1 / 10

Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009

Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009. Getum við hafið sókn til framtíðar með lausnum á bráðavanda? Aðkallandi atvinnuleysisúrræði í ljósi reynslu nágrannalanda. Þegar einar dyr lokast.

gautam
Télécharger la présentation

Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 • Getum við hafið sókn til framtíðar með lausnum á bráðavanda? Aðkallandi atvinnuleysisúrræði í ljósi reynslu nágrannalanda. • Þegar einar dyr lokast ...

  2. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Bakgrunnur: • Rannsóknir á ungmennum • Rannsóknir á starfsmenntun í skólum (og á vinnumarkaði) • Rannsóknir á atvinnuleysisúrræðum 10. áratugarins og menntunarúrræðum fyrir brottfallsnemendur • Á Íslandi, í Danmörku (Noregi, Svíþjóð, Finnlandi) • Sept.-nóv. 2009. Vinnuhópur á vegum félagsmálaráðherra og menntamálaráðherra til að gera tillögur um úrræði vegna atvinnuleysis (skýrsla á vef beggja ráðuneyta)

  3. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 • Í október voru 14.369 atvinnulausir á landinu, þar af 4.903 16-29 ára. • Atvinnuleysishlutfall er hæst meðal 20-29 ára eða 12%, en innan við 8% í heild. • Alþjóðleg reynsla: atvinnuleysi hefur alvarlegust áhrif á þá yngstu – árgangar sem lenda ungir í atvinnuleysi hafa hærra atvinnuleysishlutfall en aðrir síðar á ævinni. • Atvinnuleysi bitnar helst á þeim sem hafa litla menntun og þeir fara líka ver út úr því • 30-40% vinnufærra hafa enga menntun umfram grunnskóla, en það gildir um 52% atvinnuleitenda og 67% atvinnuleitenda yngri en 29 ára • Því þurfa úrræði fyrst og fremst að beinast að þeim sem eru 16-29 ára og hafa ekki aðra menntun en grunnskóla

  4. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 • 16-29 ára atvinnulausir lengur en 3 mán. með minna en 1 árs nám í framhaldsskóla að baki • 16-19 ára 238 • 20-24 ára 638 • 25-29 ára 577 • Samtals 1453 • 16-29 ára atvinnulausir lengur en 3 mán. með meira en 1 árs nám í framhaldsskóla að baki • 16-19 ára 15 • 20-24 ára 221 • 25-29 ára 198 • Samtals 434 • Þessum 1.887 manna hópi þarf að mæta með ráðgjöf og kröfu um virkni, (sem einnig á að standa til boða þeim 2.362 eldri en 30 með jafn langt atv.leysi) • En fjöldinn jafngildir nánast 10% af nemendafjölda framhaldsskóla

  5. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Hinn algeri forgangshópur – ungt fólk með meira en 6 mánaða atvinnuleysi • 16-29 ára atvinnulausir lengur en 6 mán. með minna en 1 árs nám í framhaldsskóla að baki • 16-19 ára 166 • 20-24 ára 472 • 25-29 ára 459 • Samtals 1097 • 16-29 ára atvinnulausir lengur en 6 mán. með meira en 1 árs nám í framhaldsskóla að baki • 16-19 ára 11 • 20-24 ára 163 • 25-29 ára 146 • Samtals 320 • Þessa 1417 einstaklinga þarf að kalla í viðtal hjá Vinnumálastofnun strax, fyrst hina 177 16-19 ára, síðan 635 20-24 ára þvínæst 605 25-29 ára og loks 470 með 3-6 mánaða atvinnuleysi

  6. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Hvaða virkniúrræði þarf að bjóða um það bil 2000 ungmennum innan hálfs árs? • Framhaldsskólar (einkum 16-24 sem hafa lokið meira en 1 ári í framhaldsskóla) • Framhaldsskólanám í frumgreinadeildum o.þ.h. (einkum 25 og eldri sem hafa talsvert framhaldsskólanám að baki) • Námsskeið símenntunarmiðstöðva (aðrir námsfúsir – slíkt nám þarf að geta nýst í framhaldsskólanámi síðar) • Vinnustofur + starfsþjálfun (fólk sem er fráhverft námi – áhersla á að efla virkni, sjálfsmat og hvata til að auka færni – hér þarf samstarf við atvinnulíf) • Sjálfboðastarfsemi (samstarf við félagasamtök, atvinnuleitendur verði þjálfaðir til að liðsinna öðrum atvinnuleitendum) • Átaksverkefni sveitarfélaga og ríkis

  7. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Tillögur vinnuhóps um úrræði eru byggðar á reynslu annarra Norðurlandaþjóða og fyrri íslenskri reynslu • Á 10. áratugnum varð virkni lykilorð í úrræðum fyrir atvinnuleitendur • Virknin má ekki verða innantóm atvinnubótavinna heldur færniaukandi • Hægt er að beina hluta atvinnuleitenda inn í skóla en starfsþjálfunarúrræði og styttri námskeið hæfa flestum betur • Rannsóknir alls staðar á Norðurlöndum bentu til þess að vinnustofur, með áherslu á virkni, eflt sjálfsmat og hvata, og eftirfarandi starfsþjálfun á vinnumarkaði, ásamt starfsmenntanámskeiðum, skiluðu bestum árangri • Ein þessara rannsókna var Mat á starfsnámi Hins Hússins 1997 • Um þessar mundir eru allar þjóðir Norðurlanda og ESB að leggja stórar fjárhæðir til færni- og virknihvetjandi úrræða fyrir unga atvinnuleitendur

  8. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Geta þessi skammtímaúrræði nýst til menntaumbóta? • Staðan: Um 40% hætta í framhaldsskólum, þar af langflestir á fyrstu tveim árunum • Margir þeirra ljúka framhaldsskólaprófi eða jafngildi þess síðar, en um 25% aldrei • Í Vestur-Evrópu erum við með eitt lægsta hlutfall þeirra sem ljúka framhaldsskóla ungir • En fáar eða engar þjóðir sækja jafn mikið skóla á fullorðinsaldri • Nánast krónísk þensla á vinnumarkaði hefur átt lykilþátt í að skapa þetta ástand. • Ath. að braut þeirra 15-20% sem ljúka framhaldsskóla eftir 25 ára aldur hefur oft verið löng og ströng og þyrnum stráð

  9. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Það sem horfir til lengri tíma (I) • Framhaldsskólar haldi 90% nemendum a.m.k. fram til tveggja ára framhaldsskólaprófs, í stað þess að missa 30% árgangs á fyrstu tveim árunum eins og nú • Þetta krefst gerbreytingar á námsframboði, fyrst og fremst stóraukið framboð á starfs- og listnámi og ný vinnubrögð í bóklegum greinum • Það þarf fleiri úrræði á borð við Fjölsmiðjuna • Það þarf að auðvelda endurkomu brottfallsnema, m.a. með því að tengja saman nám í símenntunarmiðstöðvum og framhaldsskólum • Reynslu af starfsþjálfun v. atvinnuleysis þarf að nýta áfram í menntun.

  10. Gestur Guðmundsson: Atvinnuleysisúrræði og menntaumbætur 26. nóvember 2009 Verkefnin (II) • Að gera leið fullorðinna til framhaldsskólaprófs greiðfærari • (aftur) að tengja saman nám í símenntunarmiðstöðvum og framhaldsskólum • Búa til gulrætur og aukna möguleika • Dæmi: Einstaklingur sem hefur verið á vinnumarkaði í tiltekinn árafjölda, t.d. fimm ár, og hefur á sama tíma safnað tilteknum einingafjölda með þátttöku í námskeiðum, geti sótt um hálfs árs námsstyrk til að komast rösklega áfram í námi að skilgreindum próflokum • Í kreppu á einmitt að byrja á svona úrræðum, fyrst í smáum stíl og fyrir atvinnuleitendur, en breyta þeim í fjölfarnar leiðir þegar betur fer að ára

More Related