1 / 5

Gott að vita um . . . ÚTDRÆTTI

Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. Gott að vita um . . . ÚTDRÆTTI. Hvað er útdráttur?. Útdráttur er stutt samantekt aðalatriða úr texta. Útdráttur á að vera á samfelldu máli, ekki einstök orð eða samhengislausar setningar.

astin
Télécharger la présentation

Gott að vita um . . . ÚTDRÆTTI

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Gott að vita um . . .ÚTDRÆTTI

  2. Hvað er útdráttur? • Útdráttur er stutt samantekt aðalatriða úr texta. • Útdráttur á að vera á samfelldu máli, ekki einstök orð eða samhengislausar setningar. • Í útdrætti er notað eigið orðalag. Þess vegna er óhætt að breyta textanum og umorða. • Útdráttur hefur upphaf, meginmálog niðurlag eins og aðrar ritsmíðar. • Í útdrætti ætti að nota eigin fyrirsögn en ekki þá sömu og í frumtextanum. Miðbjörg / SKS

  3. Hvernig á að skrifa útdrátt? • Lestu vel yfir textann sem þú ætlar að skrifa útdrátt úr. • Endursegðu efni textans, annaðhvort í huganum eða með því að segja einhverjum um hvað hann fjallar. • Hver eru lykilorðin í textanum? Strikaðu undir þau eða skráðu þau hjá þér. • Reyndu að stytta textann eins og hægt er en gættu þess að aðalatriði hans komi vel fram. • Skrifaðu samfellda frásögn og notaðu þitt eigið orðalag. • Teldu orðin í útdrættinum þínum. Eru þau ekki miklu færri en í upphaflega textanum? Miðbjörg / SKS

  4. Skrifaðu útdrátt úr þessum texta Fyrsti vinsæli tölvuleikurinn er talinn hafa verið gerður árið nítján hundruð fimmtíu og átta. Hann var einhvers konar stafræn útgáfa af venjulegum tennisleik milli tveggja aðila. Á sjöunda og áttunda áratugnum varð svo hálfgerð bylting í gerð tölvuleikja. Þá komu fram ótal frægir og jafnvel þjóðsagnakenndir leikir sem var aðeins hægt að spila í leikjatölvum. Núna á síðustu árum hafa leikirnir breyst nokkuð en gæði þeirra hafa tekið töluverðum framförum. Sumir tala þó um að þeir séu mun ofbeldisfyllri og grófari en nokkru sinni fyrr og hafa áhyggjur af stöðu mála. (91 orð) Miðbjörg / SKS

  5. Dæmi um lausn Fyrsti vinsæli tölvuleikurinn er frá árinu 1958. Á 7. og 8. áratugnum urðu til ótal leikir sem aðeins voru spilaðir í leikjatölvum. Leikirnir hafa breyst með tímanum, m.a. að gæðum. Sumir segja að þeir séu ofbeldisfyllri en nokkru sinni fyrr. (40 orð) Miðbjörg / SKS

More Related