldar en þær náðu ekki þeim vinsældum sem sögur Jóns Thoroddsens nutu. • Fyrstu sögulegu skáldsögurnar eru þó samdar á þessum tíma: • Torfhildur Hólm skrifaði um 3 biskupa: • Jón Arason • Brynjólf Sveinsson • Jón Vídalín

  10. Hvað gerðist fram að aldamótum?, frh. • Það er eiginlega ekki fyrr en undir lok raunsæisstefnunnar í upphafi 20. aldar sem samfelld skáldsagnaritun hefst á Íslandi. • Þorgils gjallandi • Upp við fossa (1902) • Einar H. Kvaran • Ofurefli (1908) • Jón Trausti • Halla (1906)

  11. Líður á seinni hlutann • Þegar líður fram á seinni hluta 19. aldar fer mörgum bókmenntagreinum fram: • Leikritun og leiklist verða hluti af þjóðlífinu. • Ljóðskáldin yrkja hvatningarljóð til þjóðarinnar í sjálfstæðisbaráttunni. • Nýjar hugmyndir um hvernig bókmenntir eigi að vera eru boðaðar.

  12. Hvernig var með leiklistina? • Leikritun og leiklistariðkun lá að mestu leyti niðri eftir „Herranótt“ í lok 18. aldar. • Um miðja 19. öldina hefst leiklistariðkun hins vegar aftur af fullum krafti. • Eftir að Lærði skólinn var fluttur frá Bessastöðum til Reykjavíkur 1846 hófu skólapiltar að setja upp leiksýningar. • Ýmsar tilraunir voru gerðar til þess að skrifa leikverk þótt oft á tíðum væri fremur um æfingar en fullbúin leikrit að ræða. • Brátt náðu menn þó tökum á tækninni og urðu þáttaskil þegar leikritið Útilegumennirnir eftir Matthías Jochumsson var sýnt 1862.

  13. Hvers konar bær var Reykjavík? • Á 19. öld var Reykjavík fámennur bær og hálfdanskur. • Hlutur bæjarins í þjóðlífinu óx þó þegar leið á öldina. • 1785 var skólinn í Skálholti og biskupsembættið lagt niður og fært til Reykjavíkur. • Alþingi var endurreist 1843 og haldið í Reykjavík 1845. • Lærði skólinn flutti frá Bessastöðum til Reykjavíkur 1846. • Prestaskóli var stofnaður 1847. • Um miðja 19. öld voru íbúar Reykjavíkur orðnir um 1100. • Blöð voru orðin hluti af bæjarlífinu (Þjóðólfur 1848-1912).

  14. Leikhúsannáll í janúar og febrúar 1862 • ÚtilegumennMatthíasar Jochumssonar voru settir á svið í Reykjavík 1862. • Matthías var þá 26 ára gamall. • Sama ár voru frumsýnd fimm þýdd verk og nokkrir sjónleikir á dönsku. • Einnig var hægt að sjá lifandi myndir sem Sigurður Guðmundsson málari sýndi.

  15. Hvernig voru þessar lifandi myndir? • Sýningar á sögulegum viðburðum sem voru miðja vegu milli leiklistar og myndlistar. • Máluð voru baktjöld til að sýna umhverfið en lifandi fólk í búningum og búið vopnum eða öðrum leikmunum voru þar fyrir framan til að sýna atburðinn. • Hreyfing, athöfn, atburðarás var lítil og samtöl engin. • Sigurður málari stóð fyrir tveimur sýningum á lifandi myndum árið 1862: • Draumur Gísla Súrssonar • Hervör og Angantýr er hún sækir Tyrfing í haug þeirra bræðra í Sámsey.

  16. Hver var Sigurður málari? • Sigurður málari Guðmundsson (1833-74) gegndi mikilvægu hlutverki í því að koma leiklistariðkun og leikritun í sæmilega gott horf. • Hann var meðal þeirra fyrstu sem námu myndlist í útlöndum. • Hann varð fyrstur Íslendinga til að mála leiktjöld. Hann málaði einnig leikarana og sagði fyrir um búninga. • Fór einnig fljótlega að ráða sviðsetningu og hugsanlega að leikstýra að einhverju leyti. • Var meðlimur í Kvöldfundarfélaginu (1861-74) en það félag stóð fyrir leiksýningum og lét sér fátt óviðkomandi í menningarlegum efnum.

  17. Hver var Sigurður málari?, frh. • Sigurður málari átti mörg áhugamál, m.a.: • lagfæra íslenska kvenbúninginn (teiknaði skautbúninginn) • koma upp leikhúsi • Sigurður hvatti Matthías Jochumsson til að skrifa Útilegumennina. • Hann málaði leiktjöldin sem notuð voru í leikritinu. • Það var í fyrsta sinn sem íslenskt landslag var málað af Íslendingi. • Upprunalegu leiktjöldin eru glötuð en tjöld sem notuð voru í uppfærslu1872-73 eru varðveitt.

  18. Útilegumennirnir – Skugga Sveinn • Útilegumennirnir voru fyrst settir á svið 1862 en leikritið var fyrst prentað 1864. • Verkið kom aftur út árið 1898, mikið breytt, undir nafninu Skugga-Sveinn sem var aðalpersóna verksins. • Útilegumennirnir og Skugga-Sveinn eru leikrit með söngvum og gerast á 17. öld. • Verkin byggjast á þjóðsagnakenndu efni, þó ekki neinni sérstakri sögu. • Báðar gerðir verksins hlutu mjög góðar viðtökur og hefur ekkert verk oftar verið tekið til sýningar á Íslandi. • Nemendur lesa sjálfir um efni leikritsins á bls. 94.

  19. Hver var Smalastúlkan? • Sigurður málari samdi sjálfur leikritið Smalastúlkuna en lauk því verki ekki. • Smalastúlkan er útilegumannasaga og minnir um margt á Útilegumenn þótt áherslur séu ólíkar. • Ádeila á yfirvöld er hvassari í Smalastúlkunni. • Verkið var tekið til sýningar í Þjóðleikhúsinu 1980 í tilefni af 30 ára afmæli leikhússins.

  20. Hvað með framhaldið? • Útilegumenn Matthíasar Jochumssonar hrintu íslenskri leikritun af stað. • Indriði Einarsson hét það leikritaskáld sem næst sló í gegn með verkinu Nýársnóttin en það var tekið til sýningar 1871. • Verkið byggði á álfasögum. • Fljótlega skrifaði Indriði annað verk sem nefndist Hellismenn og var um hóp útlaga í Surtshelli. • Hellismenn voru síðasta verkið sem Sigurður málari vann leikmynd að. • Indriði varð mjög áberandi í íslensku leikhúslífi og tók þátt í baráttunni fyrir stofnun þjóðleikhúss. • Nýársnóttin var meðal þeirra verka sem sýnd voru við opnun Þjóðleikhússins 1950.

  21. Var ekki hægt að skrifa leikrit um annað en þjóðsögur? • Það er engin tilviljun að Matthías, Sigurður málari og Indriði skrifuðu leikrit með þjóðsagnakenndu ívafi. • Sjálfstæðisbaráttan var í fullum gangi og krafa dagsins var að styrkja íslenskt þjóðerni. • Um þær mundir sem verkin voru skrifuð var Jón Árnason að vinna að hinu mikla safni sínu, Íslenskum þjóðsögum og ævintýrum, sem kom út 1862-64.

  22. Var ekki hægt að skrifa leikrit um annað en þjóðsögur?, frh. • Þjóðsagnaefni var áberandi í íslenskum leikritum langt fram á 20. öld. • Hægt er að kalla það þjóðlega rómantík. • Jóhann Sigurjónsson (1880-1919) skrifaði síðar tvö verk sem byggðu á þjóðsögum: • Fjalla-Eyvindur 1911 • Galdra-Loftur 1915 • Davíð Stefánsson skrifaði einnig leikrit byggt á þjóðsögu: • Gullna hliðið 1941

  23. Þjóðsögur og ævintýri • Sögur sem hafa gengið í munnlegri geymd meðal fólks. • Söfnun þeirra er tengd rómantíkinni. • Grimmsbræður í Þýskalandi hófu í upphafi 19. aldar söfnun þjóðsagna í þeirri mynd sem við þekkjum. • Hér á landi hófst hún 1845 þegar Jón Árnason og Magnús Grímsson hófu söfnun sem lauk með útgáfu Íslenskra æfintýra 1852. • Jón Árnason hóf svo söfnun að nýju 1858 og lauk henni með útgáfu tveggja binda verks; Íslenskra þjóðsagna og ævintýra 1862-64.

  24. Kristján Jónsson Fjallaskáld • Kristján Jónsson (1842-69) var 19 ára vinnumaður á Hólsfjöllum þegar fyrsta kvæði hans, Dettifoss, kom út 1861. • Hann orti gjarnan um kraft náttúrunnar og ósjaldan var feigðin á næsta leiti í kvæðum hans. • Sjá brot úr Dettifossi á bls. 96. • Kristján var af fátæku fólki kominn. • Hann hafði góðar gáfur og hóf nám í Bessastaðaskóla 1864. • Námið sóttist honum fremur illa enda átti hann við þunglyndi að stríða og drakk oft á tíðum ótæpilega. • Hann var hins vegar virkur í félagslífi skólans og í Kvöldfélaginu og sendi frá sér mörg ljóð, sögur og greinar. • Hann dó á Vopnafirði 1868, aðeins 26 ára gamall.

More Related